Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Qupperneq 69
réttar, er rekið svonefnt sérstakt skiptaréttarmál milli ágreiningsað-
iljanna, þar sem þeir gera kröfur um málsúrslit, rökstyðja þær og afla
gagna þeim til stuðnings. Aðdragandi að slíku máli er að jafnaði á
þann veg, að við fyrirtöku beiðni um opinber skipti, við uppskrift bús
eða á skiptafundi kemur fram krafa af hendi einhvers þeirra, sem hags-
muna hafa að gæta af framvindu tiltekins málefnis, og andmæli koma
fram gegn kröfunni af hendi annars hagsmunaaðila. Takist skiptaráð-
anda ekki að jafna ágreininginn, tekur hann ákvörðun um, að rekið
verði sérstakt mál til að leysa úr honum. Er um leið tekin ákvörðun um,
hvernig háttað verði aðild hins væntanlega máls og þeim, sem kemur
til með að verða sóknaraðili þess, veittur frestur til að koma á fram-
færi greinargerð í málinu. Að þeim fresti liðnum er hið sérstaka mál
tekið fyrir fyrsta sinni, og mætti orða það svo, að málið teljist þá þing-
fest. Frá þeim tíma er hið sérstaka mál rofið úr tengslum við skipti
búsins, að því athuguðu, að meðan ágreinirigsefninu hefur ekki verið
endanlega ráðið til lykta, getur það fyrirbyggt, að búskiptin fái eðli-
lega framvindu. Slíkt er hverju sinni háð eðli ágreiningsefnis og um-
fangi. Með því að tengsl hafa verið rofin milli hins sérstaka máls ann-
ars vegar og búskipta að öðru leyti hins vegar, verður ágreinirigsefnið,
sem tekið hefur verið til sérstakrar meðferðar, einangrað með öllu
frá þeim atriðum búskiptanna, sem enga þýðingu geta haft fyrir úr-
lausn þess. Gögn, sem lögð hafa verið fram við opinber skipti búsins,
teljast þannig ekki sjálfkrafa framlögð í hinu sérstaka máli. Aðskiln-
aður þessi hefur það einnig í för með sér, að ágreiningsmálið annars
vegar og búskiptin hins vegar eru tekin fyrir hvort í sínu lagi fyrir
rétti, enda gilda gerólíkar reglur um framvindu hvors málefnis um
sig. Er búskiptum upp frá þeim tíma fram haldið, eins og ágreinings-
efnið hefði ekki komið fram, með þeim takmörkunum einum af völd-
um skiptaréttarmálsins, að við skiptin verði ekkert gert, sem stangast
gæti á við hugsanleg málalok í því.
Aðdragandi að sérstöku skiptaréttarmáli getur verið með nokkuð
öðrum hætti en nú hefur verið lýst. Ágreiningur getur komið fram á
þann hátt, að hagsmunaaðili telji meðferð skiptaráðanda á búi brjóta
með einhverjum hætti gegn réttindum hans, eða skiptaráðandi vísar á
bug sem löglausum einhverjum kröfum, sem bornar eru fram við skipt-
in, án þess að annar hagsmunaaðili vilji láta slíkar kröfur til sín taka.
Er því í tilvikum sem þessum ekki um skiptaréttarmál að ræða vegna
ágreinings milli hagsmunaaðilja að búskiptunum, heldur vegna þess
að slíkur aðili vill ekki una við afstöðu skiptaráðanda til ákveðins atrið-
is. Varnaraðili undir þessum kringumstæðum yrði talinn vera viðkom-
63