Ægir - 01.03.1995, Síða 9
Höfum náð að standa saman
Er enn aö finna innan LÍÚ þá togstreitu
sem leiddi til ráðningar þinnar og gœtir kyn-
slóðabils innan samtakanna?
„Togstreitan hefur alltaf verið fyrir hendi.
Við höfum nú vinnsluskipin sem eru sér-
stakur hópur, rækjuskipin sem hafa stóreflst
á síðustu árum og loðnuflotinn er sérstakur
hópur sem hefur þurft að sinna. Við heyrum
enn að það eigi að taka heimildir af loðnu-
flotanum og það þarf að hlusta á sjónarmið
þeirra sem gera út smærri báta. Okkar gæfa
er sú að við höfum alltaf leyst okkar innan-
hússvandamál hér og komið fram gagnvart
stjórnvöldum sem einn aðili.
í stjórn LÍÚ er meira en helmingur eig-
enda að frystitogurum og þetta er eitt af því
sem þarf að gæta að. Við erum samtök allra
útgerða og við megum ekki fá það álit að við
gætum aðeins hagsmuna frystitogara. Við
verðum að hafa traust allra útgerðarmanna,
öðruvísi höldum við þessum samtökum ekki
saman.
Mér er minnisstætt að ég kom til Grimsby
eftir seinna þorskastríðið og sá þeirra mikla
togaraflota bundinn við bryggju. Þessi pláss,
Hull og Grimsby, áttu allt sitt undir íslands-
miðum rétt eins og íslensk sjávarþorp. Nú
tala ungir íslenskir útgerðarmenn um útrás
og það að komast inn í landhelgi hins og
þessa landsins eins og það sé sjálfsagður
hlutur. Ég man tvenna tíma og dreg frekar
úr þessu."
Aldrei góðir tímar í nútíðinni
Er gott að gera út togara í dag. Eru þetta
góðir tímar fyrir útgerðina?
„Ég minnist þess aldrei þann tíma sem ég
hef verið hérna að hafa heyrt menn tala um
góða tíma í nútíðinni. Stundum heyri ég
menn tala um góða tíma í fortíðinni og ég
reyni að rifja upp hvað var að gerast þá. Mér
er ekki annað í minni en að þetta hafi verið
eilíf barátta og greininni alltaf skömmtuð
skilyrði rétt yfir eða undir núllinu. Arið
1981 þegar mest var fiskað var afkoman
verst. En það hljóta aö hafa veriö góðir tím-
ar innan um þó magnið segi ekki alltaf alla
söguna. Við erum nú að sjá aukið aflaverð-
mæti þrátt fyrir samdrátt í afla sem sýnir að
fiskveiðistjórnunarkerfið er hvati til þess aö
menn geri sem mest úr þeim verðmætum
sem þeir hafa leyfi til að veiða."
Nú hefur þetta sama kerfi stundum verið
For Iceland we are looking for an:
AGENT / IMPORTER
to sell a very successful product for wall and ceiling panelling in
the food industry, used wherever they require the fullest
measure of hygienics. It is a system with panels, glue and
sections which are mainly used in places where formerly only
wall tiles were used, and it meets all E.E.C. requirements. For
more information please contact:
N.P.I. NEDERLAND B.V.
P.O. Box 150
3430 AD Nieuwegein
The Netherlands
Tel: +31 3402-65450
Fax: +31 3402-64587
BOSCH
ÞEGAR MEST Á REYNIR
DIESELVERKSTÆÐI
VARAHLUTAÞJÓNUSTA
BRÆÐURNIR
DJ ORMSSON HF
LÁGMÚLA 9 • SÍMI: 553 8825
ÆGIR MARS 1995 9