Ægir - 01.12.1995, Page 25
Úr sjó til sælkera
í glæsilegum og vönduóum umbúium frá Kassageró Reykjavíkur. Hjá
Kassagerðinni hefur átt sér stað áratuga þróunarstarf við gerð margskonar fiskumbúða.
Hönnun og önnur sérfræðiþjónusta á staönum. Hafið samband og við leysum vanda-
málin fljótt og vel.
KASSAGERÐ REYKJAVIKUR HF
VESTURGARÐAR 1 104 REYKJAVÍK SlMI 55 38383 BRÉFASÍMI 55 38598
hafnamála væri að breytast. Vitar sem áður hefðu verið
mannaðir og knúöir af gasi eða öðrum orkugjöfum, sem
þurftu mikið eftirlit, væm nú mannlausir, sjálfvirkir og knún-
ir rafmagni frá sólarorku.
„Þetta nýja kerfi kemur að sumu leyti í stað þess tóma-
rúms sem myndast þegar veðurskeyti hætta t.d. að koma frá
Hornbjargi. Þar hætti vitavöröurinn í sumar og við settum
upp sjálfvirka veðurathugunarstöð sem á eftir að reyna á
hvernig þolir veturinn, en við erum bjartsýnir því reynsla
okkar af þessum sjálfvirku stöövum hefur verið mjög góð
eins og sést á samfelldum mælingum þar sem aldrei verður
gloppa í þó veður sé afar vont."
Kerfi eins og þetta á fáa sína líka í heiminum, svo vitað sé,
að sögn Gísla. Þekktar fyrirmyndir koma þó frá Noregi þar sem
einhver dæmi eru um einfalda upplýsingasíma af þessu tagi. í
mörgum alþjóðlegum höfnum er hægt að nálgast svipaðar
upplýsingar, t.d. í Amsterdam, Rotterdam og víðar. Sérstaða ís-
lenska kerfisins felst fyrst og fremst í útbreiðslu þess, en eftir
því sem best er vitað er það eina kerfið sem nær yfir heilt land.
Þéttum netið á næstu árum
Hvert stefnir í þessum málum?
„Við vinnum eftir fjögurra ára áætlun um að þétta netið
og bæta þjónustuna. Það koma óskir frá hafnarstjórnum og
sjómönnum víða um land sem vilja fá þetta til sín. Þessi
fyrsti hluti kerfisins hefur verið byggður tiltölulega hratt upp,
en ég býst við að við förum eitthvað hægar á næstunni. En
það er ljóst að eftirspurnin er nokkur."
Gísli sagði að samstarfið við Veðurstofu íslands hefði verið
mjög gott og kerfið lyti þeirra gæðakröfum og stöðlum og
Veðurstofan fengi að sjálfsögðu óhindraðan aðgang að öll-
um upplýsingum úr kerfinu.
Landsvirkjun,
Vegagerðin og Flugmála-
stjórn taka veðrið
Landsvirkjun fylgist með veðri á hálendinu og notar til þess átta sjálfvirkar
veðurstöðvar sem fyrirtækið á sjálft, en auk þess er fylgst með veöri á tíu öðr-
um stöðvum sem Veðurstofa Islands á. Stöðvar Landsvirkjunar eru á Dynjand-
isheiði, Þingmannaheiði, við Kolku við Blöndulón, við Búrfell, í Veiöivatna-
hrauni, í Þúfuveri, í Jökulheimum og við Sandbúðir á Sprengisandsleiö.
Þorsteinn Hilmarsson upplýsinga-
fulitrúi Landsvirkjunar sagði í samtali
við Ægi að tilgangurinn væri að fylgj-
ast með álagi á háspennulínur og úr-
komu. Veðurstofan næmi einnig skeyti
frá stöðvum Landsvirkjunar, en að
öðru leyti væri skeytunum ekki miðlað
áfram og væru ekki uppi neinar áætlan-
ir um að gera það.
„Við lítum svo á að það sé á verk-
sviði Veðurstofunnar að miðla þessum
veðurskeytum til aimennings."
Vegagerð ríkisins á og rekur 19 sjálf-
virkar veðurstöðvar á heiðum og fjall-
vegum, en tekur skeyti frá fjórum að
auki. Veðurskeytum frá þeim er veitt
beint til almennings gegnum textavarp
Sjónvarpsins. Að sögn Hjörleifs Jóns-
sonar hjá Vegagerð ríkisins verður veð-
urstöðvum í eigu Vegagerðarinnar
fjölgað á næstu árum og stefnt að því
að þær verði 30-40 innan fárra ára.
Hjörleifur sagði að Vegagerðin liti á þaö
sem skyldu sína að koma sem mestum
upplýsingum sem fljótast til almenn-
ings og væri ætlunin að auka enn þá
þjónustu, t.d. með tölvukortum á
skjám á fjölförnum stöðum við þjóð-
veginn sem sýndu færð og veður á veg-
um landsins. Einnig væri í bígerð að
setja upp sjálfvirkan aflestur við veginn
austur fyrir fjall frá Reykjavík þar sem
vegfarendur gætu séð í sjónhending
við Rauðavatn hvernig veður væri á
Hellisheiði og hvort betra væri að fara
Þrengsli.
ÆGIR 25