Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1995, Page 18

Ægir - 01.12.1995, Page 18
Kælismiðjan Frost: Aukin eigin framleiðsla „Markmið okkar er að koma upp kælifyrirtæki sem geti veitt sambærilega þjónustu og löndin í kringum okkur," sagði Jónatan S. Svavarsson forstjóri Kælismiðjunnar Frosts í samtali við Ægi. Kælismiðjan Frost var stofnuð í lok árs 1993 þegar „gamla" Kælismiðjan Frost, starfsmenn kælideildar Slipp- stöðvarinnar Odda hf. á Akureyri og Eignarhaldsfélags Alþýðubankans sam- einuðust um ofangreint markmið. Fyrirtækið getur rakið sögu sína til 1946 þegar Sveinn Jóns- son stofnaði sitt kælifyrirtæki en margir starfsmenn Kælismiðj- unnar störfuðu hjá eða með honum. Upphaflega voru 19 starfsmenn og ársvelta um 200 milljónir. Starfsmönnum fjölg- aði og umsvifin jukust hröðum skrefum og nú vinna 50 manns hjá Kælismiðjunni sem veltir tæplega 400 milljónum í ár. Starfsemin skiptist í tvær deild- ir, á Akureyri og í Reykjavík. Þeir hjá Frosti hafa sannar- lega ekki setið auðum höndum síðustu mánuði. Þeir settu upp og smíðuðu að hluta nýtt frysti- kerfi í Engey RE sem nýlega kom úr stórfelldum breytingum í Póllandi, frystihús fyrir Seaflower Whitefish í Namibíu og frystikerfi í Sundafrost svo eitthvaö sé nefnt. Það vekur athygli að ammóníak er notað sem kælimiðili eins og gert er í stórri frystigeymslu Eimskips sem nýlega var tekin í notk- un í Sundahöfn en þar sá Kælismiðja Frost um hönnun, framleiöslu, upp- setningu og stillingar kerfisins. Frost setti upp frystiklefa í vinnsluskipið Hannover fyrir Seaflower Whitefish í Namibíu en þar eru einnig starfsmenn Frosts að vinna að uppsetningu frysti- búnaðar í stóru frystihúsi. Með þessu blanda þeir sér í hóp þeirra fyrirtækja íslenskra sem sinna al- þjóðlegum verkefnum en að sögn Jóna- tans leggur Frost vaxandi áherslu á eig- in framleiðslu en þeir smíða sjálfir þrýstikúta, vélasamstæður og frysti- kerfaeiningar auk frystivélakerfa í gám- um og fleiri einstaka hluta í frysti- og kælikerfi. Fyrirtækið hefur nýlega feng- ið vottun frá Lloyds á hönnun, fram- leiðslu og hæfni subumanna og sagði Jónatan að menn væru ákaflega stoltir af þeirri viðurkenningu. Eðli málsins samkvæmt felst starf- semi svona fyrirtækis bæði i nýsmíði, viðhaldi og þjónustu við kælitækjaeig- endur en starfsemi Frosts skiptist i tæknideild, söludeild, framleibsludeild og þjónustudeild auk fjármálasviðs sem sér um rekstur skrifstofu, lagers og smá- vöruverslunar sem verður opnuð á næsta ári. „Við leggjum mikla áherslu á þjón- ustuhliðina og höfum sent fjölda starfs- manna okkar á námskeið og endur- menntað þá til þess að fylgjast með því nýjasta á þessu sviði. Þessu verður hald- ið áfram og við reiknum með aö veita á næsta ári milli 1 og 2% af veltu fyrir- tækisins til endurmenntunar og þjálf- unar." Umsvif þjónustudeildar hafa aukist verulega að undanförnu er Frost tók við umboöi fyrir Sabroe verksmiðjurnar í Danmörku en Sabroe á 8% hlut í Frosti í dag. Sabroe þarf varla að kynna en fyrirtækið er og hefur verib leibandi í frystiiðnaði í heiminum en fyrirtækið verður 100 ára á næsta ári. Jónatan sagði að vaxtarmöguleikar væru umtalsverðir á sviði kæli- og frystitækni í fiskvinnslu, útgerð og mat- vælavinnslu á íslandi í dag. „Á undanförnum árum hafa menn fjárfest í veiðiheimildum, vöruþróun og markaðssetn- ingu. Til að ofangreindar að- gerðir skili því sem vænst er og forðast megi áföll er mikil- vægt að kæli- og frystibúnað- ur sé í lagi. Á síðustu árum hefur á- herslan beinst að framleiðni- aukandi aðgerðum, svo sem flæðilínum og vigtarbúnaði á meðan kæli- og frystibúnaður hefur setið á hakanum. Á- standið er orðið mjög slæmt víða og rekstraröryggi kerf- anna orðið vafasamt. Á undanförnum mánuðum hefur Kælismiðjan Frost unn- ið að þróunar- og uppsetning- arverkefni með innlendum sláturhús- um og kjötvinnslum með faglegri að- stoð Rannsóknastofnunar landbúnað- arins vib salarkælingu og tengd verk- efni. Þegar unnið er með matvæli er mikilvægt að kælikeðjan rofni ekki, þ.e. að hitastig vörunnar fari ekki yfir ákveðið mark (t.d. 7-10 á Celsíus) þar sem það orsakar margföldun í gerla- magni vörunnar og tilheyrandi vanda- mál á leið til neytenda. Kæling niður í 7-10 C veldur vanlíð- an og sjúkdómum hjá starfsmönnum þannig að sú lausn gengur ekki. Sam- spil hita- og rakastýringar er sú lausn sem við höfum valið en hún gefur einnig abra kosti sem hafa áhrif á nýt- ingu og fleiri þætti." □ 18 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.