Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Síða 46
Eins og- fyrr segir, skal í skilorðsdómi með skilorði um samfélags-
þjónustu tiltaka, hve marga tíma dómþoli á að vinna. Ákvörðun um
tímafjölda fer eftir almennum reglum og sjónarmiðum um ákvörðun
refsingar, þ. á m. grófleika brots. Þá skal, eins og fram hefur komið,
tiltaka í dóminum, hvenær hinn brotlégi á að hafa lokið vinnuskyldu
sinni. Samhengi er á milli tímafjölda og afplánunartíma. Haldi hinn
dæmdi sig ekki við tímamarkið og ljúki ekki vinnuskyldunni innan
tilskilins tíma, hefur hann rofið skilorð. Heppilegt er talið, að hlutföll-
in séu þessi: Ef um er að ræða allt að 80 tíma vinnuskyldu, verði há-
marksafplánunartími fjórir mánuðir, fyrir 80-120 tíma sex mánuðir,
fyrir 120-150 tíma átta mánuðir og fyrir 150 tíma og meira tólf
mánuðir.
Jafnframt skilorði um samfélagsþjónustu er í skilorðsdómi alltaf
skilyrði um eftirlit af hálfu dómsmálaráðuneytisins, enda á það að hafa
eftirlit með, hvort og hvernig vinnuskyldan er af hendi leyst. Eftirlits-
tíminn er jafnlangur og afplánunartíminn. Það er hugsanlégt, að jafn-
framt séu sett fleiri skilyrði skv. 57. gr. hgl., en þó er talið rétt að fara
varlega í það. Ákveða verður skilorðstímann, vegna þess að samfélags-
þjónusta er liður í skilorðsdómi. Skilorðstíminn er ákveðinn þannig,
að hann sé jafnlangur afplánunartíma.
Vinnuhópurinn tók ekki afstöðu til þess, hvort skilorðsdómurinn,
sem er grundvöllur skilorðsins um samfélagsþjónustu, eigi að vera dóm-
ur, þar sem ákvörðun refsingar eða fullnustu refsingar er frestað skil-
orðsbundið. Rök með skilorðsbundinni frestun á fullnustu refsingar
eru þau, að hún hvetur hinn dæmda sennilega betur til þess að full-
nægja vinnuskyldu sinni, ef hann veit hvað bíður hans ella. Þetta get-
ur þó verið óréttlátt, t.d. ef dómþoli hefur þegar innt af hendi hluta
vinnuskyldu sinnar, en rýfur síðan skiloi'ðið og hættir að mæta til
vinnu. Sé tab'ð nauðsynlegt að beita þá óskilorðsbundinni refsivist, er
eðlilegt að taka tillit til þess, að dómþoli hefur þegar afplánað hluta
dómsins. Ef um er að ræða skilorðsdóm, þar sem ákvörðun refsingar
er frestað, veldur þetta engum vandkvæðum. En þegar fullnustu refs-
ingar er frestað skilorðsbundið, eru takmarkaðir möguleikar skv. 60.
gr. dönsku hgl. til að stytta þann tíma, sem ákveðinn var. Hvor tegund
skilorðsdóma er valin, fer eftir mati hverju sinni, en sennilega er oft
heppilegast, að refsing sé ekki ákveðin í dóminum.
Dómsmálaráðuneytið (samfélagsþiónustudeild) ákveður vinnustað
og hvenær vinnan skuli innt af hendi. Mikilvægt er, að fullnusta hefiist
strax eftir að dómur er genginn. Vinnutíminn er ákveðinn í samráði
við hlutaðeigandi vinnustað og með tilliti til persónulegra aðstæðna
40