Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Page 48

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Page 48
Fra Lögmaimafélagi íslantls AÐALFUNDUR 1974 Aðalfundur L.M.F.Í. var haldinn laugardaginn 30. marz s.l. Formaður félags- ins, Páll S. Pálsson hrl., setti fundinn og kvaddi Jón Sigurðsson hrl. til fund- arstjórnar, en fundarritari var Ragnar Aðalsteinsson hrl. Formaður las skýrslu stjórnar, en minntist áður þeirra félagsmanna, sem látizt höfðu frá síðasta aðalfundi, þeirra Einars B. Guðmundssonar hrl., Gunn- ars Jónssonar hrl., Jóhanns Ragnarssonar hrl. og Sigurðar Sigurðssonar hrl. Formaður gat þess helzta, sem gerzt hefði í félagslífinu og á stjórnarfund- um á undanförnu stjórnarári, þ. e. dómsstörfum stjórnarinnar, samskipta við stjórnvöld og umsögnum um lagafrumvörp. Þá gat hann bókagjafar, sem félaginu hafði borizt frá Lárusi Jóhannessyni fyrrv. hæstaréttardómara, en hann hefur enn sýnt góðan hug sinn til félagsins með stórri bókagjöf. Bóka- safn félagsins var skráð af Páli Skúlasyni lögfræðingi og bókaverði og komið fyrir í skrifstofu félagsins. Þá gat formaður um námskeið um verksamninga, sem þá stóð til að halda og haldið var 16.—19. apríl, en námskeið þetta hélt félagið í samvinnu við Verkfræðingafélag íslands. Þá reifaði formaður hug- mynd, sem fram hafði komið á almennum félagsfundi s.l. vetur, að félagið minntist 1100 ára afmælis íslandsbyggðar með því að reisa minnisvarða að Breiðabólstað í Vestur-Hópi í minningu þess, að þar voru fyrst skráð lög á fslandi ,,at Hafliða Mássonar“. Samþykktu fundarmeníi að stjórnin kæmi þessari hugmynd í framkvæmd, en þegar hafði verið unnið að könnun máls- ins. Stendur til, að varðinn verði afhjúpaður hinn 20. júlí n.k., en Steiniðja S. Helgasonar hefur tekið að sér að annast gerð hans. Þá skýrði formaður frá fundi í samtökum lögmanna á Norðurlöndum, sem haldinn var í september s.l. í Kaupmannahöfn, en fundinn sótti formaður ásamt ritara félagsins, Skúla Pálssyni. Reifaði formaður helztu mál, sem þar komu fram, en meðal þeirra var lögfræðiaðstoð við almenning. Hvatti hann til, að L.M.F.f. stuðlaði að því að tekinn yrði upp líkur háttur um aðstoð þessa og tíðkazt á Norðurlöndunum hinum. Að lokinni skýrslu formanns urðu nokkrar umræður, og varpað var fram fyrirspurnum, sem formaður svaraði. Þá lagði gjaldkei félagsins, Jóhannes L. L. Helgason hrl., fram endur- skoðaða reikninga félagsins og sjóða þess, þ. e. styrktarsjóðs, námssjóðs og væntanlegs ábyrgðarsjóðs. Hagur félagsins er sæmilegur. 42

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.