Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 12
Voru orðnir samdauna
Þór segir þab tímanna tákn aö þaö
voru ungir menn sem komu um borö
sem fyrstir fitjuöu upp á því aö loftiö
væri ekki nógu gott og þaö bendir til
þess aö áhöfnin sem fyrir var hafi
verið orðin frekar samdauna þessu
vandamáli sem eölilegt hlýtur að telj-
ast. En Þór og félagar hans létu ekki
þar viö sitja heldur settu svokallaöa
loftskilju á sveifarhúsin á ljósavélun-
um. Henni er ætlað aö skilja olíueim
úr loftinu sem myndast í sveifarhús-
unum og mettar allt vélarrúmið.
Mörgum er illa við þennan eim sem
inniheldur brennisteinssambönd og
ýmis óholl efni.
„Viö settum þessar skiljur viö allar
ljósavélarnar og þaö batnaði svo mik-
iö loftið í vélarrúminu að því veröur
aðeins líkt við byltingu. En þaö gerö-
ist fleira sérstætt sem ég veit ekki
hvort ég myndi trúa nema af eigin
reynslu. Ég er yfirleitt ekki ginnkeypt-
ur fyrir nýjungum og töfralausnum.
Oftast fylgir þeim mikill kostnaður
og sjaldnast er reynsla af þeim hjá fé-
lögunum á hinum bátunum.
Viö þurfum alltaf aö fylgjast meö
afgashitanum á vélunum yfir ákveðn-
um mörkum. Þaö sem gerðist er aö
afgashitinn hefur falliö um 20 til 30
gráður á sama álagi og vélarnar virö-
ast vinna mun léttar.
Svo minnkaði yfirþrýstingurinn í
sveifarhúsinu og þar af leiðandi hvarf
olíueimurinn úr vélarrúminu og smá-
lekar hér og þar hurfu fyrir vikið og
umtalsveröur smurolíusparnaöur hef-
ur átt sér stað."
Þór segir að verulega miklu betra
loft sé í vélarrúminu á Stapafellinu
eftir breytingarnar en erfitt sé aö átta
sig á hvort breytingar á útblæstrinum
eða loftskiljurnar viö sveifarhúsin eigi
meiri þátt í því.
Hverjir skyldu vera algengustu
kvillar sem sækja á vélstjóra og þá
sem vinna við óheilnæmar aðstæður
af þessu tagi?
„Ég býst viö að svimi og höfuö-
verkur séu algengastir en svo er óráö-
inn þáttur sem er streita. Það er und-
irmannað á skipunum, menn eru að
passa stóra hluti sem kosta mikið fé
og mikil ábyrgö sem hvílir á þeim.
Þessi streita á eflaust sinn þátt í
magaverkjum sem ég veit að eru al-
gengir."
Hætta af sterkum hreinsiefnum
Þór bendir á að nútíma hreinsiefni
séu gífurlega sterk og lítill tími gefist
bæöi til þess aö vinna meö þau viö
réttar aðstæður og kynna sér rétta
notkun.
„Vélstjórar hafa engan dagmann
lengur til þess að halda vélarrúminu
hreinu. Þaö stendur kannski utan á
brúsanum aö setja svo og svo mikið í
tiltekið magn af vatni en hver skoðar
þaö? Þú dembir einhverjum slatta í
háþrýstidæluna og úöar þessu um
allt. Svo tefstu smástund við annað
og málningin er farin af veggjunum
þegar þú kemur aftur. Dagmaðurinn
hafði tíma sem vélstjórinn hefur ekki
útaf alls konar ööru snatti á vaktinni.
Þaö er verið aö þrífa í tíma og ó-
tíma um allt skip á frystitogurum. Þú
ert meö lútsterk hreinsiefni í heitri
gufu og þaö úöað meö háþrýstidæl-
um undir miklum þrýstingi. Ég er
sannfæröur um að þessi hreinsiefni
eru hreinlega í andrúmsloftinu lengi
á eftir.
Viö vitum oftast ekki nógu mikið
um þaö hve hættuleg þessi efni eru
og hver hefur t.d. latnesk tilvísunar-
heiti á takteinum? Þaö er bara enginn
tími til þess aö kynna sér þaö.
Smurolíuskilvindur og olíuskil-
vindur safna á sig haröri kolefnishúö
sem þarf að hreinsa. Þaö er auöveld-
ast aö gera meö því að setja diskana
ofan í efni sem er svo sterkt aö það
leysir á augabragði þaö sem verkfæri
vinna ekki á. Ef þú ferð meö hendina
ofan í slíkan lög eldsnöggt skað-
brennur þú þó þaö sé rennandi vatn
alveg við hendina."
Undirmönnun og andvaraleysi
Þór telur að undirmönnun, erfitt
atvinnuástand, þ.e. minna atvinnu-
öryggi, geri það að verkum að menn
séu tregir til þess að kvarta mikið
undan óheilnæmu umhverfi, það
12 ÆGIR