Ægir - 01.12.1995, Page 26
Ennfremur sagði Hjörleifur að verið
væri að setja upp talgervil svo hægt
væri að nálgast veðurskeytin sjálfvirkt
gegnum síma án þess að komast að
sjónvarpi. Verið er að vinna að þessu og
verður talgervillinn kominn í gagnið
fyrir áramót. Ennfremur eru upplýsing-
ar úr kerfi Vegagerðarinnar í gagna-
bankanum Hafsjó, sem Strengur verk-
fræðistofa setti upp, og þannig er það
tengt inn á Internetið.
Hjörleifur sagði að krafa tímans væri
að almenningur fengi upplýsingar eftir
þörfum eins fljótt og hægt væri og
Vegageröin reyndi að svara þeim kröf-
um.
„Við viljum gjarnan auka aðgengi al-
mennings að þessum upplýsingum.
Þetta er bara spurning um hvaða leið er
farin til þess."
Hjörleifur sagði að samstarfið við
Veðurstofuna væri gott og hún heföi
aðgang að öllum stöðvum Vegagerðar-
innar.
Flugmálastjórn fylgist með veðri á
öllum flugvöllum á landinu og er það
enn sem komið er gert af starfsmönn-
um flugvallanna. Flugmálastjóm er að
setja upp net sjálfvirkra veðurathugun-
arstöðva sem fylgjast stöðugt með loft-
hita, yfirborðshita við jörð á flugbraut,
vindátt, vindhraöa og rakastigi. Enn
sem komið er er aflestur þessara sjálf-
virku stöðva aðeins á hverjum stað, en
það er ætlun Flugmálastjórnar að koma
þessum upplýsingum áfram til loftfar-
enda um símsvara eða talvél svo hægt
sé að fá nýjar upplýsingar um veður á
einstökum flugvöllum utan vinnutíma.
Slikar stöðvar em þegar komnar upp á
ísafiröi, Hornafirði, Akureyri, Egilsstöð-
um og í Vestmannaeyjum.
Veðurstofan:
Eigin talgervili eftir áramót
„Veðurstofan er í góðu samstarfi við
stofnanir eins og Vita- og hafnamál og
Landsvirkjun og Vegagerðina og skipt-
ist á athuganagögnum við þær. Fyrsta
sjálfvirka veðurstöðin í eigu Veðurstof-
unnar var sett upp á Kambanesi og síð-
an hefur sjálfvirkum veðurathugunar-
stöðvum fjölgað hröðum skrefum,"
sagði Magnús Jónsson veðurstofustjóri
í samtali við Ægi.
Magnús sagði að eftir áramótin yrði
tekin í notkun símsvarakerfi með tal-
gervli hjá Veðurstofunni þar sem hægt
yrði að fá upplýsingar frá öllum sjálf-
virkum veðurathugunarstöðvum við
sjó eða á sjó á einum stað.
„Þegar allt er talið verða sjálfvirkar
veðurathugunarstöðvar fljótlega mun
fleiri en svo að þeim upplýsingum
verði miðlað gegnum útvarp. Hér þarf
þvi nýja og nútímalegri miðlunar-
tækni."
Á þessum talgervli verða jafnframt
upplýsingar um veðurhorfur frá Veöur-
stofunni svo notendur geta fengið mun
heildstæðari mynd. Spárnar byggja að
ákveðnu leyti á sjálfvirkum grunni þar
Magnús Jónsson veðurstofu-
stjóri segir að Veðurstofan sitji
ekki við sama borð og aðrar rík-
isstofnanir.
sem tölvur breyta gildum frá stöðvum
í talað mál. En allt verður þetta undir
eftirliti veðurfræðinga og byrjunin
verður líklega á spám fyrir djúpmiðin.
„Við vonumst til þess að þessi þjón-
usta verði komin í gagnið í lok janúar
eða byrjun febrúar."
Á þessum talgervli munu verða aö
hluta upplýsingar frá sömu stöðvum og
þeim sem Vita- og hafnamál rekur.
Magnús vildi ekki meina að um sam-
keppni væri aö ræða heldur mismun-
andi form á þjónustu.
Ekki hugsuð sem sérstök tekjulind
Það mun áfram kosta 16,60 kr. á
mínútu að hringja í nýjan taigervil
Veðurstofunnar þegar þar að kemur.
Reiknar Veðurstofan með einhverjum
tekjum af rekstri hans?
„Það má reikna með að það vegi eitt-
hvað upp á móti kostnaði við uppsetn-
ingu, en þetta er ekki hugsað sem sér-
stök tekjulind.
Hinsvegar er mjög líklegt, eftir því
sem veðurspár verða sérhæfðari, að far-
ið verði að greiða gjald fyrir þær af
þeim aðilum sem þær þurfa aö nota."
Veðurstofan er um þessar mundir að
gera tilraunir með birtingu veðurskeyta
frá ýmsum stöðvum beint í textavarpi
Sjónvarps þar sem meðal annars eru
birt skeyti frá sjálfvirkum stöðvum.
„Við höfum farið varlega í þetta mál
því okkur er gert skylt að afla tekna á
móti kostnaöi við þessar stöðvar. Á
sama tima hafa Vegagerðin og Vita- og
hafnamál engar slíkar kvaðir og hafa
haft mikinn sparnað og hagræði af
rekstri þessara sjálfvirku stöðva. Vega-
gerðin hefur sérstaklega miklar óbeinar
tekjur af rekstri stöövanna á heiðum
uppi vegna aukinnar hagkvæmni við
snjómokstur."
Að okkar mati ójafn leikur
Eru þá ríkisstofnanir komnar bein-
línis í samkeppni á þessu sviði upplýs-
ingamiðlunar?
„Okkur finnst þetta nokkuð ójafn
leikur og þessar ríkisstofnanir séu langt
frá því að sitja við sama borð. Vita- og
hafnamál spara margar milljónir árlega
með því að leggja niður mannaða vita-
26 ÆGIR