Ægir - 01.03.1995, Page 54
Er nýtt veiðistríð í vændum?
I>ann 15. febrúar sl. hélt
Fiskifélag íslands fund á
Hótel Sögu undir yfirskrift-
inni, „Er nýtt veiðistríö í
vændum?" Efni fundarins
var fyrirlestur Magnúsar
Guömundssonar kvik-
myndagerðarmanns um
starfsemi og starfsaðferðir
ýmissa friðunarhreyfinga
sem flestar kenna sig við
náttúruvernd og kallast í
daglegu máli grænar. Fund-
urinn var í alla staði vel
heppnaður og mjög fjölsótt-
ur, en ætla má að um 100
manns hafi komið á fund-
inn og að loknu erindi
Magnúsar urðu fjörugar um-
ræður.
Magnús er sá íslendingur
sem hvað mesta þekkingu
hefur á starfsemi þessara
hreyfinga og var þetta fyrsti
opinberi fyrirlestur hans hér
á landi um málefnið. Á
fundinum sýndi Magnús
brot úr myndum sínum svo
og nýtt efni úr væntanlegri
mynd. í máli Magnúsar kom
fram að í nútíma þjóöfélagi
þurfa samtök eins og t.d.
Greenpeace að markaðssetja
sig og finna málefni sem
höfða til fjöldans tilfinn-
ingalega svo fjárframlög skili
sér. Því eru málefnin valin
með tilliti til þessa en ekki
vegna mikilvægis náttúr-
unnar. Einnig eru aðferðir
við veiðar gerðar villimann-
legar og kallaðar ómannúð-
legar, en undirrituðum er
spurn, hvenær er dráp,
hvort heldur er á veiðidýri
eða húsdýri, mannúðlegt? í
öllum tilfellum deyr dýrið
og tilgangurinn er að nýta
54 ÆGIR MARS 1995
kjöt, feld eöa aðra hluta
skrokks þess til matar,
klæðnaðar eða annarra nytja
í daglegu lífi okkar allra. Ætli
topp fyrirsætur heimsins
hættu ab ganga í leðurskóm
eða skóm með leðursólum
þó hástemmdar yfirlýsingar
komi frá þeim um að þær
gangi ekki í loöfeldum, en
eru þetta ekki sömu hlutirn-
ir, þ.e. skinn dýra sem hefur
hlotið mismunandi með-
höndlun? Við á íslandi erum
ekki komin mjög langt inní
borgarsamfélagið þannig aö
við vitum flest að maturinn
sem við neytum er kominn
af dýrum sem leidd voru til
slátrunar og slátrun merkir
að dýr er deytt. Þetta virðast
borgarbúar og íbúar stóru
borgarsamfélaganna ekki
skilja og fara bara út í búð
að kaupa kjúklingabringu,
nautasteik eða fisk. Fiskur er
hér viljandi nefndur síðast
og er það vegna þess ab
hlutfallslega er neysla hans
mun minni er kjötafurða í
okkar vestræna samfélagi.
Það er því í lagi að rábast á
fiskinn því tiltölulega fáir
verða þess varir og fólk
breytir auðveldlega yfir í
aðra vöru, eins og kjúklinga.
Allt annað mál væri að ráð-
ast á kjúklingaframleiðslu
eða nautgripabændur því
þar kemur baráttan beint
niður á lífskjörum almenn-
ings og þar er máttur pen-
inga og fólksfjölda svo mik-
ill að þrátt að aðferðir við
uppeldi og slátrun séu varla
flokkaðar undir „mannlega
gæsku" er þessi iðnaður lát-
inn í friði því hann höfðar
ekki til fólks og kemur jafn-
framt við budduna hjá því,
þannig að fjárframlög til
slíkrar baráttu eru torsótt.
Það eru því villtir fuglar,
hvalir, villt smádýr og
aumkunarverð selsaugu, sem
alla bræða, sem eru efst á
lista þessara grænu samtaka
þannig að peningar til bar-
áttunar haldi áfram að
streyma inn.
En snúum okkur að fisk-
veiðum. Græningjar í
Bandaríkjunum hafa náb
því fram að allar netaveiðar
eru bannaðar í Kaliforníu,
og mörg hundruð útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtæki fóru
á hausinn vegna þess, og nú
er barist þar fyrir því ab
banna einnig troll, dragnót
og línu og allt vegna þess ab
blessuð dýrin hafa ekkert að
éta og það verður ab geyma
fiskinn í sjónum fyrir þau.
Sömu sögu er að segja frá
Flórída. Þar hafa allar veiðar
í atvinnuskini verið bannab-
ar. Um 6000 fyrirtæki fóru á
hausinn á einni nóttu er
bann þetta gekk í gildi sl.
haust. Þannig er hringurinn
smám saman þrengdur og
þegar öll strandríki Banda-
ríkjanna hafa bannað at-
vinnufiskveiðar er hægt ab
beita lögum um innflutn-
ingsbann á þær afurðir sem
unnar eru úr fiski sem
veiddur er í bönnuð veiðar-
færi og þá held ég að heyrð-
ist hljóð úr horni frá okkur
íslendingum.
En það er ekki bara þetta,
heldur er unnið markvist að
því að þessi samtök ráöi yfir
eða hafi afgerandi ráðgjafar-
vald um nýtingu fiskstofna,
vegna þess að fiskimönnum
sé ekki treystandi fyrir slíku,
þeir séu búnir að ofveiða all-
flesta fiskstofna jarðar og því
sé þeim ekki treystandi. í
reynd held ég að ef þeir
grænu réðu væru fiskarnir
einungis til sýnis og skoðun-
ar fyrir manninn, en að öðru
leyti fæba fyrir hval, sel og
fugla.
Það er skoðun mín, og
samsvarandi skobanir hafa
komið ítrekað fram á undan-
förnum Fiskiþingum, að
eblilegt sé að allar auðlindir
hafsins séu nýttar þannig að
jafnvægi sé í hafinu, þ.e.
veiða verður sjófugla, sel og
hvali eins og hver önnur dýr
sem í sjónum lifa. Það er
einnig ljóst að íslendingar
byggja velferð sína á því sem
úr hafinu kemur og verða
því að standa vörð um auð-
lindir þess. Það er þess vegna
sem íslendingar vilja ráða
sjálfir yfir sínum auðlindum
og frábiðja sér afskipti sam-
taka á borð við grænfrið-
unga af þeim málum. Við
höfum reynsluna af hvaln-
um og nú, þrátt fyrir vís-
indaleg gögn og aðrar áþreif-
anlegar sannanir um að
óhætt sé að veiða hvali,
leggjast þessi samtök gegn
því. Vib vitum hvaða
skemmdarstarfsemi var unn-
in á mörkuðum fyrir selaaf-
urðir. Það er ljóst að sams
konar abferðum er beitt nú
gegn fiskveiðum. Við
íslendingar verðum að koma
í veg fyrir aö slíkt endurtaki
sig.
Bjami Kr. Grímsson