Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1995, Qupperneq 51

Ægir - 01.03.1995, Qupperneq 51
Vélakerfi dieselvéla: í skipinu eru tvaer Alfa Laval skilvindur af gerö MAB-103 B-24, önnur fyrir smurolíu- og hin fyrir brennsluolíukerfið. Ræsi- loftþjöppur eru tvær frá Atlas Copco af gerð LT 730, afköst 22 m3/klst við 30 bar þrýsting hvor þjappa. Fyrir véla- rúm og loftnotkun véla eru tveir raf- drifnir blásarar frá Nyborg af gerð MPV 450 Alk, afköst 8000 m3/klst hvor. Rafkerfi: Rafkerfi skipsins er 230 V, 50 Hz riðstraumur fyrir mótora og stærri notendur og til ljósa og al- mennra nota í ibúðum. Rafalar eru með samkeyrslubúnaði. I skipinu er 63A, 3 x 230 V landtenging. Kerfi fyrir vistarverur: Ibúðir eru hit- aðar upp með rafmagnsofnum. Fyrir heitt vatn er 200 1 heitavatnsgeymir frá OSO með 2 KW rafelementi. íbúðir eru loftræstar með rafdrifnum blásur- um frá Nyborg, fyrir innblástur er blás- ari af gerð MSV 180 Bl, afköst 2100 m3/klst, og fyrir eldhús og snyrtingar eru tveir sogblásarar, afköst 540 m3/klst hvor. Tvö vatnsþrýstikerfi frá Bryne Mek. Verksted af gerð BM 1134 eru fyrir hreinlætiskerfi, annað fyrir sjó og hitt fyrir ferskvatn, stærð þrýsti- geyma um 125 1. Vökvaþrýstikerfi: Fyrir hliðarskrúfur er sjálfstætt vökvaþrýstikerfi með 700 1 geymi og tveimur áðurnefndum véldrifnum dælum, sem drifnar eru af aðalvél um deiligír. Fyrir vindur, kraft- blakkar- og fiskidælubúnað er sjálf- stætt vökvaþrýstikerfi með 950 1 geymi og áðurnefndum fjórum véldrifnum dælum og rafdrifinni varadælu, Voith IPH 5/5-64/64, með 115 ha rafmótor. Stýrisvél er búin einni rafdrifinni vökvadælu. Kcelikerfi: Fyrir sjókæligeyma (RSW) er kælikerfi frá Kværner, kælimiðill Freon 22. Kæliþjöppur eru tvær stimp- ilþjöppur frá Hall-Thermotank af gerð V-92-6 Mkll, knúnar af 42 KW Newm- an rafmótorum, afköst 140000 kcal/klst (163 KW) við r- 5°C/ - /+ 25°C hvor þjappa. Fyrir kerfið er ein sjóhringrásardæla frá Allweiler af gerð NT 125-250/255, afköst 350 m3/klst við 10 m VS, drifin af 22 KW raf- mótor. íbúðir Almennt: íbúðir eru samtals fyrir 12 menn í þremur þriggja manna klefum, einum tveggja manna og einum eins manns klefa en einn þriggja manna klefinn getur verið með aukahvílu. íbúðir eru sameinaðar afturskips á þremur hæðum, þ.e. í káetu, á neðra þilfari og í þilfarshúsi á efra þilfari. Káeta: I íbúðarými undir neðra þil- fari (afturskipi) er einn þriggja manna klefi, (með aukahvílu). Neðra þilfar: í íbúöarými á neðra þil- fari er fremst s.b.-megin eldhús með matvælageymslu (ókæld) og borðsalur til hliðar, en þar fyrir aftan gangur og stigagangur, snyrting með salerni og sturtuklefa, þá vélarreisn og aftast einn tveggja manna klefi fyrir miðju og tveir þriggja manna klefar í b.b.-síðu. Tenging íbúða við milliþilfarsrými er um þvottaherbergi og þar framan við er þurrkklefi. Efra þilfar: í þilfarshúsi á efra þilfari er skipstjóraklefi, snyrting með salerni og sturtu og stigagangur ásamt lítilli geymslu. íbúðir eru einangraðar og klætt er með Fibotex klæðningsplötum. í eld- húsi eru kæliskápur og frystiskápur fyr- ir matvæli. Vinnuþilfar (milliþilfarsrými) Milliþilfarsrými framan við íbúðir er með sjókæligeymum upp að efra þil- fari fyrir miðju en gangar í hvorri síðu og „aðgerðar"- og snurpivindurými fyrir framan. í s.b.-gangi er lögn frá vakúmkút með stútum að sérhverjum sjókæli- geymi, en í b.b.-gangi liggur þrýsti- og soglögn að og frá einstökum sjókæli- geymum með tilheyrandi lokubúnaði. Rýmið framan við er án nokkurs bún- aðar til meðhöndlunar á afla. Loft milliþilfarsrýmis er einangrað og klætt með blikki. Fiskilestar (sjókæligeymar) Almeimt: Lestarými undir neðra þil- fari er skipt í tvö meginlestarými og er hvoru rými skipt með langskipsþilum úr stáli í þrjú hólf, þannig að samtals eru sex geymar í skipinu. Geymar þess- Lagnabúnaður í b.b.-gangi á milliþil- fari vegna sjóhringrásar í kæligeymum. Lagnabúnaður í s.b.-gangi vegna vakúmlosunardælu. ir framlengjast upp að efra þilfari, í sjálfu milliþilfarsrýminu, en það rými er mjórra og styttra. Milliþilfarsgeyma- rýmið tengist neðra rýminu án þilfars. Allir geymarnir eru útbúnir sem sjó- kæligeymar og fremra rýmið er einnig unnt að nýta sem hefðbundna lest og fyrir kassa. Frágangur, búnaður: Lestar eru ein- ÆGIR MARS 1995 51

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.