Tímarit lögfræðinga - 01.06.1996, Page 49
skylda á dómstóla að fjalla um málið og ákveða refsingu í einu lagi fyrir það
brot sem fyrir er dæmt samkvæmt reglum 60. gr. alm. hgl. með hliðsjón af þeim
tímafjölda samfélagsþjónustu sem eigi hefur verið innt af hendi þannig að
eftirstöðvar samfélagsþjónustu verði virtar með sama hætti og skilorðsdómur.
Verði skilorðsrof á samfélagsþjónustutímabili án vitundar fangelsismálastofn-
unar getur samfélagsþjónn lokið vinnuskyldu sinni og getur því í raun hagnast
á því að halda því vísvitandi leyndu að hann hafi framið nýtt brot. Það er þvf
ljóst að 1. mgr. 8. gr. laganna er óvirk og gagnslaus verði ekki ráðin bót á þessu
með því að færa samfélagsþjónustu inn á sakavottorð hafi hún verið veitt.
8. NIÐURLAG
I greinargerð með lögum um samfélagsþjónustu er lögð áhersla á nauðsyn
þess að farið yrði mjög hægt í sakirnar á tilraunatímabilinu. Óhætt er að fullyrða
að samfélagsþjónusta hefur farið vel af stað hér á landi og er það án efa ekki
síst vegna þess að ekki var farið of geyst eins og vikið var að hér að ofan. Hafa
vinnuveitendur reynst áhugasamir, jákvæðir og fordómalausir og einnig virðist
samfélagsþjónusta hafa hlotið náð fyrir augum almennings.
Allt frá skipun samfélagsþjónustunefndar sýndu fjölmiðlar talsverðan áhuga
á þessu fullnustuúrræði og var það kynnt í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Á
Dómsmálaþingi 9. nóvember 1995 var fluttur fyrirlestur um samfélagsþjónustu.
Töluvert hefur verið um fyrirspurnir frá sýslumönnum og lögmönnum víðs
vegar um landið.
Hvað framtíðin ber í skauti sér verður að koma í ljós síðar. Ekki er komið að
þeim tímapunkti er fjalla skal um það hvort samfélagsþjónusta verði gerð að
varanlegum hluta íslenska viðurlagakerfisins og ef svo er hvaða fyrirkomulag
verði hentugast. Reynslan í dag þykir þó sýna að það fyrirkomulag sem við
búum við í dag, þ.e. stjórnsýsluleiðin, hefur marga kosti og reglur um málsmeð-
ferð eru vandaðar.
Helstu heimildir:
Aiþingistíðindi, 1990, A-deild, bls. 385-398.
Alþingistíðindi, 1992, A-deild, bls. 3832-3839.
Ársskýrsla Fangelsismálastofnunar ríkisins. 1994.
William Rentzmann og Johan Reimann. Samfundstjeneste og ungdomskon-
trakter, Jurist- og 0konomforbundets Forlag, Danmörk 1994.
125