Ægir - 01.03.1995, Side 20
Baröi NK kom til heimahafnar á Norðfirði í desember 1970. Hann var 327,59
lestir að stærð, smíðaður í Frakklandi. Barði telst fyrsti skuttogari í eigu
íslendinga og koma hans markaði upphaf byltingar í togaraútgerð.
setti svip sinn á fiskveiðarnar upp úr
1960. Þetta olli því að ofan á allt ann-
að varð mjög erfitt að manna togara
og setti það enn frekari svip hnignunar
á útgerð þeirra. í sjómannablaðinu
Víkingi er að finna þessa lýsingu á tog-
araáhöfn 1960:
„Nær helmingur hásetanna var ein-
hvers konar menntafóik, þar af tveir
barnakennarar, færeyskur háskólanor-
rænunemi, ungverskur fyrrverandi
bílaiðnaðarmaður, ungur lögfræðing-
ur, þrír gagnfræðaskólanemendur. Það
kostaði tveggja daga samfelldan aug-
lýsingaáróður í ríkisútvarpinu að hóa
saman í þennan ágæta hóp, á einn af
glæsilegustu togurum íslenska flot-
ans."
A þessum niðurlægingatímum vott-
aði þó fyrir nýsköpun þar sem Guð-
mundur Jörundsson gerði tilraun til að
gera togara sinn Narfa út sem frystitog-
ara í nokkur ár eftir 1965 og frysta
karfa um borð. Sú tilraun gekk þó ekki
sem skyldi.
Skuttogarabyltingin hefst
Barði NK 120 kom til heimahafnar í
Neskaupstað 14. desember 1970 og
telst vera fyrsti skuttogari í eigu Islend-
inga. Hann var keyptur notaður frá
Frakklandi þar sem hann var smíðaður
í Ateliers et Chanters de la Manghe
1967. Hann var 327,59 lestir ab stærb
með 1.200 hestafla Deutz abalvél.
Eftir að síldin hvarf af miðunum í
lok sjöunda áratugsins var fariö að
huga að endurnýjun togaraflotans og
beindust sjónir manna þá fyrst og
fremst að skuttogurum sem komu fyrst
fram á sjónarsviðið upp úr miðjum
sjötta áratugnum og má heita að smíði
síðutogara legðist af í heiminum um
1960. Fyrstu áform íslendinga um að
eignast skuttogara má rekja til ársins
1957 þegar tillaga um kaup á tveimur
slíkum skipum í tilraunaskyni dagaði
uppi í þinginu. Reyndar lagði Andrés
Guðmundsson vélstjóri fram hug-
myndir og líkan að skuttogara þegar
togaranefndin svokallaða auglýsti eftir
hugmyndum árið 1944 en fékk engar
undirtektir svo segja má að hugmynd-
in sé að stofni til islensk.
Með komu Barða til Neskaupstaðar
hefst skuttogaraöld á íslandi og má
halda því fram að hún standi enn.
Skuttogurum fjölgaði mjög hratt á ár-
unum milli 1970 og 1980 og snerust
nú hlutverkin við að nokkru leyti af því
útgerð þeirra var mikil á landsbyggð-
inni og forystuhlutverk Reykjavíkur ab
þessu leyti úr sögunni að sinni. Skut-
togarar þeir sem ruddu brautina voru
500-1.400 tonna ísfisktogarar og í stað
Bretlands áður var nú einkum leitað til
Noregs, Japans og Spánar eftir smíði
þeirra. Einnig vom skuttogarar smíðað-
ir á Akureyri og í Stálvík.
Síðutogarar voru áfram gerðir út en
fækkaði hratt eftir því sem leið á ára-
tuginn. Hinn síðasti var Harðbakur EA,
nýsköpunartogari sem var seldur í
brotajárn til Skotlands árið 1979.
Atvinnuuppbyggingu þeirri sem
fylgdi komu togaranna var stýrt með
pólitískum hætti í nafni byggðastefnu
og uppbyggingar á landsbyggðinni
gegnum Framkvæmdastofnun og hófst
nú togaraútgerð á mörgum stöðum þar
sem hún hafði aldrei þekkst áður.
Stjórnvöld stýrbu smiðinni með leyfis-
veitingum og lánafyrirgreiðslum.
Eins og oft áður var uppbyggingin
hröð og var t.d. í árslok 1972 búið ab
semja um smíbi á 49 togurum sem var
skipt milli kjördæma og fóru 8 til
Reykjavíkur, 7 til Norðurlands eystra
og sex til Vestfjarða og Austurlands.
Með þessari miðstýringu má segja
að reynt hafi verið að endurtaka ný-
sköpunarævintýrib. Eins og þá kom
fyrsta nýsmíðin til Reykjavíkur en það
var Vigri sem kom til heimahafnar 24.
september 1972. Hann var í senn fyrsti
nýsmiðaði skuttogari íslendinga og
fyrsti nýi togari Islendinga í 12 ár.
Samhiiða þessari stórfelldu upp-
byggingu voru útlendingar gerbir út-
lægir úr landhelgi íslands meb stór-
felldri útfærslu hennar, fyrst úr 12 míl-
um í 50 árið 1972 en síðar í 200 mílur
1974. Þorskastríðum vegna þessa lauk
með samningum árð 1976.
Óhætt mun að segja ab áratugurinn
1970 til 1980 hafi einkennst af mikilli
veibi, mikilli uppbyggingu og mikilli
verbbólgu. Þetta voru veltiár. í upphafi
árs 1980 setti sjávarútvegsráðuneytið
fyrstu reglugerð um takmörkun þorsk-
veiða. Með því hófst það tímabil tak-
mörkunar og stjórnunar fiskveiba sem
enn stendur og setur meiri svip á út-
gerð togara en nokkuð annab.
Allt í frost
Segja má ab skuttogaraöldin hafi
tekið á sig nýjan blæ í apríl 1982 þegar
Örvar HU kom til heimahafnar á
Skagaströnd. Örvar var smíðabur á Ak-
20 ÆGIR MARS1995