Ægir - 01.03.1995, Qupperneq 42
gistingu meðan á dvölinni stendur,"
sagði Sigurður.
Kunnátta og verkþekking
getur tapast
„Auðvitað getum við alveg lifað á
því að sinna smærri viðhaldsverk-
efnum og minniháttar breytingum.
En ef við fáum aldrei að smíða skip
þá verður þetta bara eins og hver
önnur vélsmiðja og þá tapast og
leggst af sú kunnátta og verkþekking
sem nauðsynlegt er að haldist á
staðnum og sé fyrir hendi í grein-
inni."
Nokkur verkefni Skipasmíða-
stöðvarinnar hafa falist í að stækka
svokallaða 9,9 tonna báta sem marg-
ir kannast við. Lengi vel var reglu-
gerö í gildi sem heimilaði bátum
undir 10 tonnum að vera undan-
þegnir kvóta. Þá var smíðaður mikill
fjöldi stálbáta sem voru mældir 9,9
tonn. Nú eru þessi bátar undir kvóta
eins og aðrir og þá hafa margir látið
endurbæta þá.
Reglugerðir og bátasmíði
„Það gengur ekki að láta reglu-
gerð stýra bátasmíði. Að okkar mati
voru þessir bátar aldrei nema hálf-
smíðaðir því hlutföllin í þeim voru
kolröng. Þeir voru langflestir of
grunnir og mjóir og við höfum haft
talsvert að gera undanfarin ár við að
breyta þessum bátum," sagði Sig-
urður.
Gott dæmi um bát sem gengið
hefur í endurnýjun lífdaganna í
Suðurtanganum er Stundvís IS sem
upphaflega var 9,9 tonna Stálvíkur-
bátur, smíðaður 1987. Hann var
lengdur um 3 metra, breikkaður um
0,8 metra og þilfar hækkað um 0,5
metra. Ný vél og stærri skrúfuhring-
ur bættust svo við og nýr og betri
bátur varð afraksturinn.
Komið í veg fyrir endurnýjun á
kostnað öryggis
Margir smærri bátar stunda
rækjuveiðar á ísafjarðardjúpi og inn-
fjörðum vestra. Algeng stærð á þess-
um bátum er 15-30 tonn og flestir
þeirra eru komnir til ára sinna og
standast tæplega þær öryggis- og
stöðugleikakröfur sem gerðar eru til
skipa nú. Betri bátar væru óhjá-
kvæmilega stærri og því hvíldi á eig-
endum sú skylda að úrelda
rúmmetrafjölda jafnan nýjum bát.
Þetta þýðir í framkvæmd að sá sem
vill eignast nýjan rækjubát getur
jafnframt þurft að kaupa gamlan bát
fyrir nokkrar milljónir til þess að
láta kerfið hafa nokkra rúmmetra í
„milligjöf".
Meðalaldur báta undir 30
tonnum er um 30 ár
„Meðalaldur báta undir 30 tonn-
um er um 30 ár og elsti báturinn hér
í Djúpinu er 64 ára. Við höfum mik-
ið reynt til að koma af stað nýsmíbi
í þessum flokki og nokkrir útgerðar-
menn væru tilbúnir að fara í ný-
smíði ef ekki væru þessar fáránlegu
úreldingarkröfur. Rækjubátar eru á
kvóta og því eykst ekki ásókn í
stofninn þótt þessi floti stækki í
rúmmetrum talið. Þarna koma regl-
urnar í veg fyrir naubsynlega endur-
nýjun og það á kostnað öryggisins.
Menn sitja fastir í kerfinu, bundnir
við þessa gömlu klafa," sagði Sigurð-
ur.
Átak í smíði nýrra skipa á íslandi
„Vib munum halda áfram að
reyna að koma á nýsmíbi þó horf-
urnar séu ekki góbar. Það er okkar
framtíö, að smíða skip. Menn eru
alltaf hræddir um ab nýsmíði teng-
ist offjárfestingu og aukinni sókn í
fiskinn en það þarf alls ekki að vera
þannig. Jafnvel þó flotinn minnki
og skipum fækki þá þurfa þau skip
sem eftir eru aö uppfylla eblilegar
kröfur nútímans.
Ég tel eðlilegt að ráðuneyti sjávar-
útvegs og ibnaðar ásamt fiskveiða-
sjóði sameinist um átak til að ís-
lenskir sjómenn geti fengið ný skip
smíðuð á íslandi. Það hlýtur að vera
lágmarkskrafa ab stunda þennan at-
vinnuveg á sæmilega nýjum og ör-
uggum tækjum. Menn verða ab ná
samstöbu um breytingar á þessu." □
6645 Hnoss KE 97
Lenging 1,31 m
Brúttórúmlestir úr 8,75 í 8,79
Brúttótonn úr 6,76 í 9,13
6686 Ingvar NK 38
Lenging 0,95 m
Brúttórúmlestir úr 6,03 í 6,73
Brúttótonn úr 4,86 í 6,05
6894 Inga GK 67
Lenging 0,74 m
Brúttórúmlestir úr 5,34 í 5,83
Brúttótonn úr 4,33 í 5,31
6925 Maístjarnan EA 105
Lenging 1,69 m
Brúttórúmlestir úr 5,05 í 5,35
Brúttótonn úr 3,71 í 5,86
6962 Bliki ÍS 879
Lenging 1,02 m
Brúttórúmlestir úr 8,30 í 9,23
Brúttótonn úr 7,61 í 9,43
7022 Kristín Finnbogadóttir BA 95
Lenging 0,63 m
Brúttórúmlestir úr 9,29 í 10,28
Brúttótonn úr 9,84 í 11,41
7263 Vestfirbingur BA 97
Lenging 1,28 m
Brúttótonn úr 3,39 í 4,77
9037 Ögn GK 158
Lenging 1,30 m
Brúttótonn úr 1,95 í 2,98
Vélaskipti í þilfarsskipum
Vélaskipti fóru fram í eftirtöldum
þilfarsskipum árið 1994. Heitnild:
Fiskifélag íslands, nema um stjömumerkt
skip, upplýsingar um þau em frá Vélorku
hf.
1068 Sæmundur HF 85
Ný vél: Volvo Penta 300 hö. 1994
Áður: Volvo Penta 290 hö. 1978
1103 OturEA 162
Ný vél: Caterpillar 408 hö. 1994
Áður: Caterpillar 408 hö. 1985
1396 Gunnvör ST 39
Ný vél: Cummins 240 hö. 1994
Áður: Cummins 200 hö. 1974
1581 Berghildur SK 137
Ný vél: Volvo Penta 300 hö. 1994
Áður: Volvo Penta 238 hö. 1987
1692 Gísli í Papey (vinnubátur)
Ný vél: Ford 200 hö. 1988 (notuð)
Áður: Scania 150 hö. 1975
- Bls. 44.
42 ÆGIR MARS 1995