Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Qupperneq 33
heimildum. Lagaákvæði þau, sem hér koma til greina, eru 2. mgr. 16.
gr. sigll. og 1. mgr. 60. gr. sjóml. nr. 35/1985, en þar er dómstólum
heimilað að milda skaðabótaábyrgð skipstjóra eða skipverja með til-
liti til þess, hversu mikil sökin var og tjónið, til efnahags tjónvalds
og annarra atvika.
Eftirfarandi athugasemd er við 2. mgr. 183. gr. í frv. til sigll.:
„Hvað varðar 2. mgr. skal tekið fram, að almennar lagareglur um
lækkun bótaábyrgðar tjónvalds eru ekki í íslenskum rétti, en hér er
höfðað til þess, þegar íslenskur lagaskilaréttur leiðir til þess, að beitt
sé þess háttar ákvæðum í löggjöf annarra þjóða.“18 Athugasemd
þessi hittir ekki vel í mark, því að ákvæði 2. mgr. 183. gr. sigll. getur
samkvæmt framansögðu skipt máli um lækkun bóta, enda þótt almenn
lagaheimild til þess að lækka bætur sé ekki til í íslenskum rétti.
Þegar heimilt er að lækka skaðabætur úr hendi þess, sem tjóni hef-
ur valdið og hann nýtur jafnframt réttar til að takmarka ábyrgð
sína, myndi dómari væntanlega fyrst taka ákvörðun um bótaskyldu
eins og ábyrgð væri ótakmörkuð. Hann yrði þá m.a. að taka afstöðu
til þess, hvort efni væru til að beita lækkunarheimild í 16. gr. sigll.
eða 60. gr. sjóml. Lækki dómari bætur, myndi bótafjárhæð þannig
lækkuð sæta takmörkun eftir 9. kafla sigll.
11. TAKMÖRKUN ARS JÓÐIR
Eins og fram kemur hér að framan (einkum í 9. kafla), getur sá,
sem bótaábyrgð ber, takmarkað ábyrgð sína, hvort sem takmörkunar-
sjóður er stofnaður eða ekki. 1 10. kafla sigll. eru réttarfarsreglur,
sem gilda, ef takmörkunarsjóður er stofnaður skv. 179. gr. laganna.
Reglur kaflans eru ekki ítarlegar. Þar er í stórum dráttum kveðið á
um, hvernig sjóð skal stofna, tilkynningu um sjóðsstofnun, kröfu-
lýsingu, meðferð takmörkunarmáls fyrir dómi, réttaráhrif dóms um
skiptingu sjóðsins o.fl. Ef upp koma einstök álitaefni, sem 10. kafli
sigll. veitir ekki svar við, verða dómstólar að leysa úr þeim, m.a. með
hliðsjón af almennum réglum réttarfars og reglum um gjaldþrota-
skipti, en meðferð takmörkunarmáls og skiptingu takmörkunarsjóðs
svipar mjög til gjaldþrotaskipta, eins og áður hefur verið drepið á.
Þegar dómari hefur ákvarðað skiptingu takmörkunarsjóðs með dómi,
18 Alþt. 1984 A, bls. 1051. Sams konar athugasemd er í frv. til dönsku siglingalaganna, sjá
Betænkning nr. 924/1981, bls. 45.
27
L