Ægir - 01.02.1990, Page 20
72
ÆGIR
2/90
Cott hal í dragnótina.
fiskvinnslu sem hingað til hafa
ekki verið fyrir hendi. í raun gætu
skapast skilyrði til að lyfta sjávar-
útvegi Cabo Verdebúa á nýtt og
þróaðra framleiðslustig ef vel tekst
til með framhald botnfiskveið-
anna, eins og stefnt er að í annarri
þjóðhagsáætlun Cabo Verde.
Hver er framtíð Cabo Verde?
Hvert stefnir þjóð eins og Cabo
Verde sem býr við slík lífsskilyrði
að hún fær vart þrifist? Cetur hún
bjargast án hjálpar? Hvað hugsar
fólkið? Vill það burt eða sér það
framtíð sinni og sinna barna
borgið á Cabo Verde? Margir leita
burt í von um betra líf og betri
afkomu annarsstaðar. En þeir
gleyma ekki uppruna sínum og
snúa á endanum aftur. Cabo
Verdebúar líta á sig sem sjálfstæða
þjóð í eigin landi sem á framtíð
fyrir sér. Þeir hafa varðveitt póli-
tískt sjálfstæði sitt í hartnær
fimmtán ár, þrátt fyrir miklar
þrengingar og vinna hörðum
höndum að efnahagslegu sjálf-
stæði í samvinnu við vinveittar
þjóðir. Þar hafa íslendingar lagt
hönd á plóg. Fiskveiðar á Cabo
Verde skipta sköpum fyrir hag
fólksins. Þær má auka verulega
með eflingu smábátaútgerðar til
fæðuöflunar fyrir landsmenn og
útgerð stærri báta til að afla fisks til
útflutnmgs. Vaxtarmöguleikarnir
eru ef til vill ekki stórfelldir en
nægja samt. Eftil vill kemurað því
um síðir að Cabo Verdemenn
hefja frekari sókn á fjarlæg mið.
Þar eru miklir vaxtarmöguleikar
eftir að fiskveiðar heima fyrir hafa
verið efldar. Það er í raun ótrúlega
margt líkt með Cabo Verde og
Færeyjum. Hvorutveggja eru smá-
þjóðir sem búa á dreifðum og
harðbýlum eyjum, umkringdar
næstum óendanlegu hafi. Færey-
ingar hafa fullnýtt sín fiskimið og
hafa um árabil sótt fisk f fiskveiði-
lögsögu flestra nágrannaríkja
sinna og notið þannig skilnings
frænda og vinaþjóða á sérstöðu
sinni. Margt bendir til að Cabo
Verde-menn geti fetað sig inn á
líkar brautir þegar fram líða
stundir.
Framtíðina sjáum við mennirnir
aðeins að litlu leyti, sem betur fer.
Framtíð Cabo Verde er óráðin eins
og framtíð okkar allra. Fólkið á
Cabo Verde lifir í voninni um betri
tíð með blóm í haga. Það miðar
sínar áætlanir við það og vinnur
að því að nýta allt sem að gagni
getur komið til framþróunar þjóð-
félagsins þar. Örlitlar hagstæðar
loftslagsbreytingar gætu gjörbylt
lífsskilyrðum á Cabo Verde á
skömmum tíma. Aukin þekkingog
færni á öllum sviðum, ekki síst í
sjávarútvegi, getur stórbætt lífs-
skilyrði á Cabo Verde á skömmum
tíma. Framlag íslendinga til þró-
unar fiskveiða á Cabo Verde hefur
þokað þeim fram á við.
í verkefninu var tekist á við að
ryðja nýrri grein braut. Veiðar,
vinnsla og sala fiskafurða á fjar-
læga markaði er framtíðaratvinnu-
grein í sjávarútvegi á Cabo Verde.
Með samstilltu átaki allra aðila
tókst að ná tökum á verkefninu og
finna forskriftina að því hvernig
best yrði staðið að því að nýta
botnlægan fisk við Cabo Verde.
Höldum starfinu áfram og látum
ekki hér staðar numið, við erum á
réttri leið.
Höfundur er fyrrverandi verkefnisstjóri
á Grænhöfðaeyjum.