Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Blaðsíða 43
eftirlit sé með framkvæmd starfsins og aðstæður séu þannig, að ekki
séu fyrir hendi sérstakar freistingar eða misnotkunarleiðir fyrir dóm-
þola. Þetta yrðu oftast eins konar aðstoðarstörf, unnin í samvinnu
við fólk, sem er í föstum tengslum við viðkomandi vinnustað.
Loks er vakin athygli á því, að það kann að vera erfitt að fá fólk al-
mennt til þess að viðurkenna samfélagsþjónustu sem refsingu. Þá þyk-
ir mörgum það sjálfsagt vafasamt, að brotamenn, sem hafa einhvern
brotaferil að baki, inni af hendi störf, sem koma þeim í náin tengsl við
þá, sem minnst mega sín í þjóðfélaginu, s.s. aldraða og sjúka, þar sem
e.t.v. eru tækifæri til nýrra afbrota. Þetta vandamál fer auðvitað mik-
ið eftir því, hvaða brotamenn verða dæmdir til samfélagsþjónustu og
hvers konar störf þeir fá. Auðvitað verður að leggja áherslu á að forð-
ast það að setja hinn brotlega í starf, þar sem freistingar eru miklar.
1 álitsgerðinni er síðan fjallað um, hvaða form sé best að hafa á sam-
félagsþjónustu, þ.e. hvort hún eigi að vera stjálfstæð viðurlagategund
eða í tengslum við skilorðsdóma og hvenær ætti helst að beita sam-
félagsþjónustu. Er talið, að hún eigi vel við í þeim tilvikum, þar sem
þörf er á einhverju meiru en sekt eða skilorðsdómi, en ekki endilega
brýn þörf fyrir refsivist. Oft megi beita samfélagsþjónustu sem refs-
ingu fyrir auðgunarbrot, þar sem ekki er um atvinnumennsku eða mörg
fyrri afbrot að ræða, en þó ekki fært að beita skilorðsdómi, t.d. vegna
þess að miklu er stolið, vegna aðferðar við brotið eða annarra atriða
Þetta séu tilvik, þar sem nú yrði refsað með stuttum refivistardómi.
Einnig er bent á þann kost að beita samfélagsþjónustu vegna ölvunar-
og/eða sviptingaraksturs.
Eins og fram kom hér að framan, var álitsgerð sú, sem hér hefur
verið gerð að umtalsefni, birt árið 1977, en haustið 1979 skipaði hegn-
irigarlaganefndin vinnuhóp, í samráði við dómsmálaráðuneytið, og átti
sá vinnuhópur að gera tillögur að reglum um samfélagsþiónustu á
grundvelli gildandi reglna um skilorðsdóma, og skyldi henni komið á í
tilraunaskyni í Kaupmannahöfn. Skilaði vinnuhópurinn áliti til hegn-
ingarlaganefndar, sem mælti með því, að komið yrði á fót tilrauna-
skipan með samfélagsþjónustu í Kaupmannahöfn í samræmi við tillög-
ur vinnuhópsins. Hinn 25. maí 1982 var síðan samþykkt þingsályktun
um að koma á fót í tilraunaskyni samfélagsþjónustu í Kaupmannahöfn
og á Norður-Jótlandi í samræmi við áðurnefndar tillögur.
Skipan þessi byggist á gildandi reglum um skilorðsdóma, en 57. gr.
dönsku hegningarlaganna um skilyrði fyrir skilorðsdómi veitir nægi-
37