Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 52

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 52
Stilling hf.: Heilsunnar vegna Stöbugt meira frambob er ab verba á hvers konar efnum og ibnabarvörum sem spilla ekki heilsu manna og um- hverfi og framleibendur inæta í vax- andi mæli kröfum samfélagsins um bætt vinnuumhverfi og aukna vit- und um náttúruna. Stilling hf. í Skeifunni 11 er gamal- gróib fyrirtæki sem í 35 ára hefur þjón- ustab skipaflota íslendinga meö álím- ingu hemlaborba á togspil og reyndar öll spil sem finnast um borb í fiskiskip- um. Þetta er dálítib séríslenskt fyrirbæri því víöa annars staöar tíbkast ab hnoba hemlaboröana á. í Stillingu er langt síb- an komiö var upp sérstökum ofni þar sem borðar eru límdir á og hægt ab ab taka inn stóra klossa eins og þá sem eru á togspilum togaranna. Asbestfríir hemlaborðar Stilling hf. hefur um árabil boöiö asbestfrítt efni í hemlaboröum en asbest er meöal þeirra efna sem heilsu manna stafar hvaö mest hætt af. Nú hafa þeir bætt um betur og bjóba nýtt hemlaboröaefni fyrir togspil og iön- aöarvélar. Það heitir HKL-AF og er afar þéttofib, hálfsveigjanlegt, vírofið hemlaefni úr þræbi sem spunninn er úr gerviefnum. Meðal þeirra efna sem notuð eru má nefna Kevlar sem er notað í skotheld vesti. HKL-AF er mettab meö sérstakri kvobu og er ákaflega slitsterkt og hemlunarfesta þess meiri en ábur var álitið hugsanlegt fyrir ofna hemlaborða án asbests. Núningsstuðull þess helst óvenjulega vel, jafnvel við mikinn hita, en þaö hefur verið vandamál meb ofin efni að þrýstispenna þeirra er tiltölu- lega lítil og núningsstuðullinn vill því verba óstöðugur þegar yfirborbsþrýst- ingur eykst. Vefjagerð og mettunar- efnin í HKL-AF tryggja hámarksstöðug- leika undir þrýstingi. Slitstyrkur HKL-AF er svipabur og í hefðbundnum steyptum borðum og óhætt að reikna með 50% meiri slit- styrk en í ofnum borbum sem ekkert asbest er í. Sveigjanleiki borðanna gerir þab að verkum að auðvelt og þægilegt er aö koma þeim fyrir og þeir eru lausir vib stífleikann sem gerir aðra borða svo ómeðfærilega. Að sögn Júlíusar Bjarna- sonar, fram- kvæmdastjóra Stillingar, njóta borðar úr þessu efni vaxandi vinsælda hjá útgerðarmönn- um og vélstjór- um sem finnst betra að nota álímda borba en hnoðaða. Með því fæst betri nýting á efninu. Að sögn Júlíusar er vaxandi áhugi á efnum sem hvorki valda spjöllum á umhverfinu né stefna heilsu manna í voða. Militec - þar sem tveir málmfletir koma saman Annað efni sem Stilling hf. selur og nýtur vaxandi vinsælda hjá útgeröar- mönnum er Militec smurbætiefnið sem margir kannast þegar við því það er notað á heimilisbílinn en þetta bylting- arkennda efni hefur miklu fleiri mögu- leika. „Það má segja að alls staðar þar sem tveir málmfletir koma saman sé Militec á heimavelli," sagði Júlíus Bjarnason í samtali viö Ægi. Vélstjórar sem prófað hafa Militec á ljósavélar og aðalvélar sjá einkum tvo höfuðkosti við notkun þess. Annar varðar heilsufar vélarinnar og kemur fram í léttari gangi og minni olíueyðslu sem nemur 2-5%. Hinn varðar ekki síður heilsu vélstjóranna en vélarinnar og birtist í því að hávaði stórminnkar vegna þess að gangurinn léttist. Dæmi eru um að frystiskip hafi tekið Militec í notkun í smurningu á öllum fiskvinnsluvélum og það hafi valdiö byltingu. Militec er sett saman úr endurgerð- um burðarefnum og virkum smurefn- um sem þola háþrýsting feiknavel. Þaö er eina smurbætiefni sem er viður- kennt af bandaríska hernum. Sérstöku bætiefni er komið fyrir í endurgerðu kolvatnsefni sem þolir hátt hitastig. Vib 66 gráðu hita myndar efnið ólífræna smurhimnu á málmflötum sem stirðnar ekki við lágt hitastig. Efnið fær lífræna bindingu með sérstöku efnaferli sem Militec hefur einkaleyfi á. Militec inniheldur efni sem hindr- ar tæringu og slit á yfirborði málma og stórminnkar þar með vélarslit. „Okkar viðskiptavinir eru ekki að- eins útgerðarmenn stórra skipa heldur ekki síður þeir sem gera út smærri skip og við finnum vel að vaxandi áhugi er á efnum sem bæta vinnuumhverfi vél- stjóranna, t.d. með minni hávaða." □ Stilling hf. var stofnað 1960 og var upphaflega lítið verkstæði niðri í Skipholti en hefur nú höfuðbækistöðvar sínar í Skeifunni 11 auk þess sem útibú er í Hafnarfirði. Alls eru 23 starfsmenn hjá Stillingu og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Hjörtur, einn starfsmanna Stillingar, við ofninn sem er notaður er við álímingar. 52 ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.