Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1995, Page 12

Ægir - 01.03.1995, Page 12
SJÁVARSÍÐAN VIÐ NÁNARI ATHUGUN ANNÁLL Níu frystihús vilja úreldingu Samkvæmt lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins er sjóönum ætlað að veita styrki til úreldingar fiskvinnsluhúsa ekki síður en úreldingar fiskiskipa. Þegar hafa verið veitt loforð fyrir úreldingarstyrkjum til fiskiskipaflotans samtals að upphæð rúmlega 4,3 milljarðar. Nú hafa Þróunarsjóðnum borist fyrstu fyrirspurnir um úreldingarstyrki til fisk- vinnsluhúsa. Að sögn Hinriks Greipssonar, starfsmanns sjóðsins, eru regiur um veitingu styrkja til fiskvinnsluhúsa í mótun. Stjórn sjóðsins er nokkur vandi á höndum því öfugt við úrelt fiskiskip sem skulu hverfa úr flotanum með einum eða öðrum hætti er málið ekki eins einfalt með fiskvinnsluhúsin. Verði veitt til úreldingar húsa má ekki framar vinna fisk í því sama húsi. Á hinn bóginn vill þróunarsjóðurinn ekki eignast úrelt fiskvinnsluhús svo útvega þarf kaupanda að húsi sem skal úrelda. Ennfremur þarf að liggja fyrir yfirlýsing þess efnis að húsið verði ekki notað til fiskvinnslu en vandséð er að slík kvöð geti fylgt húsinu um aldur og ævi. Þannig er ekki augljóst hvernig úrelding muni stuðla að því að hús- um fækki í greininni eins og þó er tilgangur með úreldingunni. „Þetta er ekki einfalt mál," sagöi Andri Teitsson hjá Kaupþingi Norðurlands en hann vinnur aö úttekt um málið fyrir þróunarsjóðinn. Níu umsóknir eða fyrir- spurnir hafa borist til sjóðsins frá aðilum sem ýmist eru staðráðnir í að hætta starfrækslu fiskvinnsluhúsa eða eru að kanna ýmsa möguleika í því sambandi. Þessar fyrirspurnir hafa komið frá Jökli hf. á Hellissandi, Stöð hf. á Grundarfirði, Fáfni hf. á Þingeyri, Freyju hf. á Suðureyri vegna fiskmjölsverksmiðju, Sundi hf. á ísafirði, Hólanesi á Skagaströnd sem jafnframt er stærst húsanna, Haraldi hf. á Dalvík, Fiskvinnslu Gylfa Baldurssonar á Árskógsströnd og Fiskabergi hf. í Húsa- vík. Ljóst er að umrædd fyrirtæki eru í mjög misjöfnu ástandi hvort sem horft er á aldur, umsvif eöa rekstrarlega stöðu. Þannig skilaði Hólanes hagnaði á síðasta ári meðan önnur fyrirtæki í hópnum eru í greiðslustöðvun vegna rekstrarerfiðleika eöa hafa þegar verið seld á uppboði. Þróunarsjóðurinn mun miða við markaðsverð húsanna þegar styrkur er ákvarðaður en hann verður þó aldrei hærri en 75% af fasteignamati og er þá aö- eins miðað við þann hluta húss sem beinlínis er notaöur til fiskvinnslu. Undan- skilin eru önnur mannvirki, svo sem skreiðarhjallar, vinnsluplön og hafnir. Fisk- vinnslan greiðir í sjóðinn 0,75% af mati fasteignar sem notuð er til fiskvinnslu. Tæki og vélar til framleiðsl- unnar falla ekki sjálfkrafa undir úreldinguna en sjóön- um er heimilt að kaupa tæki og skal þá miðað við 25% af andvirði þeirra. Viðkomandi vinnslustöð skal hafa fengið fullgilt vinnsluleyfi árið 1991 eða 1992 og skal vera veðbanda- laus en heimilt er Þróunar- sjóði skv. lögum að yfirtaka veðskuldir. Heimild laganna til þess að úrelda fiskvinnslu- stöðvar gildir út árið 1996. ■■ Sjómannasamband íslands, Hfl Farmanna- og fiskimanna- sambandið og Vélstjórafélag ís- lands boða aðgerðir til að hækka fiskverð með því að fá tilboð í all- an afla fiskiskipa hvort sem þau landa á markað eða ekki. Með þessu vilja samtökin leiða í ljós launamisrétti sjómanna sem búa við markaösverð og hinna sem eru í föstum viðskiptum. ■■ Seiðaskilja lögleidd á út- KiI hafsrækjuveiðum á stóru svæði úti fyrir Norðvesturlandi. Reglugerðin tók gildi 1. mars fyrir stærri skip en smærri skip fá frest til 1. maí. Um 40% rækjuaflans hafa fengist á þessu svæöi. ■V Örn KE kemur með full- KA fermi af loðnu og er fyrst skipa á vetrarvertíð til þess að ná loðnu að einhverju ráði og beitir til þess dýpri nót en aðrir hafa. ■9 Mikill viðbúnaður er uppi U vegna væntanlegrar loðnu- frystingar. Mörg fyrirtæki hafa tvöfaldað frystigetuna milli ára og loðnuskipið Júpíter mun flokka loðnu úti á sjó og selja til fryst- ingar. Grandi hf. býst til að bæta við 200 starfsmönnum þegar loðna berst þangað til frystingar. Fullyrt er að frystigetan sé komin langt fram úr markaðsþörfinni. BSjávarútvegsráðherra leggur til að netaveiðar báta undir 30 brúttótonnum verði bannaðar á tímabilinu nóvember til febrúar að báðum mánuðum meðtöldum. Fulltrúar þeirra sem slíkar veiðar stunda mótmæla hástöfum og telja gengið á rétt sinn til veiða. ■V Vinnslustöðin hf. í Vest- ■■ mannaeyjum kaupir Drangavíkina VE. Mikill styr hafði staðið um sölu skipsins á nauðungaruppboði en íslands- banki eignaðist skipið og selur það Vinnslustöðinni. ■H Rannsóknir sýna að kúf- ■H fiskstofninn fyrir Austur- 12 ÆGIR MARS1995

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.