Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1995, Side 47

Ægir - 01.10.1995, Side 47
rými) með fiskmóttöku aftast. Þar fyrir aftan er stýrisvélar- rými fyrir miöju og til hliðar við fiskmóttöku og stýrisvélar- rými eru verkstæði og vélarreisn s.b.-megin og geymsla og vélareisn b.b.-megin, og s.b.-megin aftantil á milliþilfari er stigagangur niður í vélarúm. Efra þilfar: Framantil á efra þilfari, s.b.-og b.b.-megin, em þil- farshús með gangi fyrir bobbingarennur þar á rnilli, opinn að aftan. í s.b,- þilfarshúsi er veiðarfærageymsla (um það bil hálf skipslengd) og aftast verkstæði. í b.b.-þilfarshúsi er íbúðarými. Aftast á efra þilfari, s.b. og b.b.-megin, eru skorsteinshús. Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og greinist hún í fjórar bobbingarennur, sem liggja í gangi og ná fram að stefni, þannig að unnt er að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbún- ar til veiða. Yfir afturbrún skutrennu eru toggálgar, en yfir frambrún skutrennu er pokamastur, sem gengur niður í skor- steinshúsin. Bakkaþilfar: Yfir þilfarshúsum og boggingagangi er hvalbaks- þilfar (bakkaþilfar), sem nær aftur að skipsmiðju og framleng- ist í síðum aftur að pokamastri og tengist toggálgapalli. Aftantil á heilu bakkaþilfari er yrirbygging, þ.e. íbúðarhæð í fullri breidd og þar ofan á brú skipsins. í afturkanti yfirbyggingar er hífingamastur og á brúarþaki er ratsjár- og ljósamastur. Vélabúnaður Framdrifts- og orkuframleiðsiukerfi: Aðalvél skipsins er frá Wichmann Motorfabrikk A/S, fimm strokka tvígengisvél með forþjöppu og eftirkælingu. Vélin tengist skiptiskrúfubúnaði frá Wichmann í gegnum vökvatengsli. Tæknilegar upplýsingar (aðalvél með skrúfubúnaði): Gerð vélar............................ 5AX Afköst................................ 1103 KW (1500 hö) Snúningshraöi......................... 375 sn/mín Hrabahlutfall......................... 1:1 Blaðafjöldi skrúfu.................... 3 Þvermál skrúfu........................ 1950 mm Snúningshraði skrúfu.................. 375 sn/mín Skrúfuhringur......................... Wichmann Við fremra aflúttak aðalvélar tengist deiligír frá Hytek af geb FGC-1250 með úttök fyrri vökvaþrýstidælur vindna. Dæl- ur tengdar deiligír eru tvær Brattvaag G16, sem skila 1800 1/mín hvor við 450 sn/mín og 40 kp/cm2 þrýsting. í skipinu eru þrjár Volvo Penta hjálparvélasamstæður. Tvær eru af gerð TMD-120 AK, 164 KW (223 hö) við 1500 sn/mín hvor, sem knýja 152 KW (190 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz riðstraumsrafala frá Stamford af gerð MC 434 D. Þriðja sam- stæðan er af gerð TAMD-71A, 116 KW (157 hö) við 1500 sn/mín og knýr 112 KW (140 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz rið- straumsrafal frá Leroy Somer af gerð LSA-46-MJ. í skipinu er olíukyntur miðstöðvarketill frá Pyro. Annar vélbúnaður: Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Tenfjord. í skipinu eru tvær Alfa Laval skilvinduraf gerð MAB 103 B-24, önnur fyrir smurolíu- og hin fyrir brennsluolíukerfið. Ræsiloftþjöppur eru tvær frá Sperre af gerð HL2/77, afköst 25 m3/klst hvor við 30 bar þrýsting. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blásarar. Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir mótora og stærri notendur og 220 V riðstraumur til ljósa og almennra nota í íbúðum. Aðalrafalarnir tveir em gerðir fyrir samkeyrslu. I skipinu er 380 V landtenging. Austurskilja er frá Fram af gerð CPS10 B. Fyrir geyma er tankmælikerfi frá Peilo Teknikk. í skipinu er ferskvatnsfram- leiðslutæki frá Atlas af gerð AFGU-l-E-7, afköst 5 tonn á sólar- hring. Fyrir vélarúm er Halon slökkvikerfi, og fyrir vinnslu- rými er þvottakerfi. íbúðir eru hitaðar upp með miðstöðvarofnum og loftræst- ar með rafdrifnum blásurum. Tvö vatnsþrýstikerfi eru í skip- inu (sjó- og ferskvatnskerfi). Fyrir vökvaknúinn vindubúnað eru áðurnefndar véldrifnar vökvaþrýstidælur, drifnar af aðalvél um deiligír, auk þess ein rafdrifin Brattvaag G5 dæla og ein rafdrifin Allweiler SNB660 fyrir átöksjöfnunarbúnað, hífingu og til vara. Fyrir háþrýsti- vindur, krana og vinnslubúnað, lúgur o.fl. eru rafdrifin vökvaþrýstikerfi. Fyrir frystitæki og frystilest er kælikerfi (frystikerfi) frá A/S Drammens Jern. Kæliþjöppur eru þrjár skrúfuþjöppur frá Mycon, kæliafköst 52400 kcal/klst við 4-35°C/-/+25°C hver, kælimiðill Freon 22. íbúðir Almennt: íbúðir eru samtals fyrir 17 menn í sex tveggja manna klefum og fimm eins manns klefum, auk sjúkraklefa með tveimur hvílum. íbúðir em á þremur hæðum framskips, þ.e. á neðra þilfari, efra þilfari og á bakkaþilfari. Neðra þilfar: Fremst á neðra þilfari eru fjórir tveggja manna klefar og í b.b.-síðu þar fyrir aftan er eins manns klefi, tveir tveggja manna klefar og aftast hlífðarfata- og þvottaherbergi með salernisklefa og sturtuklefa. Efra þilfar: í b.b.-þilfarshúsi er fremst sjúkraklefi með sér- snyrtingu, þá þvottaherbergi með salernisklefa og sturtuklefa, borðsalur, eldhús og aftast matvælageymslur, þ.e. ókæld geymsla, kælir og frystir. Bakkaþilfar: Á bakkaþilfari eru fjórir klefar fyrir yfirmenn, þar af tveir með sérsnyrtingu, en auk þess er á þessari hæð salernisklefi og tækjaklefi. Vinnuþilfar (fiskvinnslurými) Móttaka: Framan við skutrennu er vökvaknúin fiskilúga sem veitir aðgang að fiskmóttöku, aftast á vinnuþilfari. í efri brún skutrennu er vökvaknúin skutrennuloka. Fiskmóttöku er skipt í tvo geyma og er hleypt úr henni um tvær vökva- knúnar lúgur á framþili. Vinnslubúnaður: Skipið er búið rækjuvinnslubúnaði og er búnaður til flokkunar, suðu, pökkunar og frystingar; ein flokkunarvél frá Carnitech og olíukyntur rækjusjóðari frá Kronborg. Tölvuvogir eru frá Marel, fjórar talsins, og bindi- vél frá Strapex. ægir 47

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.