Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 17

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 17
NOVEMBER ín Höföi hf. á Húsavík festir kaup á 43 metra löngum grænlenskum rækjutogara smíðuö- um 1987. Skipiö kemur í staö Júlí- usar Havsteen ÞH sem meiningin mun aö úrelda. ■M Aöalfundur LÍÚ samþykk- ■Éíl ir aö eftirleiöis sé eigend- um báta undir 12 brl. heimil að- ild en hingað til hefur svo ekki verið. ■H Heimaey VE gerir tilraun til ■■i þess að veiða síld í flottroll en gengur ekki sem skyldi. ■■■ 54. Fiskiþing er haldiö í Ufl Reykjavík og vekja umræöur á þinginu mikla athygli. Pjl Grandi hf. í Reykjavík á 10 ■Aii ára afmæli. Fyrirtækið hefur veitt 273 þúsund tonn frá upphafi og velt 33 milljöröum króna. ■■■ Gígja VE og Kap VE finna ■■■ síld 50 mílur suðvestur af Reykjanesi og koma meö 800 tonn í land. Rannsókn fer fram á því hvort þetta gefi tilefni til aukins síldarkvóta en mikil ásókn er í slíkt af hálfu útgerðarmanna þar sem vel hefur gengið aö selja síldina á þessari vertíð. PPi íslensk fisklifur er dæmd ifii óhæf til sölu á Þýskalands- markaði vegna þess að of mikið af skordýraeitrinu klórdan mælist í henni. Kröfur Þjóðverja eru sagðar strangar og þessu harðlega mót- mælt en Þýskalandsmarkaður hef- ur verið traustur fyrir lifrarsala til þessa. ■■■ Rúmlega 30 manna sveit ifii starfsmanna ÍS heldur aust- ur til Kamtsjatka í Rússlandi til að vinna að stórverkefni ÍS á þeim slóðum. Verkefnið felst í útgerð og vinnslu afla stórs fyrirtækis, UTRF, í Petropavlovsk. ■■■ Saltað í hundrað þúsund- EU ustu tunnuna af síld á þess- ari vertíð en alls eru komin 96 þús- und tonn á land af 130 þúsund tonna kvóta. SJAVARSIÐAN MAÐUR MÁNAÐARINS Maður mánaðarins er Einar Kristinn Guðfinnsson, formaður stjórnar Fiski- félags íslands, en fátt vakti meiri athygli og umræður í nóvembermánuði en lifandi og skeleggar umræður á Fiskiþingi og skorinortar ályktanir þingsins. „Umræðurnar voru málefnalegar og þetta Fiskiþing skilur veigamikil spor eftir sig. Fiskifélagið er að festa sig æ meira í sessi sem sameiginlegur vettvangur sjávar- útvegsins. Það hefur orðið breyting á vettvangi Fiski- félagsins sem þýðir að fulltrúar á þinginu eru fleiri en áður. Það endurspeglar vel þá breidd sem er í sjávarútveginum. Þarna sitja fulltrúar útgerðar- manna, sjómanna, trillukarla, fiskverkenda og fisk- verkafólks hlið við hlið. Eitt verkefni okkar er þó að vinna að aukinni þátttöku áhugamanna um sjávar- útveg sem ekki starfa í greininni," sagði Einar í samtali við Ægi. „Hvað varðar framtíð og afkomu félagsins, er ekkert öruggt en viðræður okkar við sjávarútvegsráðuneytið gefa tilefni til bjartsýni." Einar Kristinn fæddist árið 1955 og ólst upp í Bolungarvík en hann er eitt þriggja barna Guðfinns Einarssonar og Maríu Haraldsdóttur. Hann er kvæntur Sigrúnu J. Þórisdóttur kennara ogþau eiga tvö börn. Einar varð stúdent frá Menntaskólanum á ísafirði 1975 og tilheyrir fyrsta árgangi stúdenta sem þaðan brautskráðust. Hann læröi stjórnmálafræði og brautskráðist frá Essex University í Bretlandi árið 1981. Einar starfaði sem skrifstofumaður og útgerðarstjóri hjá Einari Guðfinnssyni hf. í Bolungarvík frá 1982 til 1991 þegar hann varð þingmaður Sjálfstæðismanna á Vestfjörðum sem hann er enn. Einar hefur jafnan tekið virkan þátt í félagsmálum sem tengjast sjávarútvegi og sat í stjórn Útvegsmannafélags Vestfjarða árum saman og á Fiskiþingi frá 1985 og var formaður Fiskifélagsdeildanna á Vestfjörðum frá 1988. Eins og margir vita er Einar sonarsonur Einar Guðfinnssonar þess sem rak útgerð, fiskvinnslu og verslun í Bolungarvík með mikilli reisn um áratugaskeið og sat árum saman á Fiskiþingi. ORÐ í HITA LEIKSINS „Við getum ekki búið við þessar aðstæður lengur. Það verður ekki þolað og ef við tökum okkur ekki á, þá mun skynsamleg fiskveiðistjórnun hrynja. Það er of mikið um að menn hendi fiski og það er of mikið um að menn svindli á vigtinni. Það er svo alvarleg staðreynd að ef við náum ekki tökum á þessari brotalöm þá er alvarleg hætta á því að okkur geti mistekist öll fiskveiðistjórnun." Þorsteinn Pálsson sjáv- arútvegsráðherra les fulltrúum á Fiskiþingi pistilinn. „Lögbrot af þessu tagi á að kalla refsingu yfir hinn brotlega. Ef ekki hljóta þessi ummæli að falla dauð og ómerk." Magnús Kristinsson útgerðarmaður dregur ásakanir um kvótasvindl í efa í Fréttum í Vestmannaeyjum. „Fyrir bragðið veröur umræðan óttalega klisjukennd og ómarkviss." Einar K. Guð- finnsson formaður Fiskifélagsins skammar talsmenn auðlindaskatts á Fiskiþingi. „Mín skoðun er sú að færa eigi veiðieftirlit frá Fiskistofu og fela útgerðinni að annast það." KRISTJÁN Ragnarsson talar á aðalfundi LÍÚ. ÆGIR 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.