Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Síða 79
„Þrátt fyrir orðalag 199. gr. siglingalaga þykja stefnendur ekki
eiga rétt til björgunarlauna, sbr. 41. gr. sjómannalaga, svo og 51.
gr. sömu laga og 42. gr. siglingalaga, en óumdeilt er, að þeir hafa
fengið greitt fyrir störf í þágu útgerðar Reynis GK-177 umrætt
tímabil, er þeir voru ekki lögskráðir.“
Rétt er að geta þess að hér er vísað til siglinga- og sj ómannalaganna
frá 1963. Efnislegar breytingar eru hins vegar ekki slíkar í lögunum
frá 1985 að hagga myndi þessari niðurstöðu.
Stefnendur, að skipstjóranum undanskildum, vildu ekki una héraðs-
dómi og áfrýjuðu til Hæstaréttar. Meirihluti réttarins, fjórir dómarar
af fimm, komst að sömu niðurstöðu og héraðsdómur. I dómnum segir
orðrétt:
„Eigi verður talið, að áfrýjendur hafi í björgunaraðgerðum sín-
um í umrætt sinn gengið lengra heldur en starfskylda þeirra sem
skipverja á m/b Reyni GK 177 bauð þeim.
Með þessari athugasemd, en að öðru leyti með skírskotun til
forsendna hins áfrýjaða dóms, þykir mega staðfesta hann . .. “.
Einn dómenda skilaði sératkvæði og segir þar m.a. orðrétt:
„Þótt ráðningu áfrýjenda til starfa á m/b Reyni hafi ekki verið
slitið er umræddur atburður gerðist þá höfðu þeir verið afskráð-
ir og gengu ekki til ákveðinna starfa við skipið. Þeir tóku ekki
föst laun en fengu greidd laun fyrir störf sín í þágu útgerðarinn-
ar sem tímavinnu. Fram er komið að vél skipsins var ekki í gangi
er þetta gerðist.
. . . Ég tel stöðu áfrýjenda gagnvart skipinu og útgerð þess
ekki hafa verið slíka að þeir séu útilokaðir frá að krefjast björg-
unarlauna.“
III
Vert er að geta þess að í þessu máli var ekki krafið um björgunar-
laun vegna Víðis II. Krafa um björgunarlaun vegna hans horfir öðru-
vísi við.
Á það reyndi ekki heldur í málinu að hve miklu leyti þeir er veittu
skipverjunum aðstoð við björgunarstarfið hefðu átt rétt á björgunar-
launum. Þeim aðilum verður að játa rétti til bj örgunarlauna jafnvel
þótt aðalmenn við björgunarstarfið séu útilokaðir frá því að krefja um
björgunarlaun, eða þurfi að uppfylla þrengri skilyrði til að fá björg-
unarlaun.
73