Ægir - 01.03.1995, Side 38
Hallgrímur í Ósey:
Orðin þörf á endurnýjun í bátaflotanum
Ósey hf. í Garðabæ hefur starfað frá 1987 og einkum
unnið að viðgerðum og þjónustu við bátaflotann. Fyrir
utan allar almennar viðgerðir, breytingar, lengingar og
hvað eina sem þurfa þykir, er fyrirtækið einna þekktast
fyrir Óseyjarspilin sem þar eru framleidd og eru nú kom-
in unt borð í meira en 40 skip og báta. Spilin eru af ýms-
um stærðum, allt frá 2x14 tonn niður í 2x5 tonn og eru
einkum vinsæl meðal snurvoðarbáta, dragnótabáta og
smærri trollbáta.
Hallgrímur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Óseyjar.
Spil í allt að 400 tonna báta
„Viö höfum sett spilin okkar um borð í allt að 400 tonna
báta svo það má segja að allur bátaflotinn sé okkar markaö-
ur að þessu leyti," sagði Hallgrímur Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Óseyjar, í samtali við Ægi.
Á listanum yfir breytingar á skipum sem fylgir þessari
grein eru þrír bátar sem Ósey annaðist meiriháttar breyting-
ar á á síðasta ári. Alls komu 12 bátar til viögerða hjá Ósey á
árinu en í flestum tilvikum var verið að setja m.a. spil um
borð sem telst ekki meiriháttar breyting.
Alverktakan hefur gefist vel
„Við höfum tekið þessar breytingar sem alverktakar,"
segir Hallgrímur. „Það hefur gefist okkur mjög vel. Við sjá-
um í rauninni um allt verkið en bjóðum út einstaka þætti
þess eftir hentugleikum hverju sinni, s.s. trésmíði, raflagnir,
slipptöku og ýmsa smíði. Þannig má segja aö við séum með
fyrirtækjanet á bakvið okkur og skiptum oft við sömu fyrir-
tækin hvað eftir annað og þannig kemst á mjög góð sam-
vinna og skilvirkt samstarf. Vélsmiöjan Orri í Mosfellsbæ
hefur unnið mikið með okkur, Rafboði hf. sér um rafmagn,
Brim hf. um tréverkið og fleiri nágrannar okkar taka þátt í
þessu."
Hallgrímur veitir Ósey forstöðu ásamt félaga sínum, Dan-
íel Sigurðssyni, sem annast teikningar og hönnun á þeim
breytingum sem fyrirtækið tekur að sér. Auk þeirra starfa 7
vélsmiðir hjá Ósey að smíði og samsetningu á spilunum og
viðgerðum og endurbótum á skipum.
Sókn í nýjar fisktegundir kallar oft á breytingar
„Sú jákvæða þróun er í gangi að margir útgerðarmenn
eru að láta gera ýmsar breytingar á skipum sínum. Þó kvóta-
kerfið hafi verið mörgum erfitt þá hefur það samt haft í för
með sér aö sókn í nýjar fisktegundir og aörar veiðar hefur
aukist og slíkt kallar oft á breytingar og viðhald. Hitt er svo
annaö mál að það er löngu tímabært að fram fari eðlileg
endurnýjun í bátaflotanum," segir Hallgrímur.
Úr 9 tonnum í tæp 60
Hann bendir á að þrátt fyrir úreldingu sé mikil eftirspurn
eftir bátum og þá sjaldan að þeir séu auglýstir til sölu veki
það mikla athygli. Sú tregða sem kvótakerfið felur í sér við
stækkun flotans kemur í veg fyrir eðlilega endurnýjun.
Margir láta þó stækka báta sína og endurbæta til þess að
auka veiðihæfni þeirra. Þetta á ekki síst við um 9,9 tonna
bátana sem margir létu smíöa í byrjun síðasta áratugar.
Mörgum slíkum bátum hefur verið breytt, m.a. hjá Ósey.
Dæmigerð slík breyting stækkar bátinn úr 9,9 tonnum upp í
rúm 30 tonn.
„Ég hef heyrt um einn svona bát sem var stækkaöur upp
í tæp 60 tonn," segir Hallgrímur.
Endurnýjunar er þörf
Hallgrímur bendir máli sínu til stuðnings á mikinn fjölda
trébáta á stærðarbilinu 20-35 tonn sem enn er að finna í
bátaflotanum og eru margir hverjir komnir talsvert til ára
sinna jafnvel orðnir 30-40 ára gamlir.
„Þetta eru falleg skip en þurfa mikið viðhald og það er
löngu kominn tími á endumýjun þessa hluta flotans."
Það er nóg að gera hjá Óseyjarmönnum og þó aðeins séu
liðnar 6 vikur af árinu þegar þetta er ritað hafa þegar komið
4 bátar við sögu fyrirtækisins þaö sem af er árinu. En hvern-
ig blasir framtíðin við Hallgrími?
„Við höfum mikiö velt fyrir okkur að fara út í nýsmíði.
Það er ákveðin þörf fyrir slíkt. Við höfum horft á 30-40
tonna bát sem væri að mörgu leyti heppileg stærö en við
myndum fara í slíkt verkefni sem alverktakar og því eru
stærðinni lítil takmörk sett í reynd. Þetta hefur ekki orðið
að alvöru hjá okkur, fyrst og fremst vegna þess að við höf-
um ekki haft tíma.
En við erum bjartsýnir. Bátaútgerðin á íslandi stendur
nokkuð traustum fótum og meðan hún gengur vel þá geng-
ur okkur vel." □
38 ÆGIR MARS1995