Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1995, Page 24

Ægir - 01.12.1995, Page 24
öldu í sekúndum sem er mat á öldu- lengd. Þannig gefur sveiflutíminn 4 til 6 sekúndur til kynna aö um vindöldu sé aö ræöa en þegar sveiflutíminn leng- ist er þaö háö ölduhæö hvort um er aö ræöa undiröldu eöa í vaxandi sjó. í af- tökum getur kennialdan oröiö vel yfir 10 metrar og sveiflutíminn vel yfir 10 sekúndur. Næst hæsta kennialda á öldudufli sem mælst hefur mældist þann 9. janúar 1990 suöur af Vest- mannaeyjum 16,7 metra há meö sveiflutímann 15 sekúndur. í sama veöri mældist á öldudufli vestur af Garöskaga kennialdan hæst 14,0 metr- ar og hæsta einstök alda yfir 25 metra. í vonskuveörinu sem gekk yfir land- iö í lok október 1995 og var verst á Vestfjörðum var ölduhæð út af Straum- nesi að jafnaöi rúmir 13 metrar. Meö tengingu þessara dufla við tölvukerfi Vita- og hafnamála og al- mennri miðlun þeirra upplýsinga sem þaðan berast opnast nýir möguleikar varöandi öryggisgæslu á sjó. Fari veður og ölduhæö yfir ákveðin mörk getur skipstjórnandi nú fengið tíöari og betri upplýsingar um aöstæöur. Það er háö stærð skipa og veiðiaðferð í hve mikl- um sjó þau geta veitt. Minnstu bátar geta veitt í allt að þriggja metra hárri öldu, önnur fiskiskip í 3 til 5 metra hárri öldu en stærstu togarar geta verið við veiðar þó ölduhæö sé mun hærri, en fari hún yfir ákveðin mörk þarf aö grípa til öryggisráðstafana. Reynslan sýnir aö upplýsingar þessar nýtast best fyrir smábáta þegar taka skal ákvöröun um hvort fara eigi í róð- ur. Þær koma aö bestu gagni þegar þær eru bornar saman viö sjóveöurspá, þeg- ar veður fer versnandi eða er að ganga niður. Smábátamenn, aö minnsta kosti á Hornafirði og í Grindavík og víðar, eru búnir að læra að nýta sér nútíma- tækni og afla sér nákvæmra upplýsinga um veður, sjólag og horfur, jafnvel án þess að fara fram úr rúminu. Það á að hringja í síma 902 1000 Og hvernig er svo best aö nálgast þessar upplýsingar? Það er sáraeinfalt. símatorg Pósts og síma er notað til þess og kostar 16,60 krónur á mínútuna aö hringja. Hafa ber í huga aö suma far- síma getur þurft að stilla sérstaklega á tónval eigi að nota upplýsingasímann. Síminn er 902-1000. Símsvarinn veit- ir allar upplýsingar um hvaða tölur skal velja til þess aö fá lýsingu frá einstökum stöövum og duflum. Símsvarinn bregst mjög hratt við og tilraunir Ægis leiða í ljós aö hann er afar vinsamlegur í notk- un og fljótlega lærist á hann. Ekkert eins í heiminum En er þetta ekki kostnaðarsamt? Hafa Vita- og hafnamál efni á þessu? „Menn spyrja mikiö um þetta og því er til að svara að það hafa allir lagst á eitt til þess ab gera þetta kleift eftir að okkur varð ljóst hve vinsælt þetta varð. Staðreyndin er sú að það hefur mik- ið verið hagrætt í rekstri Vita- og hafna- mála undanfarin ár og vitar verða t.d. stöðugt ódýrari í rekstri eftir því sem sjálfvirkni fleygir fram. Það hefur með- al annars gert okkur kleift að hleypa þessu verkefni af stokkunum," sagði Gísli Viggósson. Hann benti á að hlutverk Vita- og 24 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.