Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Qupperneq 30
með því að greiða eða setja tryggingu fyrir fullri takmörkunarfjárhæð
skv. 177. gr. vegna krafna þeirra, sem takmarka skal ábyrgð við vegna
sama atburðar, sjá nánar 185. og 186. gr. Greiða skal takmörkunar-
féð eða afhenda nægilega tryggingu til Seðlabanka Tslands eða ann-
ars banka, sjá nánar 184.-186. gr. Dómari sker úr ágreiningi um bóta-
ábyrgð og takmörkun hennar. Ef útgerðarmaður er ábyrgðartryggð-
ur vegna skaðabótakrafna, sem gerðar eru, myndi það í framkvæmd
vera vátryggingafélag hans, sem leggur fram fé eða setur tryggingu,
sbr. 93. gr. laga nr. 20/1954 um vátryggingarsamninga.
Réttur til að bera fyrir sig reglur 9. kafla sigll. um takmörkun
ábyrgðar er ekki bundinn því skilyrði, að takmörkunarsjóður sé stofn-
aður, sjá nánar 182. gr. sigll. og 9. kafla hér á eftir. Hins vegar veitir
stofnun sjóðs bótaskyldum aðila visst hagræði umfram sjálfan rétt-
inn til takmörkunar ábyrgðar. 1 fyrsta lagi nýtur sá, sem takmörkunar-
sjóð stofnar, verndar gegn kyrrsetningu, fjárnámi eða annarri nauð-
ungarfullnustu í skipi eða öðrum eignum, sbr. 180. gr. 1 öðru lagi
geta aðrir, sem bótaskyldir eru, borið fyrir sig sömu ábyrgðartak-
mörkun og sá, sem sjóð stofnar, sbr. 2. mgr. 179. gr. Njóta þeir einn-
ig sömu verndar og stofnandi sjóðsins gegn kyrrsetningu o.þ.h. I
þriðja lagi girðir stofnun takmörkunarsjóðs fyrir það, að höfðað sé
sérstakt dómsmál hér á landi um bótaábyrgð eða takmörkun ábyrgðar
gegn einhverjum þeirra, sem sjóðurinn telst stofnaður fyrir, sbr. 3.
mgr. 179. gr.
Ákvæðin um takmörkunarsjóð og mál vegna takmörkunar ábyrgðar
fela með öðrum orðum í sér fyrirmæli um, hvernig framkvæma skuli
meginregluna í 4. mgr. 177. gr. um, að ábyrgðarmörk 177. gr. gildi
fyrir samtölu allra krafna, sem rísa vegna sama atburðar gagnvart út-
gerðarmanni og öðrum, sem borið geta fyrir sig takmörkun ábyrgðar.
Með reglum þessum er stefnt að því að beina öllum ágreinirigi um
kröfur og takmörkun ábyrgðar vegna tiltekins atburðar á einn stað,
til þess að þeim verði fullnægt í einu lokauppgjöri. Þessi skipan líkist
að sumu leyti gjaldþrotaskiptum.
Þær reglur sigll., sem hér um ræðir, gilda aðeins um stofnun tak-
mörkunarsjóðs á Tslandi og mál fyrir íslenskum dómstólum. Hyggist
útgerðarmaður eða annar bótaskyldur stofna takmörkunarsj óð erlend-
is, verður hann að fara eftir reglum þeim, sem þar gilda. Um réttar-
áhrif þess, að takmörkunarsj óður er stofnaður í öðru ríki (sem er
aðili að Lundúnasamningnum frá 1976), sjá 180. gr.
24