Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 41

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 41
Kvótakerfið bætti umgengnina „Ég held að kvótakerfið hafi bætt um- gengni manna um miðin og þar hafi neyöin kennt naktri konu að spinna. Ég held að kvótakerfið hvetji til þess að koma að landi með stærri fisk en auðvitað hvetur það líka til þess að menn hendi smáfiski. Það er ekk- ert kerfi 100%. Ég hefði viljað sjá eftirlitið starfrækt með því að gera út togara sem fylgdust með veið- unum með því að veiða sjálfir. Þetta hefði getað verið ágæt aðferð til þess að hafa sjálf- stætt eftirlit sem gæti verið þar sem veiðin færi fram hverju sinni." Nú er tími til að vera latur Markús unir hag sínum vel þar sem hann býr í Grafarvogi og sér út á ytri höfnina. Hann segist kunna lífinu vel því hann hafi alltaf kunnað því vel að vera latur, en stund- ar golfið af álíka sóknarhörku og hann sýndi á togurunum í gamla daga og lætur vont veður sjaldan eða aldrei stoppa sig. Þess má einnig geta að Markús er harður laxveiði- maður og hefur átt þátt í aö setja aflamet á þeim vettvangi líka í slagtogi við syni sína og veiðifélaga. „Ég var alltaf heppinn. Ég nýt lífsins því nú er kominn tími til að vera latur." Fjölskyldan Markús er kvæntur Hallfríði Brynjólfs- dóttur úr Hrísey, afkomanda þess fræga Hákaria-Jörundar. Þau eignuðust sex börn sem voru skírð Guðmundur, Unnur, Brynj- ólfur, Jörundur og svo tvíburarnir Erlendur og Markús. Markús segist að synirnir hafi flestir eitt- hvað farið til sjós á námsárunum, en eng- inn þeirra hafi lagt fyrir sig sjómennsku og hann hafi ekkert lagt það sérstaklega að þeim. Metið á Marzinum Árið sem Marzinn setti aflametið, 1955, var harla gott ár. Þetta ár veiddust rúmlega 538 þúsund tonn af þorski á íslandsmiðum og er þetta ár eitt hið aflahæsta frá upphafi. íslendingar veiddu rúm 315 þúsund tonn af þorski sem var þá mesta þorskveiöi þjóðar- innar frá upphafi og þetta met var ekki sleg- ið fyrr en 1977. Á þessum árum var að draga úr veiðum útlendinga á íslandsmiðum. Marz RE kom með 1577 tonn af þorski í TOGHLERAR „FYRIR ALLAR TOGVEIÐAR" J. HINRIKSSON H.F. SÚÐARVOGI4 SÍMAR 588 6677 / 568 0775 104 REYKJAVÍK MYNDSENDIR 568 9007 „FRAMLEIÐENDUR TOGBÚNAÐAR í ÁRATUGI ís að landi, en við það má bæta tæpum 700 tonnum af þorski upp úr salti sem jafngildir rúmum 1300 tonnum af ísfiski þannig að heildarþorskafli skipsins var um 2.900 tonn. Þetta ár var karfaafli á íslands- miðum að dragast saman eftir mjög góð ár í byrjun áratugarins. Þetta ár kom Marz með 4.102 tonn af karfa sem ásamt þorski var meginuppistaðan í metaflanum sem samtals nam 7.395 tonnum í 26 veiðiferðum. Samtals veiddu ís- lendingar rúm 32 þúsund tonn af karfa þetta ár á móti rúmum 77 þúsund tonnum sem útlendar þjóðir veiddu. Ekki er vitað um aflaverðmætið og erfitt er að giska á núvirði afla Marzins þetta ár, en þó má telja með nokkurri vissu að það væri í dag á bilinu 320 til 340 milljónir. Til samanburðar má geta þess að aflahæsti ísfisktogarinn áriö 1994 var með 270 milljónir í aflaverð- mæti. (Þórir Guðmundsson, starfsmaður Fiskifélagsins, útvegaði góðfúslega tölur um afla Marzins 1955.) □ ÆGIR 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.