Ægir - 01.10.1995, Qupperneq 45
Einar bendir á að auk almennra styrkja og lána frá Byggða-
stofnun sé starfræktur innan hennar sjóður sem nefnist
Statens nærings- og distriktudviklingsfond (Þróunarsjóður
matvælaiðnaðarins, skammtafað SND). Sá sjóður hefur til ráð-
stöfunar í styrki um 9,2 milljarða íslenskra króna í ár. Þar af
renna 4,6 milljarðar í fjárfestingarstyrki og 4 milljarðar í þró-
unarstyrki. Ekki renna þó allir þessir styrkir til fiskvinnslunn-
ar heldur fá önnur fyrirtæki í matvælaiðnaði hluta af þeim.
Auk þessa rekur SND lána- og hlutafjárdeildir þar sem fyrir-
tæki í sjávarútvegi eiga aðgang að lánum og áhættufjármagni.
Einar dregur þessa styrkveitingar saman og segir að ef
maður gefi sér að helmingur fjárfestingar- og þróunarstyrkja
frá SND renni til fiskvinnslu og fiskeldis geri það 4,2 millj-
arða íslenskra króna á ári. Við þetta bætast styrkir til útgerö-
arinnar sem Einar segir að séu 2 milljaröar en Sigbjörn
Lomelde segir að séu aðeins 1 milljarður og fari ört lækkandi.
En ef tölur Einars eru réttar nýtur norskur sjávarútvegur rík-
isstyrkja að upphæð 6,2 milljarðar íslenskra króna á ári. Þetta
er um 3% af veltu norsks sjávarútvegs og ef við heimfærum
það upp á ísland myndu stærstu fyrirtækin hér á landi,
Grandi og ÚA, fá um 100 milljónir króna í styrk á ári.
í erindi sinu dregur Einar ýmsar ályktanir af því hvernig
ríkisvaldið gerir við íslenskan sjávarútveg í samanburði við
það sem tíðkast í Noregi og öðrum Evrópuríkjum. Hér verð-
ur ekki farið nánar út í þá sálma en áhugasömum bent á að
nálgast erindið hjá Samtökum fiskvinnslustööva.
Litlibróðir olíunnar
En þótt norskur sjávarútvegur sé stöndugur um þessar
mundir þá er ekki úr vegi að benda á að hann er langt frá
því að vera í því aðalhlutverki í norsku efnahagslífi sem ís-
lenskur sjávarútvegur er hér á landi. Árið 1993 var heildarút-
flutningur vöru frá Noregi 206,2 milljarðar norskra króna.
Þar af nam útflutningur á fiski og sjávarafurðum tæpum 17
milljörðum eða 7% af heildinni. Olían er meira en helming-
ur af vöruúflutningnum, en verðmæti hennar var 116 millj-
arðar árið 1993, og bæöi málmar og vélar skiluðu meiri út-
flutningstekjum en sjávarafurðirnar.
Hins vegar er bjart framundan í norskum sjávarútvegi og
þar skín ljósiö skærast á fiskeldið sem nú skapar um það bil
helming útflutningsverðmætis sjávarafurða. Ef spár sérfræð-
inga rætast gætu verðmætin þrefaldast innan 10 ára og þá
verður sjávarútvegurinn orðinn næststærsta gjaldeyrislind
Norðmanna. □
<
RKS
GASSKYNJARAR
FYRIR FREON OG AMMONÍ AK
SPARNAÐUR
UMHVERFIS-
VÆNT
*
ISLENSKT
HUGVIT
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
Gasskynjararnir eru til þess að gera viðvart um leka í
fyrsti- og kælikerfum. Þeir eru gerðir fyrir erfiðar
aðstæður og henta vel I t.d. frystihúsum og
frystitogurum.
Þeir spara tíma, fé og fyrirhöfn
<
RKS Skynjaratækni
Borgarflöt 27 - 550 Sauðárkrókur
S: 453 6054 - Fax: 453 6049
MITSUBISHI
DIESELVÉLAR
MITSUBISHI diesel-
vélarnar taka mun
minna pláss en
flestar aðrar vélar-
tegundir, sé miðað
við afköst þeirra.
SPARNEYTINN OG
TRAUSTUR AFLGJAFI
ATH. NÝTT HEIMILISFANG
OG SÍMANÚMER
MDvÉLAR HL
FISKISLÓÐ 135 B • PÓSTHÓLF 1562 • 121 REYKJAVÍK
SÍMI: 561 0020 • FAX: 561 002
ÆGIR 45