Ægir - 01.12.1995, Page 27
vörslu og það hefur gert þeim kleift að
setja upp sitt kerfi mjög hratt. Veður-
stofan fær 4-5 milljónir á þessu ári til
þess að setja upp sjálfvirkar stöðvar.
Það er lægri upphæð en Vita- og hafna-
mál spara sér með því að leggja niður
mannaða vakt á einum vita og setja
upp sjálfvirka stöð í staðinn.
Staðreyndin er sú að Veðurstofan
hefur sjálf engan sérstakan hag af því
að setja upp sjálfvirkar veburathuganir
því við greiðum ekki meira en svo fyrir
mönnuðu athuganirnar ab það borgar
sig varla. Hinsvegar eflir þetta veður-
vöktunina og minnkar hættu á því ab
válynd veður komi okkur í opna
skjöldu. í því liggur mesti ávinningur
okkar.
Það er kannski ekki rétt að kalla
þetta samkeppni, en ef menn vilja kalla
það samkeppni þá eru leikreglurnar af
hálfu hins opinbera ekki alveg sann-
gjarnar að okkar mati."
Finnst þér sennilegt að þessi kerfi,
sem hefur verib lýst í blabinu og rekin
eru af ólíkum ríkisstofnunum, verði
sameinuð eba upplýsingadreifing frá
þeim renni saman á einhvern hátt?
„Mér fyndist það ekki óeðlilegt. Það er
að sumu leyti óhentugt fyrir stofnun eins
og Vita- og hafnamál að reka þetta kerfi
því þar er engin vakt að næturlagi og um
helgar. Hér er alltaf vakt allan sólarhring-
inn. Ég á allt eins von á að þessi kerfi
verði í framtíðinni sameinuö í eitt undir
hatti Veðurstofunnar. Veðurstofan er nú
þegar miðlæg í þessum upplýsingakerf-
um svo það er að mínu mati eðlileg þró-
un að einhvers konar sammni veröi." □
Veðursíminn: 902 0600
Veðurupplýsingar fyrir sjómenn:
2 - Sjóveðurspá 6 - Veðurlýsing
Símatorg í 2. verðflokki - 16,60 á mínútu
VEÐURSTOFA
ÍSLANDS
ÆGIR 27