Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Qupperneq 49
samfélagsþjónustu. Þá höfðu 144 fengið skilorðsdóm með skilorði um
samfélagsþjónustu, þ.e. rúmlega 40% þeirra, sem töldust hæfir. Hér
ber þó þess að gæta, að ekki þarf að hafa verið búið að dæma í málum
allra þeirra, er töldust hæfir. Af þessum 144 dónium um samfélags-
þjónustu voru 92 kveðnir upp í Kaupmannahöfn og 52 í Álaborg.
Skipting dómanna eftir kynjum var þannig, að 137 karlar höfðu hlotið
dóm um samfélagsþjónustu, en 7 konur.
Ef litið er á fjölda dóma miðað við aldur dómþola, kemur í ljós, að
af þessum 92 dómþolum, sem fengu samfélagsþjónustu í Kaupmanna-
höfn, voru flestir, eða 34, á aldrinum 21-25 ára, 18 voru 31-40 ára, 16 voru
18-20 ára og 14 á aldrinum 26-30 ára. 1 Álaborg voru hins vegar flestir
dómþolar, eða 16 af alls 52, á aldrinum 31-40 ára, 12 voru 21-25 ára
og einnig 12 eldri en 40 ára.
Eftir brotategundum skiptust dómarnir þannig, að í Kaupmannahöfn
voru alls 57 dómar fyrir auðgunarbrot, þar af 20 fyrir þjófnað. 14 hlutu
dóm um samfélagsþjónustu fyrir fíkniefnabrot og 12 fyrir ofbeldis-
brot. I Álaborg voru 49 af dómunum 52 fyrir auðgunarbrot, þar af 16
vegna þjófnaðar.
Af þeim 144 einstaklingum, sem höfðu fengið dóm um samfélags-
þjónustu, höfðu 18 rofið skilorð eða vanrækt að einhverju leyti vinnu-
skyldu sína.
Þar sem heimildin til að beita samfélagsþjónustu tekur nú til lands-
ins alls, hefur dómum með þessu sérstaka skilyrði auðvitað fjölgað.
Hinn 30. október 1986 höfðu verið kveðnir upp 666 dómar með skilyrði
um samfélagsþjónustu, þar af 228 í Kaupmannahöfn og 107 í Álaborg.
Eftir brotategundum skiptust þessir 666 dómar þannig, að 240 voru
fyrir þjófnað, 47 fyrir rán og 248 fyrir önnur auðgunarbrot. Dómar
fyrir ofbeldisbrot voru 47 en 42 fyrir fíkniefnabrot. 5 dómar voru fyr-
ir kynferðisbrot, en afgangurinn, þ.e. 37 dómar, skiptist á ýmsar aðr-
ar brotategundii'. Þegar þetta er ritað, liggja ekki fyrir upplýsingar
um skiptingu þessara 666 dóma eftir aldri og kyni dómþola.
IV. LOKAORÐ.
Hér hefur verið gerð grein fyrir reglunum um samfélagsþjónustu í
Danmörku og þeirri reynslu, sem þar hefur fengist af þessu úrræði.
Flestir virðast sammála um, að sú reynsla sé jákvæð. Ekki hefur verið
vandkvæðum bundið að finna næg störf handa dómþolum, og samstarf
við stofnanir, sem tekið hafa dómþola í vinnu, hefur gengið vel. Fáir
43