Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.12.1995, Qupperneq 6

Ægir - 01.12.1995, Qupperneq 6
urlöndunum, Litháen og Eistlandi kom skýrt fram að slysatíðni og tíðni alvar- legra sjúkdóma sjómanna er mun hærri en starfsstétta í landi. í skýrslu um nið- urstöður ráðstefnunnar til siglingamála- stjóra segir: „Mikla athygli vakti að þeir sem vinna í vélarúmum skipa eru sérstakur áhættuhópur varðandi krabbamein og eru þeir meö mun hærri tíðni krabba- meins en aðrar stéttir um borð. Ef haft er í huga að vélstjórar reykja minna en aðrar stéttir um borð í skipum þarf að leita annarra orsaka og beindust sjónir manna að asbesti sem mikið var notað í skip en er nú bannað á Norðurlöndun- um. Bent var á aðra hugsanlega krabba- meinsvalda sem höfðu meiri áhrif á starfsmenn í vélarúmi en aðra í áhöfn. í vélarúmi er mikið um meðhöndlun allskyns olíuvara, s.s. brennsluolíu, smurolíu, feiti og hreinsiefna. Brennslu- olía hefur versnað mikið á síðustu árum og hafa Norðurlandaþjóðirnar sett regl- ur um snefilefni í henni þar sem vitað er að boðin er olía á markaðnum sem er skaðleg bæði umhverfi og heilsu manna. Jafnvel eru dæmi um að efnum eins og l’CB (mjög krabbameinsvald- andi) er bætt í olíuvörur án sjáanlegs til- gangs nema þá til að losna við efnið án þess að kosta til dýrri eyðingu. Vitað er að inntaka snefilefna gerist með þrenn- um hætti, með öndun, með mat og í gegnum húöina. Gerðar hafa verið mælingar á lofti í vélarúmum og í ljós kemur að oftast er það mettað af mjög fínum olíudropum í einhverju magni, auk þess mettar öndun eða jafnvel út- blástur frá vélum loftið líka. Við öndun þessa lofts fer fram nokkur inntaka snefilefna í gegnum lungun. í flestum tilfellum nota starfsmenn í vél ekki hanska við vinnu sína og mikil olíu- óhreinindi eru viðloðandi húð sem kemst svo áfram inn í vefi líkamans. Olíuóhreinindi á höndum komast auð- veldlega í mat og áfram í meltingu." í megnasta ólestri í lokaorðum þessarar skýrslu segir Kristinn Ingólfsson tæknifræðingur og starfsmaður Siglingamálastofnunar að í ljósi nýrrar þekkingar á högum sjó- manna veröi að viðurkenna að almenn heilbrigðismál þeirra séu í megnum ólestri og mjög brýnt sé að taka á mál- um þessum í heild. Vinnueftirlit ríkisins hefur enga lög- sögu yfir skipum heldur er það Siglinga- málastofnun ríkisins sem lítur eftir heil- næmu umhverfi um borð. Páll Guð- mundsson yfirmaður skoðunardeildar Skúli Magnússon vélstjóri við störf sín um borð í Stapafellinu. Glöggt má sjá að hann hirðír lítt um þær varúðarráðstafanir sem minnst er á í greininni varðandi beina snertingu olíuefna við húð. Eins og fram kemur í ummælum Vilhjálms Rafnssonar auka reyk- ingar krabbameinshættu veru- lega. stofnunarinnar sagði að unnið væri að gerð nýrrar reglugerðar sem tæki til mun fleiri atriða sem snertu hollustu og vinnuumhverfi vélstjóra og annarra áhafnarmeðlima en áður. Hann sagði að nú væru í gildi ákveðnar kröfur t.d. um loftskipti í véla- rúmi en margt hefði komið fram á und- anförnum árum sem gerði endurskoð- un nauðsynlega og mundi ný reglugerð líta dagsins ljós á næsta ári. „Það er að verða vakning í þessum efnum meðal sjómanna sem sést t.d. á fjölda fyrirspurna til'okkar varðandi reykingar." Mætum litlum skilningl „Vélstjórafélag íslands hefur lagt fé í áróður og upplýsingastarfsemi og reynir eftir megni að koma til félagsmanna sinna upplýsingum um þær hættur sem að þeim steðja, sem eins og hér hefur komið fram eru verulegar. Af þessu til- efni tókum við þátt í könnun á dánar- tíðni vélstjóra sem borin var saman við dánartíðni annarra hópa hér á landi og unnin var ásamt öðrum af Vilhjálmi Rafnssyni lækni hjá Vinnueftirliti ríkis- ins, en niðurstööur sem þegar hefur ver- ið vitnað til í þessari umfjöllun lágu fyr- ir á árinu 1984. í framhaldi af niðurstööum könnun- arinnar, sem gáfu ótvírætt til kynna að vélstjórn um borð í skipum væri áhættusamt starf, ákvað félagið að gefa út fræðsluefni á myndbandi um öryggi og heilbrigði vélstjóra. Myndbandið kom út á árinu 1991 og á að vera til um borð í flestum skipum," sagði Helgi Lax- dal, formaður Vélstjórafélags íslands, í samtali við Ægi. Slysavarnaskóli sjómanna þarf að endurskoða afstöðu sína „Þessi mál um öryggi ber að sjálf- sögðu oft á góma í tengslum við kjara- samninga og fleira samskipti okkar við okkar helsta samningsaðila LÍÚ, en þaö verður að segjast eins og er að mál af þessu tagi njóta ekki forgangs á þeim bæ, hugsanlega að hluta til vegna þess að umræðan um mengun og heilsuspill- andi efni er almennt frekar skammt á veg komin hjá okkur. Nú fyrir um ári síðan kynnti ég helstu niðurstöður þess- arar könnunar á fundi hjá Slysavarna- skóla sjómanna og óskaði eftir því að skólinn stæði fyrir námskeiði sem fjall- aði um helstu áhættuþætti varðandi störf vélstjóra eða felldi efnið inn í hefðbundin námskeið. Skemmst er frá því að segja að ekkert í þá átt hefur litið dagsins ljós. Mér virðist að einu viðurkenndu hætturnar sem tengjast sjómennsku á þeim bæ lúti að „maður fyrir borð" eða störfum á vinnuþilfari. Þessa afstöðu tel ég að skólinn þurfi að endurskoða en líta í stað þess til skipsins sem heildar því frá mínum bæjardyrum séð verður ótímabærum dauðsföllum og veikind- um tæpast forgangsraðað út frá orsök- um, þau hljóta öll að fá sömu með- höndlun," sagði Helgi að lokum. Norrænar reglur vernda okkur Samkvæmt upplýsingum Ægis varð- andi þá staðhæfingu að PCB-efnum sé 6 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.