Ægir - 01.10.1995, Side 39
hjá nýveiddum fiskum en fölnar fljótt
í geymsluvökvum og verður grár eöa
hvítur.
Geislar B: 19-22, R: 15-18, E: 13-14,
K: 6, fjöldi hryggjarliða er 40-43 og
tálknbogatindar eru 5-6+14-16.
Heimkynni: Rauðskinni hefur m.a.
fundist í Mexíkóflóa, undan SV-Afríku,
við Madagaskar og í norðvestur Kyrra-
hafi. Þá hefur einn fundist á 1100
metra dýpi undan Fiskanesi við SV-
Grænland og tveir hafa veiðst suðaust-
ur af Hvarfi við Grænland. Þeir veidd-
ust báðir í flotvörpu íslenskra togara
árið 1994. Sá fyrri veiddist í júní á stað
sem næst 58°N og 35”46’V og var 22
cm langur. Hinn veiddist í júlí á
586-714 m dýpi á stað sem næst
57”50'N og 36”00'V. Hann var 33 cm að
sporði. Veiðiskip voru Örfirisey RE og
Haraldur Kristjánsson HF. Báðir þessir
fiskar eru varðveittir á Hafrannsókna-
stofnun. i maí á þessu ári veiddist síðan
fyrsti rauðskinninn sem vitað er um á
íslandsmiðum. Hann veiddist í flot-
vörpu Breka VE djúpt SV af Reykjanesi
(62”19'N og 29”43'V) á 714 metra tog-
dýpi (botndýpi var 1830 m). Hann var
37 cm langur. Þessi fiskur er varðveittur
í Náttúrugripasafni Vestmannaeyja.
Lífsliœttir: Miðsævis-, úthafs- og
djúpfiskur sem lítið er vitað um. Þeir
fiskar sem veiðst hafa á norðurslóð
fengust á 600-1100 metra dýpi og fisk-
ar veiddir undan ströndum S-Afríku
voru á 550-1500 metra dýpi.
Fiskar af sama œttbálki, Cetunculi
(Cetomimiformes), og rauðskinni sem
einnig hafa fundist á íslandsmiðum eru
rauðskoltur, Rondeitia loricata, og sæ-
greifar en af þeim hafa sennilega fund-
ist þrjár tegundir á íslandsmiðum (sæ-
greifi, margreifi og rauðgreifi).
Ætt: Þorskaætt, GADIDAE
Ósaþorskur, Arctogadus borisovi
Drjagin, 1932
Stcerö: 55 cm eða stærri.
Lýsing: Langvaxinn og hausstór fisk-
ur, jafnskolta eða með neðri skolt að-
eins lengra framteygðan en þann efri.
A neðri skolti er ein röð stórra tanna
og á miðskolti eru tvær raðir frekar
smárra og þéttstæðra tanna og eru
tennur í ytri röð nokkru stærri en þær
í innri röð. Á plógbeini og gómbein-
um er röð stórra tanna. Augu eru í
meðallagi stór. Hökuþráður á að sjást
en virðist geta vantað stundum.
Bakuggarnir allir þrír og raufaruggarn-
ir tveir eru frekar stuttir og gott bil er á
milli ugga. Eyr- og kviðuggar eru frekar
stuttir - ná ekki aftur að fremri rauf-
arugga. Rák er greinileg, ósamfelld og
liggur í sveig yfir eyruggum frá haus
og aftur á móts við rauf en þaðan aftur
að sporði er hún bein.
Litur er dökkleitur á haus baki og of-
anverðum hliðum með brúnum og
gulleitum blettum. Á neðanverðum
hliðum er liturinn dökkgrár og kviður
er ljósgrár með fjölda svartra depla.
Uggar eru gráir, raufaruggar eru Ijósari.
Geislar Bl: 11-12, B2: 18-21, B3:
21-24, Rl: 20-24, R2: 20-23, hryggjar-
liðir: 59, gelgjur 6(7), tálknbogatindar:
32-34.
Heimkynni: Norðan Síberíu á milli
70” og 80”N. Hefur einnig fundist
norðan Alaska og Kanada og e.t.v. víð-
ar.
Lífshœttir: Lifir bæði í sjó og í söltu
árósavatni.
Atluigasemd: Af þessari ættkvísl
þekkjast tvær tegundir, þ.e. ósaþorskur
sem lýst er hér á undan og ísþorskur,
A. glacialis. Heimkynni hans eru austan
og vestan Grænlands norðan 70°N og
norðan Kanada og Alaska. Auðvelt á að
vera að greina þessa fiska í sundur því
ósaþorskur á að vera með hökuþráð og
lóðrétt þvermál augna er 6,2-8,5% af
sk. „standard"-lengd, þ.e. lengd að
sporði en ísþorskur er án hökuþráðs og
þvermál augna er 8-11% af „standard"-
lengd. Þá getur ósaþorskur orðið 55-60
cm langur en ísþorskur verður ekki
lengri en 40-45 cm.
I janúar á þessu ári var okkur á Haf-
rannsóknastofnun sendur fiskur sem
við héldum fyrst ab veiðst hefbi í
„Smugunni" frægu í Barentshafi því
hann líktist svo ósaþorski í útliti. Með-
fylgjandi upplýsingar sýndu þó að tog-
arinn Stakfell ÞH hafði veitt fisk þennan
í botnvörpu þann 10. janúar á 275
metra dýpi á Fætinum svonefnda und-
an Suðausturlandi. Fiskurinn var 52 cm
langur og 1,2 kg á þyngd. Reyndar var
þessi fiskur frábrugbinn ósaþorski í því
að hökuþráð vantaði og engin merki
sáust þess ab hann hefði slitnað af. En
stærð fisksins, lögun og augnstærð, allt
var þetta í meira samræmi við ósaþorsk
en ísþorsk. Við munum því telja fisk
þennan vera ósaþorsk frekar en ísþorsk
þar til og ef annað kemur í ljós. Geta
má þess að 1954 eða 1955 veiddist við
SV-Grænland, skammt frá Narssaq, fisk-
ur sem líktist ósaþorski í öllu nema
hökuþráb vantaði. Þessi fiskur hefur
verið talinn vera ósaþorskur.
Ætt: Móruætt, MORIDAE
Stórriddari, Lepidion guentheri
Giglioli, 1880
Stœrð: 90-100 cm.
Lýsing: Hausstór fiskur og þykkvax-
inn um miðju en mjókkar aftur eftir.
Spyrðustæði er grannt. Bakuggi er tví-
skiptur og teygist fremsti geisli fremri
ÆGIR 39