Ægir - 01.10.1995, Side 12
SJAVARSIÐAN
VIÐ NÁNARI ATHUGUN
Hvað verður um síldina?
„Frá mínum bæjardyrum séö er ekkert sem mælir gegn því að vinna allan síldar-
afla íslendinga til manneldis. Norðmenn selja 500 þúsund tonn til manneldis og
því skyldum við ekki geta gert eins og þeir," sagði Ágúst V. Sigurðsson yfirverkstjóri
hjá Borgey á Hornafirði í samtali við
Ægi. Síldarvinnsla hjá Borgey er kom-
in í fullan gang og ætlun þeirra er að
taka á móti 20 þúsund tonnum á ver-
tíðinni.
Síldveiðin hefur farið rólega af stað á
þessari vertíð. Á síðustu síldarvertíð
voru veidd 134 þúsund af Suðurlands-
síld og á þessu fiskveiðiári lagði Haf-
rannsóknastofnunin til að leyfð yrði
veiði á 110 þúsund tonnum sem teld-
ist vera nálægt kjörsókn. Úthlutaður
síldarkvóti er 125 þúsund tonn.
Á síðustu síldarvertíð var saltað í tæp-
lega 140 þúsund tunnur sem var rúm-
lega 45% aukning frá vertíðinni þar á
undan og rúmlega tvöfalt meira en saltað var tveimur árum áður. Þarna munaði
mestu um að Rússlandsmarkaður opnaðist á nýjan leik en viðskiptin við Rússana
lögðust nær af um tíma eftir hrun Sovétríkjanna.
Sú breyting hefur nú orðið á að tvö af mikilvægustu markaðslöndum íslands, Sví-
þjóð og Finnland, hafa gerst aðilar að Evrópusambandinu sem þýðir jafnframt að
þessir markaðir eru komnir inn fyrir tollmúra Evrópusambandsins. Við undirritun
samnings um aðild íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, EES, var talið að tollur á
krydd - og ediksverkuðum síldarflökum félli niður til landa innan Evrópusambands-
ins. Þetta hefur ekki gengið eftir heldur hefur íslendingum verib boðinn ákveðinn
tollkvóti til ESB-landanna á þessum afurðum. Þetta þýbir að samkeppnisstaða ís-
lands á mikilvægum mörkubum er erfið og verri en hún var fyrir undirritun samn-
ingsins.
„Við missum ekki markaðina," sagði Ágúst, „ en eftir því sem tollkvótinn er
minni því minna verð fáum við fyrir síldina."
Viðræður um sölu á saltsíld til helstu viðskiptalanda okkar hafa stabið yfir að
undanförnu. Framboð hefur aukist talsvert vegna þess að bæði Rússar og Norðmenn
hafa aukið veiðar sínar úr norsk-islenska síldarstofninum. Helsti ásteytingarsteinn-
inn hefur verið tollfrjáls kvóti til landa ESB. Sibasta tilboð ESB hljóðaði upp á toll-
frjálsan kvóta upp á rúmlega 4.000 tonn en það svarar til útflutnings íslendinga til
Svíþjóðar, Austurríkis og Finnlands á síðasta ári. Tilboöib gerir ekki ráð fyrir að kvót-
inn verði bundinn við innflutning til einstakra landa og því er ekki hægt að tryggja
viðskiptaaðilum í Svíþjóð og Finnlandi tollfrelsi. Þessi togstreita og óvissa hefur leitt
til þess að nokkrir samningar hafa verið gerðir með fyrirvara um að samningar náist
um tollfrelsi.
Síldarútvegsnefnd segir að óvissa ríki á rússneska markaðnum vegna aukins fram-
boðs og hækkunar innflutningsgjalda þar eystra.
Vonir eru bundnar vib að framleiðsla á frystri síld aukist töluvert milli ára en fyr-
irtæki og útgerðarmenn leggja stöðugt meiri áherslu á síldveiðar til manneldis og
em smátt og smátt að auka tækjakost sinn bæði til sjós og lands.
ANNÁLL
Vib kvótaúthlutun kemur í
Hfl ljós að breyttir verðmæta-
stuðlar raska samanburði milli ára.
Þannig er t.d. kvótahæsta útgerð
landsins, Grandi hf., með fleiri
tonn en á síðasta ári mælt í
þorskígildum en í raun hefur fyrir-
tækið 2.280 tonnum minni kvóta
en á síðasta ári. Þetta skapast m.a.
af því að nú er karfinn reiknaður
verðmætari í þorskígildum en áður
var en Grandi á mikinn karfakvóta.
■H| Nálega 20 þúsund tonn af
la kvóta falla ónotuð milli
skips og bryggju þegar nýtt kvótaár
gengur í garð. Þar munar mestu
um rúmlega 10 þúsund tonn af
ufsa og tæplega 1.500 tonn af
humri sem náðist ekki ab veiða.
■■ Við kvótaúthlutun til króka-
Kl báta eftir nýjum reglum
kemur í ljós að 400 smábátar á
krókaleyfi hafa valið aflahámark og
hæstur þeirra er Óli Bjarnason EA
279 frá Grímsey sem má veiöa 137
tonn af óslægðum þorski.
Smáey hf. í Vestmannaeyj-
um kaupir Tjaldanes ÍS af
Hólmgrími Sigvaldasyni í Grinda-
vík ásamt tæplega 60 tonna kvóta.
Tjaldanesið er 150 tonna stálskip
ríflega 30 ára gamalt og komst í
fréttir fyrr á árinu þegar eigendur
þess gengu á svig við lög um stjórn
fiskveiöa.
Pi Sæmundur Árelíusson á
Brjánslæk á Barðaströnd tek-
ur á leigu 65 metra langan úthafs-
togara sem fara á til rækjuveiða á
Flæmingjagmnni. Skipstjóri verður
Gubjón Arnar Kristjánsson for-
maður Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands.
VI Þrír spænskir togarar á leið
til úthafskarfaveiða á Reykja-
neshrygg koma til Reykjavikur og
ná í flottroll og hlera og fleira til
veiðanna. Talið er ab þetta marki
upphaf aukinnar þátttöku Spán-
verja í veiðum á karfanum á
Reykjaneshrygg.
12 ÆGIR