Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1995, Blaðsíða 47

Ægir - 01.03.1995, Blaðsíða 47
Vilja geyma fiskinn lifandi í Noregi er unnið að rannsóknum á ýms- um aðferðum til þess að geyma nýveiddan fisk og eldisfisk lifandi alla leið á markaðinn. í mörgum tilvikum mætti margfalda verð- mætið með þessu. „Ferskur" norskur þorskur sem er seldur í fiskbúð í Þýskalandi getur í raun verið um þriggja vikna gamail. Með auknu þorskeldi og bættri tækni sem miöar að því að halda fiskinum lifandi lengur er talið að tryggja mætti jafnari gæði og hærra verð. Tilraunir beinast einkum að flutningsmáta í fiskiskip- um, þ.e. nýjum tönkum fyrir lifandi fisk og sérstökum geymslutönkum á móttökustað. Þar er reynt að lækka hlutfall þess fiskjar sem drepst vegna þess aö hann skaddast vegna þrýstingsbreytinga. Þaö að flytja fiskinn lifandi á markað er engin ný bóla. Rómverjar fluttu fisk lifandi til ystu marka heimsveldis síns. Fyrir 100 árum fluttu norskir fiskimenn á íslandsmið- um síðasta aflann í veiðiferðinni lifandi til lands í sérstökum hólfum með sjó. Skipin seldu aflann í Grimsby og fengu sérstaklega hátt verð fyrir þann fisk sem var ferskastur. Dæmi eru um að þorskur hafi verið veiddur í snurvoð og geymdur mánuðum saman lif- andi í nótinni. (Fiskaren feb. 1995) Norskir dæma þýska togara Þýska fyrirtækið Deutsche Fischfang Union hefur sótt um að endurnýja veiðileyfi togarans Cuxhaven í norskri efnahagslög- sögu. Cuxhaven var sviptur veiðileyfi eftir að norsk yfirvöld stóðu skipið að [tví að skjóta 25 tonnum af þorski undan kvóta. Auk leyf- issviptingar var aflinn gerður upptækur og útgerð skipsins dæmd til þess að greiða 2,1 milljónir norskra króna í sekt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Cuxhaven lendir í klóm norsku strandgæslunnar og frá 1987 hafa átta togarar þessarar sömu útgerðar verið færðir til hafnar af norskum yfirvöldum. (Fiskeri Tidende feb. 1995) Dýrir grænlenskir kvótar Evrópusambandið hefur gert nýjan fimm ára samning við Grænlendinga um veiðar sambandsins í grænlenskri fiskveiðilögsögu. Evrópusambandið mun borga Grænlending- um 3,3 milljarða ísl. kr. fyrir veiðiheimildir. Afli Evrópusambandsins í grænlenskri lög- sögu nam 95 þúsund tonnum árið 1994, eða 44% alls afla þar sem var samtals rúm 214 þúsund tonn. Fullyrt er í blaðinu Fiskeri Tidende aö þetta sé þrefalt það verð sem þyrfti að borga fyrir samsvarandi veiðiheimildir í t.d. íslenskri lögsögu. Við lauslega útreikninga sýnist þetta verða um 35 kr. á kíló, en fyrir skömmu var skýrt frá því í Morgunblaðinu að greiða þyrfti 90 krónur á kg í leigu á þorskkvóta við ísland. (Fiskeri Tidendefeb. 1995) Heimsmet í makrílveibi Skoska nótaskipið Altaire landaði í lok makrílvertíðarinnar 2.000 tonn- um í einu í Skagen í Danmörku og er fullyrt að það sé heimsmet í makríl- veiði. Skömmu áður hafði skipið landað 1.500 tonna farmi í Skagen sem þótti allgott. Fyrir metfarminn fengust 2,20 danskar krónur fyrir kílóiö eða 4,4 milljónir alls. Altaire er hálfs árs gamalt skip, 74 metra langt með sext- án manna áhöfn og kostaöi um 75 milljónir danskra króna. (Fiskeri Tidende feb. 1995) „FYRIR ALLAR FLOTTOGS VEIÐAR" J. HINRIKSSON H.F. SÚÐARVOGI 4 SÍMAR 581-4677/568-0775 104 REYKJAVÍK MYNDSENDIR 568-9007 „FRAMLEIÐENDUR TOGBÚNAÐAR í ÁRATUGI" FLOTTOGS HLERAR ÆGIR MARS 1995 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.