Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 39

Ægir - 01.12.1995, Blaðsíða 39
aö stunda veiði á fjarlægum miðum við Grænland og Nýfundnaland seint á sjötta áratugnum og með tilkomu breyttrar tækni í fjarskiptum þegar morsið Iagðist af. „Loftskeytamennirnir bjuggu til dul- málið og skiptu reglulega. Ég er ekki frá því að stundum hafi tekist að ráða dul- málið ef sami lykill var notaður lengi." Tryggvi var einstakur Markús var skipstjóri á Jón forseta til 1954 þegar hann fór frá Alliance-út- gerðinni og yfir á Marzinn sem var í eigu Tryggva Ófeigssonar útgerðar- manns og athafnaskálds. „Mér samdi vei við Tryggva. Hann gat verið afskaplega skemmtilegur mað- ur, en hann gat líka verið leiðinlegur. Hann gat verið mjög kröfuharður og ósanngjarn, en mér samdi alltaf vel við hann. Hann var mikill sögumaður og tók vel eftir því skoplega í fari manna og samskiptum, en hann var aldrei rætinn. Tryggvi var einstakur. Hann vildi hafa pláss og vera kóngur í ríki sínu." Markús segir að útgerð Tryggva hafi gengið eins vel og útgerð geti gengið því hann hafi vakað yfir henni og pass- að það smáa líkt og það stóra og segir eftirfarandi sögu því til staðfestingar: Einhverju sinni landaði Marzinn saltfiski í Esbjerg í Danmörku. Kokkur- inn hafði fengið skiiaboð frá Tryggva um að taka vel út af kartöflum ytra því á íslandi var kartöfluskortur og einokun og gat verið erfitt fyrir skip að fá nóg. Meiningin var að kokkur keypti ytra nóg af kartöflum sem dygði fyrir öll fjögur skip útgerðarinnar, sem hann gerði. Þegar heim var komið fer kokkurinn upp á skrifstofu útgerðarinnar að ná sér í pening og þá kallar Tryggvi á hann inn til sín og fer að spyrja út í kartöflurnar. Kokkurinn segir sem er að hann sé vel birgur af góðum kartöflum. - Æ, mikið finnast mér nú góðar kart- öflur með góðum fiski. Heldurðu að ég geti nokkuð fengið smávegis fyrir mig. Kokkurinn bauð Tryggva þegar í stað að láta senda heim til hans stóran poka af kartöflum. Tryggvi fór þá niður í skúffu og rétti honum lítinn bréfpoka sem rúmaði fimm kíló. - Þetta er nóg fyrir mig. Þriggja mánaða túr Eins og sést af metinu sem minnst er á í upphafi viötalsins var ferill Markúsar á Marzinum farsæll og hann aflaði oft mjög vel og sótti eins og þá tíðkaðist á úthafsveiðar við Grænland og Ný- fundnaland og veiddi þorsk og karfa í ís og salt. Hann minnist saltfisktúrs til Grænlands sem stóð í þrjá mánuði með siglingu og var hafður svo langur til þess að forðast verkfall hér heima. Það stóðst á endum að það var nýbúið að semja þegar Marzinn kom inn. En voru karl- arnir ekkert úfnir eftir svo langa útivist? „Nei. Þetta var öðruvísi þá. Nú getur helst enginn skroppið á sjó nema að kvarta. Það er meira að segja farið að tala um að taka inn í samninga einhver ákvæbi um lengd útivistar. Það er nátt- úrlega ekki hægt ab stýra fiskveiðum með samningsákvæðum og reglugerð- um. Þær mættu margar hverfa reglu- gerðirnar." „Sjanghæjaði" aldrei menn um borð Markús stýrði Marzinum allt til 1964 þegar hann tók við júpíter fyrir sömu útgerð og var því skipstjóri á síðutogur- um allt til 1973, langt fram á skuttog- araöldina. Sjöundi áratugurinn, sérstak- lega fyrrihluti hans, var erfiður fyrir tog- araútgerb. Erfitt rekstrarumhverfi, lélegt fiskirí gerbi mönnum lífið leitt og síðast enn ekki síst var erfitt að fá góða menn á togara því allir voru á síld. Á þessum árum tíðkaðist ab „sjanghæja" menn um borð. Áhöfninni var safnað saman á drykkjubúllum og jafnvel úr fangelsi, sumum sofandi, og haldið á miðin. Markús segist hafa þekkt dæmi um skip- stjóra sem afhentu brennivínsflöskur vib landganginn þegar halda átti á mib- in. Þetta var til þess ab lokka áhöfnina um borð, en svo varð að láta reka fyrsta sólarhringinn á miðunum meðan áhöfnin var að jafna sig og komast í vinnuhæft ástand. „Þetta gat verið óttalega leiðinlegt. Ég tók eins lítinn þátt í þessu eins og ég gat. Ég man eftir nokkmm skiptum að ég sagði minni áhöfn bara ab binda skipið betur og mæta aftur eftir sólar- hring. Ég var ekkert að eltast við þá út um allan bæ. Þetta var tíska um borð í Markús með Hallfríði Brynjólfsdóttur elginkonu sinni í brúnni á Júpíter, sennilega 1964. ÆGIR 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.