Ægir - 01.09.1992, Qupperneq 6
446
ÆGIR
9/92
Erlingur Hauksson:
Sela- og fiskstofnar
og fiskveiðar í
Norður-A tlantshafi
Inngangur
Það er ýmsum vandkvæðum háð að meta afrán
sela og annarra sjávarspendýra í fiskstofnum, þó að
slík vitneskja sé mikilvæg fiskveiðiþjóð eins og Is-
lendingum. Slíkt mat, í tonnum og fjárupphæðum, á
áhrifum neyslu sjávarspendýra á fiskveiðarnar er
einnig mjög illa séð af öfgakenndum dýra- og nátt-
úruverndarsamtökum, eins og Grænfriðungum, sem
líta á sjávarspendýr sem heilagar kýr. Ymist heyrast
frá þeim staðhæfingar um það að hvalir og selir éti
ekki nytjafiska og hafi ekki áhrif á veiðanlega fisk-
stofna, eða mótsögn þessa, þ.e.a.s. takmarkaða verði
fiskveiðar svo sjávarspendýr fái nóg að éta.
í þessari grein ætla ég að leggja mat á neyslu sela
á sjávarfangi í Norður-Atlantshafi út frá fyrirliggjandi
gögnum og leiða líkur að verulegri samkeppni þeirr‘
við fiskveiðarnar.
Um fimm tegundir sela í Norður-Atlantshafi er tic
ræða sem eru fiskætur: landsel, vöðusel, hring^
nóra, blöðrusel og útsel. Kampsel og rostung
sleppt því þessar tegundir hreifadýra nærast aóalieb'
á hryggleysingjum á hafsbotni.
Selategundir
Landselur - Phoca vitulina ^
Landselur (1. mynd) er dreifður vítt og breitt ,
strendur Evrópu, íslands, Grænlands, frá Labrado^
Kanada til austurstrandar Bandaríkjanna (2. mV1 ^
Hámarkslengd landsela er 195 cm, hámarksþVU
Tafla 1
Selir í Norður-Atlantshafi, fjöldi, meðalþyngd, fæðuþörf, neysla af sjávarfangi og aðalfæða.
Einnig heildarafli sjávarfangs úr Norður-Atlantshafi 1988.
Meðal- Fæðuþörf
Selir Stofnstærö þyngd (kg) miðaö við líkamsþunga Neysla í tonnum Helstu fæðutegundirnar ^—
Vöðuselur 3.000.000 110 5% 5.000.000 Síld, loöna, flatfiskur, þorskfiskar, smokkfiskur og krabbadýr —
Hringanóri 4.000.000 75 4% 4.000.000 Þorskfiskar og sundkrabbar
Blöðruselur 400.000 195 6% 1.500.000 Karfi, síld, þorskur, lúða, smokkfiskur og kolkrabbi ——"
Landselur 450.000 85 4% 500.000 Þorskfiskar, síld, flatfiskar, síli, loðna og botnkrabbar ___—
Útselur 200.000 175 4% 500.000 Þorskfiskar, síld, flatfiskar, síli, hrognkelsi, marhnútar og botnkrabbar
Alls 11.500.000
Fiskafli í Norður -Atlantshafi 1988 13.553.700