Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 10

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 10
Tengsl dauöaslysa sem ekki verða til sjós, viö starfstíma á sjó, benda til aö sjómenn mótist fyrir áhrif vinnunnar og taki upp áhættusama hegðun eða lífsstíl. Rannsókn þessi náði til 27.884 sjó- manna á árunum 1958 til 1986. Sam- anburður á sjómönnum sem byrjuðu til sjós á árunum 1968 til 1977 og þeim sem byrjuðu 1978 eða síðar sýndi að þeir sem byrjuðu síðar höfðu hærri dánartíöni vegna allra dánar- meina, umferðarslysa, eitrana, annarra slysa, manndrápa og vegna áverka þegar óákveðið var hvort um slys eða sjálfsáverka var að ræða en lægri vegna allra slysa á sjó og drukknana. Menn geta dregið sjálfir úr hættunni Vilhjálmur og Hólmfríður rannsök- uðu einnig tíðni krabbameins í þessum stóra hópi allra sjómanna og kom í ljós Svona lýsir Þór Sævaldsson vél- stjóri reynslu sinni af aðbúnaði vél- stjóra. Þór hefur langa reynslu af ým- isskonar vélstjórn bæði á sjó og í landi. Hann útskrifaðist 1977 úr Vél- skóla íslands en var fyrst skráður vél- stjóri á skip 1973 og hefur síðan verið vélstjóri á fiskibátum, hvalbátum og togurum, m.a. Guðbjörgu ÍS því þekkta aflaskipi, en er nú vélstjóri á Stapafellinu sem er olíuflutningaskip í eigu Olíufélagsins h/f Esso. að sjómenn virtust í meiri hættu en aðrir gagnvart krabbameini í maga og lungum. Ekki er að fullu vitað hvernig á þessu stendur og frekari rannsóknir á sjó- mönnum nauðsynlegar til að svara þeirri spurningu. „Þangað til spurningunni verður svarað í vísindalegri rannsókn er maður alls ekki ofurseldur örlögunum því maður getur sjálfur haft mikil áhrif á þá krabbameinshættu sem maður lifir með eða er í. Þessi krabbameinshætta er háð fleiru en hugsanlegum áhættuþáttum 'í vinnunni. Flestir krabbameinsvaldar sem geta leitt til lungnakrabbameins margfaldast að áhrifum ef maður reykir sígarettur. Þannig verður maður ekki aöeins fyrir samanlögðum áhrifum ólíkra krabbameinsvalda heldur verka þeir margfalt sterkar ef tveir eða fleiri koma saman," segir Vilhjálmur. Loftinntakiö of nálægt púströrinu Þór er í nópi þeirra vélstjóra sem hafa gefið vaxandi gaum starfsum- hverfi vélstjóra og gert ýmsar úrbætur í því efni, t.d. um borö í Stapafellinu. „Þaö er vandi í öllum afturbyggðum skipum að það þarf að fara með loft- inntökin eins hátt og hægt er til þess að ekki fari sjór inn. Þá eru þau komin nálægt útblæstrinum. Við brugðum á það ráð í Stapafellinu að við hækkuð- um púströrin og við það tel ég að hafi Kynntist fyrst eyrnahlífum hér Rúdólf Ásgeirsson vélstjóri er verkstjóri á dísilvélaverkstæði á Keflavíkurflugvelli þar sem vinna 11 vélstjórar. Hann var á sjónum hjá Sambandinu áður en hann fór að vinna þar á sjötta áratugnum. Hann sagði að öryggiskröfur varð- andi búnað manna og meðferð hverskonar spilliefna væru mun strangari en venjulegt þætti hér á landi og öil starfsemi verkstæðis- ins væri háö ströngu eftirliti. „Ég kynntist fyrst eyrnahlífum þegar ég fór að vinna hér," sagði Rúdólf í samtali við Ægi. Hann sagði að sterk hreinsi- efni, olíur og frostlögur sem not- ub væru á verkstæðinu væru háð eftirliti og ekki mætti hella þeim niður heldur yrði að safna þeim saman og í sumum tilvikum væru þau flutt út til eyöingar. „Ef mínir menn vinna með sterk hreinsiefni þá er notaður svipaður hlífðarbúnaður og vib rafgeymavinnu. Það þýðir sér- staka uppháa hlífðarhanska, öfl- uga svuntu, hlífðargleraugu, grímur, stígvél og þykkan sam- festing. Það er verið að reyna að losna við þessi sterku efni og fá önnur vistvænni í staðinn en það geng- ur hægt." dregið mjög úr sótblæstri inn sem ég hafði tekið eftir á vissum vindáttum miðað við siglingastefnu. Þetta var mikil framför því loftið stórbatnaði í öllum vistarverum, en þarna er tekið inn loft fyrir íbúðir skipverja líka því Stapafellið er afturbyggt. Þessu er öðru- vísi farið t.d. á skuttogurum þar sem loftinntak fyrir íbúðir er frammi á brú en loftinntak fyrir vélarrúmið oftast uppi á gálganum afturá, í námunda við skorsteininn." Svimi, höfuðverkur og mikil streita Þór Sævaldsson lýsir sinni reynslu „Ég var á togara fyrir vestan og þar var svo öflugur blástur niöur í vél ab mab- ur fór oft í úlpuna svo mabur skylfi ekki úr kulda. Það er margt sem er hægt að gera í sambandi við hávaða og titring til þess að draga úr honum og þeim hlutum hefur fariö fram síban ég byrjaði til sjós. Ég var einu sinni á þýskbyggbu skipi sem var allt meb gúmmípúðum hér og þar, meira að segja yfirbyggingin var ekki soðin við skrokkinn heldur hvíldi á sér- stökum púðum. Þarna heyrði maður ekki að vélin væri í gangi fyrr en maður opnaði vélarrúmið." 10 ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.