Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 24
á umgengnisrétt við barnið nerna því sé veitt færi á að tjá sig um rnálið og þar
á meðal bera málið undir sýslumann.
2.2 Málsmeðferðarreglur í VIII. kafla barnalaga
I 1. mgr. 56. gr. barnalaga segir hvenær unnt sé að höfða dómsmál hér á landi
vegna ágreinings um forsjá barns en það er ef:
a. stefndi er búsettur hér á landi,
b. barn eða börn sem málið varðar eru búsett hér á landi,
c. stefnandi er íslenskur ríkisborgari og leitt er í ljós að hann geti ekki vegna
ríkisfangs síns höfðað mál í því landi sem hann býr eða þar sem stefndi eða börn
búa,
d. báðir foreldrar eru íslenskir rrkisborgarar og stefndi lýsir sig eigi andvígan
því að mál sé höfðað hér á landi.
Samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar ganga ákvæði milliríkjasamninga sem
ísland er aðili að þó framar 1. mgr.
I 3. mgr. sömu lagagreinar er sérákvæði varðandi lögsögu þegar ágreiningur
um forsjá er hluti af hjúskaparmáli en þá gilda reglur samkvæmt hjúskapar-
lögum um lögsögu og varnarþing. Um forsjárþáttinn skuli gæta lagaákvæða
VIII. kafla barnalaga. Þá er einnig sérregla í 4. mgr. 56. gr. barnalaga en sam-
kvæmt henni getur íslenskur dómstóll, ef alveg sérstaklega stendur á, leyst úr
kröfu um forsjárskipan til bráðabirgða ef stefndi eða bamið dvelst hér á landi.
Samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna skal höfða mál á heimilisvamarþingi barns
eða á heimilisvamarþingi stefnda að öðmm kosti. Ef hvomgt þeirra á heimilis-
vamarþing hér á landi má höfða mál á heimilisvamarþingi stefnanda. Ef ekki er
til að dreifa vamarþingi samkvæmt ofangreindu skal höfða mál fyrir dómstóli
sem dómsmálaráðuneytið kveður á um.
I 1. mgr. 59. gr. segir að dómari leiti um sættir í forsjárdeilum og í 2. mgr. að
dómari geti ákveðið að sáttatilraun í stofnun um fjölskylduráðgjöf komi í stað
sátta samkvæmt 1. mgr. að nokkm eða öllu.
I 60. og 61. gr. er fjallað um sönnunargögn í forsjármálum sem rekin era fyrir
dómstólum. Þar kemur m.a. fram að dómari hefur afskipti af gagnaöflun
málsaðila og hann getur einnig sjálfur aflað gagna.1
Samkvæmt 1. mgr. 62. gr. geta aðilar gert nýjar dómkröfur og flutt fram nýjar
málsástæður og ný andmæli allt til þess að mál er flutt, enda þarf ekki að leita
sátta að nýju vegna nýrra dómkrafna nema dómari telji ástæðu til þess og
samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar er dómari ekki bundinn af kröfum aðila og
málsástæðum í forsjárdeilum.
I 63. gr. segir að forsjármál skuli sótt og varin og aðilar og vitni spurð fyrir
luktum dymm nema dómari ákveði öðmvísi með samþykki aðila.
I 64. gr. segir að ekki megi án leyfis dómara birta almenningi á nokkurn hátt
1 Fjallað er um efni þessara lagagreina í ritinu Gagnaöflun í forsjármálum eftir Sigríði
Ingvarsdóttur.
164