Ægir - 01.03.1995, Blaðsíða 45
Aauamar
EIMARAR
Afköst 1-40m3á dag
Stuttur afgreiðslutími
og góð verð.'é
1
Grandagarði 5 • Reykjavík • sími 562 2950
MITSUBISHI
RAFSTÖÐVAR
MITSUBISHI diesel-
vélarnar taka mun
minna pláss en
flestar aðrar vélar-
tegundir, sé miðað
við afköst þeirra.
SPARNEYTINN OG TRAUSTUR AFLGJAFI
MDVÉLAR HF.
HVALEYRARBRAUT 32 • PÓSTHÓLF 209 • 222 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565-0020 • TELEFAX: 565-0022
Þorskur
tók tennur
í Fiskaren mátti í desember lesa frásögn af
hamingjusömum Hollendingi sem endurheimti
falskar tennur sínar eftir að hafa tapaö þeim. At-
vik máls vom þau að Cor Stoop reri til fiskjar frá
heimabæ sínum Heerhugowaard í Norður-
Hollandi. Veður var illt og sjór úfinn. Stoop var
sjóveikur og missti stellið í sjóinn þegar hann
kastaði upp.
Gleði sína og tennur tók hann aftur þegar
kona hans sá smáauglýsingu frá sjómanni í
Amsterdam sem kvaðst hafa fundið sett af tönn-
um í maga 10 kílóa þorsks. Stoop fór á staðinn
og heimti tönnur sínar á ný.
Sambærilegar flökkusögur í
gangi hér heima
Því skal ekki leynt að þessi saga hljómar ótrú-
lega og minnir nokkuð á svipaðar sögur sem
ganga manna á milli hér heima og taka á sig
ýmsar myndir.
Það er sagt um tvo trillukarla í Vestmannaeyj-
um að annar þeirra lenti í þessu sama óhappi, að
missa tennurnar fyrir borð í skyndilegu sjó-
veikikasti. Félagi hans sá sér leik á borði og næst
þegar þorskur var á öngli tók hann sínar eigin
fölsku tennur og laumaði þeim upp í þorskinn.
„Sjáðu tennurnar. Eru þetta kannski þínar,"
spurði hann þann tannlausa.
Sá tannlausi tók góminn með vantrúarsvip og
stakk þeim hikandi upp í sig.
„Nei. Þær passa ekki," sagði hann og reif þær
út og grýtti þeim fyrir borð.
Austfirskur sjómaður spjó eitt sinn tönnum
sínum í klósettið á síldarbát meðan legið var í
landi og beðið gæfta. Honum þótti að vonum illt
að tapa skoltum sínum og leitaði ásjár hjá vél-
stjóranum. Þeir félagar skiptu síban með sér verk-
um þannig að tannhafinn hélt háf við síðuna
meðan vélstjórinn lensaði úr klóaktanknum.
Tennurnar skiluðu sér auðvitað en mörgum
blöskraði ab sjá eigandann skola þær í háfnum í
sjónum og stinga þeim svo á sinn stað.
Gaman væri ef lesendur Ægis hefðu samband
vib okkur hafi þeir heyrt fleiri sögur af þessu tagi,
sannar eða skreyttar, gamansögur eða sögur með
alvarlegum tón. Síminn er 568 1225. □
ÆGIR MARS1995 45