Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 19

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 19
(töflunum) miðað við örorkustig. Hins vegar skildu leiðir um það hvernig meta ætti þær miðað við örorkustig í nýja kerfinu. Minnihlutinn taldi eftir athugun á 17 hæstaréttardómum frá 1988 - 1993 að verulegt tölfræðilegt samband væri milli örorkustigs og miskabóta í neðri hluta örorkustigans með frávikum þó. I 12 dómanna var örorkan metin á bilinu 5% - 30% og í einu tilviki 50%. I 11 þeirra kemur fram, að séu bætur tengdar örorkustigi er fjárhæðin 10 þús. kr. á hvert stig eða lægri. I tveimur dómunum eru dæmdar hærri bætur miðað við örorkustig eða 20 þús. í öðru og 24 þús. í hinu. Attu þar hlut að máli ungar konur, sem höfðu hlotið andlitslýti. Um stærstu slysin, 75 - 100% örorku, væri erfiðara að álykta en bætur mældar eftir örorkustigum námu kr. 12 þús., kr. 15 þús. og kr. 20 þús. á hvert stig. Séu bomar saman dæmdar miskabætur í 3 síðustu málunum (örorka 10 - 20%) uppkveðnum í apríl og maí 1993, rétt fyrir gildistöku nýju laganna hefðu þær verið 4 sinnum hærri miðað við 4. gr. skaðabótalaganna. Sé það nálægt meðalhækkun allra dæmdra miskabóta í áðurgreindum 17 dómum eftir reglum nýju laganna. Ef sérstaklega er litið til síðustu þriggja hæstaréttardómanna sem kveðnir vom upp fyrir gildistöku nýju skaðabótalaganna, í apríl og maí 1993, svara miskabætur í þeim öllum til kr. 10 þús. á örorkustig. Ef miskafjárhæðir dómanna em framreiknaðar með lánskjara- vísitölu frá tjónsdegi til uppkvaðningar dóms nema þær vegna yngsta tjónsins (frá 12.2.1988) kr. 16.751, og í hinum kr. 19.058 og kr. 23.495, hækkandi eftir því sem tjónin vom eldri. En þessa dóma telur minnihlutinn skýra best dóma- framkvæmdina miðað við örorkustig tjónþola í þessum málum. Minnihlutinn taldi að hér þyrfti að minnast þess að miskabótakrafan var ekki verðtryggð krafa. Það var fyrst með 15. gr. skaðabótalaga að mælt var fyrir um verðtryggingu hennar. Því vom ekki dæmdar á hana verðbætur heldur vextir. Breytingar á vaxtaákvörðunum á hverjum tíma giltu fram fyrir sig og því með öllu óvíst hvemig samræmi yrði milli þeirra og verðbreytinganna. Hvorki að lögum né framkvæmd var neitt beint eða sjálfvirkt samband milli hins svo- nefnda verðbótaþáttar vaxta og lánskjaravísitölunnar. Þessu til frekari skýringa fylgdu útreikningar á nokkmm dómum, annars vegar var reiknað miðað við dæmda vexti og hins vegar með verðbótum samkvæmt lánskjaravísitölu. Sýnir þessi útreikningur að dæmdir vextir hrökkva sem næst að hálfu móti vísitölu- hækkuninni. Miðað var í útreikningnum við tjónsdag og hins vegar uppkvaðn- ingu dóms, en þessi tímamörk afmarka dómvenjuna, en síðari atburðir svo sem verðlagsþróun og o.þ.h. eru utan ramma hennar. Dráttarvextir skipta hér ekki máli þar sem þeir em afleiðing vanefnda. Vegna framangreinds áleit minnihlutinn, að framreikningur miskabótakröf- unnar með lánskjaravísitölu frá verðmæti hennar á slysdegi ekki eiga við, með því að krafan hafi ekki verið verðtryggð. Með því að nota verðbótaákvæði eftir lánskjaravísitölu, sbr. 15. gr. skaðabótalaganna, á eldra kerfið væri verið að eyða samanburðargrandvellinum milli kerfanna um þetta atriði. En spurning allsherjarnefndar laut að samanburði milli þeirra á gmndvelli dómvenjunnar. Niðurstaða minnihluta nefndarinnar varð því sú, að hann taldi samanburðinn 159
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.