Tímarit lögfræðinga - 01.06.1996, Blaðsíða 67
Fyrirlestrar:
„Valdsvið og verkefni tölvunefndar“. Fluttur 2. júní 1995 á ráðstefnu Skýrslu-
tæknifélags Islands á Grand Hotel í Reykjavík.
„Endurskoðun lagareglna um samningsveðréttindi“. Fluttur 23. september
1995 á fundi Lögfræðingafélags Norður- og Austurlands á Hótel KEA, Akur-
eyri.
Rannsóknir:
Unnið áfram að samningu bókar, sem ber heitið Þinglýsingalögin - Skýringar.
Unnið áfram að samningu kennslubókar á sviði almenna hluta kröfuréttarins.
Unnið að samningu bókar, sem hefur að geyma skýringar við einkaleyfalög
nr. 17/1991, ásamt Jóni L. Arnalds héraðsdómara.
3. STARFSEMI GERÐARDÓMS OG RÁÐGJAFARÞJÓNUSTU
Á tímabilinu frá 28. febrúar 1995 til 29. febrúar 1996 bárust verkefnanefnd
alls 5 beiðnir um verkefni, en 2 bárust á sama tímabili 1994 til 1995. Fjórar voru
afgreiddar á tímabilinu. Tvær beiðnir komu frá einkaaðilum, en 3 frá
opinberum aðilum. Engin beiðni barst um gerðardóm.
Fyrir liggur flokkuð skrá yfir álitsgerðir og gerðardóma sem Lagastofnun
hefur staðið að. Er hún varðveitt í skrifstofu lagadeildar. Formaður
verkefnanefndar er Þorgeir Örlygsson. Aðrir í nefndinni eru Stefán Már
Stefánsson, en eitt sæti er laust þar sem Arnljótur Bjömsson hefur horfið til
annarra starfa.
Sigurður Líndal
HEIMSÓKN DÓMARA TIL LONDON 1995
Dagana 7.-11. október 1995 heimsóttu tuttugu íslenskir dómarar dómstóla í
London. Með í ferðinni vom makar fimm dómara. Heimsóknina skipulagði
stjóm Dómarafélags íslands og dómsmálaráðuneytið. I London annaðist
Foreign & Commonwealth Office skipulagninguna. Fararstjórn var í höndum
formanns dómarafélagsins, Allans V. Magnússonar. Tókst hún prýðilega.
Til London var lagt af stað laugardaginn 7. október og komið þangað að
kvöldi. Næsta dag vom skoðaðir ýmsir markverðir staðir, en hópurinn hittist
síðdegis í National Gallery og skoðaði smá brot af safninu undir leiðsögn. Eftir
að því lauk lögðu menn leið sína víðar um safnið, en þar er margt markvert að
sjá svo sem kunnugt er.
143