Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1992, Page 19

Ægir - 01.09.1992, Page 19
9/92 ÆGIR 459 gefui- r2 _ o g7 (mynd 7)_ A||ar 3ensar vísitölur gefa sem sagt betri ^yliðunarspá heldur en umrætt h'tastig. htér skal sérstaklega bent á að Se,ðatalningin er mæling, sem Hafrannsóknastofnunin notar ekki til að spá fyrir um nýlióun. Sér- flagi er mælingin að engu leyti notuð til að meta nýliðunina tölu- lega. Þessi mæling er aðeins not- uð til að fá vísbendingar, t.d. um að tiltekinn árgangur sé „líklega lélegur". Hins vegar hefur seiða- talningin betra spágildi heldur en það líkan sem Þórólfur, Guðni og Sigurður eru að kynna! Athuga ber að myndir 5-9 segja ekki til um hvenær nýliðun er á- kveðin, þ.e. á hvaða aldri er orðið Ijóst hversu stór árgangurinn verður. Astæðan fyrir þessu er að ekki er hægt að sjá af þessum myndum hvorum megin óvissan liggur, þ.e. hvort mjög breytileg afföll verði frá seiðastigi í ágúst til þriggja ára aldurs, eða hvort seiðatalningin sé einfaldlega mjög ónákvæm mæling. Þó virðist Ijóst að stærð árganga ræðst ekki síðar en við tveggja ára aldur, því við þann aldur fæst mjög gott samband milli rallvísi- tölu og nýliðunar þriggja ára þorsks. Augljóst er að geysileg afföll eru frá hrygningu og fram að þeim tíma að veiðar hefjast og sést það til dæmis út frá þeim ara- grúa eggja sem hrygnt er, en skila síðan „aóeins" 100-400 milljón- um nýliða. Til að kanna nánar hvenær af- föllin verða er fróðlegt að bera saman hinar mismunandi vísitöl- ur. Þetta er gert í myndum 1-4. Hér sést að nokkuð gott samband er (r2 = 0.79 í mynd 1) milli seiðamælingar í ágúst og rallvísi- tölu eins árs þorsks f mars árió eftir. Freistandi er að draga tvær ályktanir af þessu. í fyrsta lagi virðast báðar mælingar vera all- góðar og í öðru lagi virðast afföll milli þessara mælinga vera nokk- uð stöðug. Heldur verra samband er milli vfsitalna árgangs eins og tveggja ára en aftur betra milli tveggja og þriggja ára. Þetta virðist benda til að allnokkur og breytileg afföll verði milli mælinga þegar fiskur- inn er eins árs í mars og tveggja ára árið eftir. Sambandið milli vísitalna

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.