Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Side 47
lögveð, sjálfsvörsluveð, sjóveð, tryggingarbréf, veðréttindi og veðbandslausn.
Lagaskrá, atriðisorðaskrá og listi yfir dóma í aldursröð fylgir.
Páll Skúlason: Að eignast íbúð - leiðbeiningar fyrir álmenning. Sleipnir. 1991. 120
bls.
Ritið Að eignast íbúð eftir Pál Skúlason hdl. er leiðbeiningarrit fyrir leika og
lærða varðandi fasteignaviðskipti. í bókinni er að finna umfjöllum í sautján
köflum um m.a. fjármögnun, félagslegt húsnæði, kaupsamninga, skyldur
seljenda og kaupenda, fjallað er um sérreglur sem gilda um fjölbýlishús, trygg-
ingar o.fl. Aftast í bókinni er að finna sýnishom ýmissa skjala og eyðublaða, þ.
á m. sýnishorn kaupsamnings, makaskiptasamnings og afsals.
Þorgeir Örlygsson: Þinglýsingar - Mistök í þinglýsingum - Réttarreglur. Bóka-
útgáfa Orators. 1993. 275 bls. Verð: 4.675 kr.
Meginefni bókar Þorgeirs Örlygssonar prófessors fjallar um þær reglur
þinglýsingalaga sem varða mistök í þinglýsingum. í bókinni er fyrst gerð grein
fyrir eðli þinglýsingar og reglum þeim, sem gilda um málskot ákvarðana
þinglýsingarstjóra, þá er fjallað um það álitaefni, hvort og þá að hvaða marki,
þinglýsingarstjóri geti almennt sjálfur endurskoðað sína eigin ákvörðun í
þinglýsingarmáli. I þriðja lagi er gerð grein fyrir þeim reglum, er varða heimild
eða skyldu þinglýsingarstjóra til þess að leiðrétta mistök sem verða við
þinglýsingar og í fjórða lagi er fjallað um það, hvernig unnt er að afla rétti
sínum réttarverndar til bráðabirgða, þegar meint þinglýsingarmistök hafa átt sér
stað. Fimmta umfjöllunarefni bókarinnar eru skilyrði þess, að í tilefni
þinglýsingarmistaka verði vikið frá þeirri meginreglu að afhending skjals til
þinglýsingar ráði úrslitum um réttarvemd þess, og síðast er fjallað um skilyrði
bótaréttar vegna mistaka við þinglýsingar. Viðaukar bókarinnar em sýnis-
homasafn, þar sem getur að líta ýmis sýnishorn er lúta að viðfangsefni
bókarinnar, viðeigandi lög og reglugerðir, og auk þess heimilda- laga- dóma- og
atriðisorðaskrár.
Magnús Ingi Erlingsson. Húsfélagahandbókin - Lögfrœðihandbók fyrir húsfélög
og almenning. Höf. gafút. 1994. 215 bls. Verð: 2.695 kr.
í Húsfélagahandbókinni eftir Magnús Inga Erlingsson lögfræðing er
umfjöllunarefnið fjöleignarhúsalög sem tóku gildi í ársbyrjun 1995. Bókin
skiptist í sextán kafla þar sem m.a. er fjallað um hugtakið fjöleignarhús og
önnur hugtök laganna, helstu einkenni eignarformsins fjöleignarhús, ráð-
stöfunarrétt yfir sameign og séreign, neyðarrétt eiganda og húsfélags, bygg-
ingar og breytingar í fjöleignarhúsum, ákvarðanatöku í fjöleignarhúsum,
skaðabótaábyrgð eiganda og húsfélags, starfsemi húsfélaga, kæmnefnd
187