Ægir - 01.10.1995, Side 13
SJAVARSIÐAN
SEPTEMBER
HJV Jóna Eðvalds kemur með
■Aii fyrsta síldarfarminn á vertíð-
inni til Hornafjarðar. Síldin fer öll í
beitu en mikill skortur hefur verið á
beitusíld í landinu um langt skeið
og selst innflutt norsk síld á 44
krónur kílóið.
■VI Gífurleg eftirspurn er eftir
■II síldarkvóta og em um þessar
mundir boðnar um 4 krónur í kíló-
ið sem mörgum þykir hátt. Mjög
ólíklegt er að meira en 6-7 krónur
fáist fyrir kílóið af síld til bræðslu og
því telja margir útilokað að endar
náist saman á þessum forsendum.
MJ9 Fiskvinnsluskólinn í Hafnar-
flrði settur við hátíðlega at-
höfn. 17 nemendur hefja nám í
skólanum sem nú starfar með nýju
sniði og á nýjum forsendum. Skól-
inn verður rekinn í samvinnu við
Flensborg í Hafnarfirði. Þetta er
tveggja ára tiiraun.
■■■ Fiskmarkaður ísafjarðar miss-
■Afel ir starfsleyfi sitt eftir að upp-
lýst er þátttaka hans í kvótasvindli.
Svindlið snýst um 13 tonn af þorski
sem Gunnbjörn ÍS frá Bolungarvík
landaöi á markaðnum og voru
skráð sem ufsi og seld þannig til
Grindavíkur.
■Pl Upplýst um ólöglega kvóta-
■fii sölu Ósvarar í Bolungarvík ti!
þýska fyrirtækisins Lubbert. Frosti í
Súðavík flækist í málið og það verð-
ur síðan til þess að íslandsbanki
neitar að selja Frosta hlutabréf
bankans í rækjuverksmiðjunni Rit á
ísafirði.
■>■ Samkvæmt samkomulagi að-
■■■ ildarþjóða NAFO, Norður-
Atlantshafsfiskveiðiráðsins, verður
rækjuveiöi á Flæmska hattinum háð
sóknarstýringu hér eftir og íslend-
ingar fá leyfi fyrir 18 skip sem þurfa
ab skipta með sér 1200 veiðidögum.
Sjómenn og útgeröarmenn er æva-
reiðir og telja íslensk stjórnvöid
hafa sofiö að verðinum en abeins
einn fulltrúi sótti fundinn fyrir
hönd íslands.
MAÐUR MÁNAÐARINS
Maður mánaðarins er Einar Svansson sem vakti mikla athygli fyrir erindi sitt
um styrkjakerfi ESB og Noregs á fundi Samtaka fiskvinnslustöðva í Hveragerði 22.
sept. Verðum við að ganga í ESB eða taka upp íslenskt styrkjakerfi Einar?
„Þab er dálítið einföldun en miðað við stöðuna nú væri skynsamlegast fyrir
íslensk sjávarútvegsfyrirtæki að stunda veiðar við ísland en vera með vinnsluna úti
í Evrópu og fara þannig bakdyramegin inn í ESB án s
þess að fórna veiðiheimildunum," sagði Einar í «
samtali við Ægi. Erindi hans er afrakstur langra
rannsókna hans og annarra. Einar sagðist þó varla
hafa gert sér grein fyrir umfangi styrkjakerfisins fyrr
en á síðustu stigum rannsóknarinnar.
„Annað sem er umhugsunarefni er hvort íslensk
fyrirtæki eru að leita langt yfir skammt með útgerð í
Suður-Ameríku og víðar. Kannski eru betri tækifæri
hér miklu nær innan norska styrkjakerfisins eða í
ESB. Þar er unrhverfið miklu hagstæöara og það ber
að líta á það sem tækifæri fremur en hindrun í sam-
keppninni."
Einar sagði marga hafa haft samband við sig eftir fundinn og menn hefðu ýmist
verið skelfingu lostnir eða fullir áhuga á nýjum tækifærum.
„Við hjá Skagfirðingi á Sauðárkróki munum rannsaka ítarlega möguleika okkar á
þessu sviði í fullri alvöru."
Einar Svansson er fæddur í Reykjavík 1. júlí 1958, sonur hjónanna Svans
Jóhannessonar og Ragnheiðar Ragnarsdóttur. Segja má að í æðum hans renni
skáldablóð því föðurafi hans var Jóhannes Jónasson skáld úr Kötlum, en móðurafi
Ragnar Helgason frá Hlíð í Álftafirði vestur, en hann var rómaður hagyrðingur.
Einar útskrifaðist úr Fiskvinnsluskólanum 1981 og fór til starfa sem verkstjóri
hjá einu af fjórum fyrirtækjum á Sauðárkróki sem fengust viö botnfiskvinnslu
og/eða útgerð. Hann er nú framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar-Skagfirðings sem varð til
þegar þessi fjögur fyrirtæki sameinuðust.
ORÐ í HITA LEIKSINS
„Þessir stuðlar eru viss sjónhverfing stjórnvalda en það er hægt að vera meö ýmsa
stuðla til að fá út aukningu í þorskígildum talið." Sverrir Leósson formaður Út-
vegsnrannafélags Norðurlands skýrir út verðmætastuðla fisktegunda í Degi.
„Þaö vekur hjá manni ugg að horfa á eftir öllum þessum kvóta og maður spyr sig
hvort Vestfjarðaöstoðin sé að skila sér ..." Kristján Gunnarsson bæjarfulltrúi í
Reykjanesbæ gagnrýnir skipasölu til Vestfjarða í Víkurfréttum.
„Þessir embættismenn og kommissarar, eða með öðrum orðum blýantsnagarar,
gera lítið sem ekkert til þess að halda okkar hiut." Guðmundur Óli Scheving vél-
stjóri skammar ráðalausa ráðherra í Fiskifréttum.
„Ef við fáum ekki fiskinn deyr byggðin hérna." PÉtur Bjarnason fræðsiustjóri og
fyrrum þingmaður á Vestfjöröum í viðtali við BB.
„Sums staðar þarf hann að taka á sig allar heimsins syndir en þannig er það ekki hér."
Valdi kokkur á Erlingi SF 65 lýsir hlutskipti kokksins fyrir Eystrahomi á Hornafirði.
ÆGIR 13