Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 48
fjöleignarhúsamála, gerð verksamninga, vátryggingar húseigenda, nábýlisrétt
og upplýsinga- og skoðunarskyldu í fasteignakaupum. Auk laga um fjöl-
eignarhús fylgja heimildaskrá og atriðisorðaskrá, sem og þjónustuskrá, í
bókarlok.
Þorgeir Örlygsson. Kaflar úr veðrétti I. Fjölrit. 1994. 45 bls.
Kaflar úr veðrétti er fjölrit sem gefið var út til kennslu við lagadeild HÍ. Þar er
fjallað um bein og óbein eignarréttindi, megineinkenni veðréttinda, flokkun
veðréttinda, íslensku veðlögin frá 1887, afmörkun samningsveðs, sérgreiningar-
regluna, undantekningu frá nreginreglu veðlaganna um bann við sjálfsvörslu-
veðsetningu í heildarsafni rnuna, tilgreiningarregluna og að síðustu er fjallað um
hvort þörf sé á því að rýmka heimildir atvinnuveganna til þess að veðsetja
rekstrartæki sín ósundurgreind með fasteignum rekstrarins. Heimilda- og
dómaskrá fylgir.
Páll Skúlason. Jarðalög nr. 65/1976 með skýringum. Sleipnir. 1996. 137 bls. Verð:
2.990 kr.
Páll Skúlason hdl. er höfundur skýringarrits um jarðalögin nr. 65/1976. I
formála segir höfundur að skýringarnar séu samdar með það fyrir augum að
jarðanefndarmenn, sveitarstjórnarmenn, bændur og fleiri verði fljótari að átta
sig á efni laganna og þeim réttindum og skyldum sem þeim fylgja. Bókin er í
hefðbundnu formi skýringarrita, þar sem fjallað er sérstaklega um hverja
lagagrein fyrir sig. I viðauka er að finna ábúðarlög, lög um Jarðasjóð og lög um
eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sem og hugleiðingar höfundar um eignarrétt.
Heimildaskrá og dómaskrá er að finna fremst í ritinu.
2.3 Evrópuréttur
ísland og Evrópa - I.-VII. rit. Evrópustefiumefhd Alþingis. 1990. 290 bls. Verð: 2.190 kr.
Árið 1988 kaus Alþingi nefnd um stefnu Islands gagnvart Evrópu-
bandalaginu. Hlutverk nefndarinnar var m.a. að taka til athugunar þróun þá sem
fyrirsjáanleg var innan EB og áhrif hennar á íslenskt efnahagslíf. Nefndin gaf
út sjö rit um samskipti íslands við aðrar þjóðir, og var umræddum ritum loks
steypt saman í eina bók. Bókinni er skipt niður í sjö hluta. í fyrsta hluta er yfirlit
yfir þróun viðskiptasamvinnu í Evrópu frá lokum síðustu heimstyrjaldar og
lýsing á núverandi skipan hennar. I öðrum hluta er fjallað um samvinnu EB og
EFTA á síðustu árum. í þriðja hluta er í fyrsta lagi fjallað um rannsóknar- og
þróunarstarfsemi, í öðru lagi umhverfis- og vinnuvernd og neytendamál og í
þriðja lagi vinnumarkaðs- mennta- menningar- og ferðamál. Fjórði hlutinn ber
nafnið Atvinnuvegir og eru þar tekin fyrir atriði sem tengjast helstu
188