Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 52
Aftast er að finna lagaskrá, atriðisorðaskrá og lista yfir dóma í aldursröð.
Páll Skúlason. Sameignarfélög - Helstu réttarreglur. Sleipnir. 1990. 94 bls. Verð:
2.280 kr.
Páll Skúlason hdl. fjallar um sameignarfélög í samnefndri bók sinni, sem
skiptist í 10 kafla. Þar er gerð grein fyrir hugtökum og grunnreglum varðandi
sameignarfélög, stofnun sameignarfélaga, réttindum félagsmanna og skyldum,
afstöðu félagsins til þriðja manns, lok félagsins, skattlagningu sameignarfélaga
og loks er tjallað um sameignarfélög sem rekstrarform. í viðauka er að finna
formála að félagssamningum o.fl.
Pcíll Skúlason. Lög um hlutafélög með skýringum. Sleipnir. 1994. 261 bls. Verð:
4.560 kr.
Rit Páls Skúlasonar hdl. um hlutafélagalögin nr. 32/1978, sbr. nú lög nr.
2/1995, er skýringarrit. I formála segist höfundur gera tilraun til að skýra lögin
eins og þau eru vorið 1994. Er það gert með hefðbundnum aðferðum, svo sem
tilvísunum til greinargerða með lagafrumvörpum, dóma, norrænnar löggjafar
og lagaframkvæmdar o.s.frv. I viðauka er að finna ýmis sýnishorn er tengjast
efni bókarinnar, s.s. sýnishom stofnsamnings, samþykkta, stofnfundargerðar,
hlutabréfa, samrunasamnings, áritun endurskoðenda og ársskýrslu stjómar. Þá
er þar að finna skýrslu umboðsmanns Alþingis um starfshætti hlutafélagaskrár
við skráningu og könnun tilkynninga um breytingar á skráðum upplýsingum og
heimildaskrá.
Páll Skúlason. Lög um einkahlutafélög með tilvísunum í eldri og núgildandi
hlutafélagalög. Sleipnir. 1995. 96 bls. Verð: 1.800 kr.
Skýringarritið Lög um einkahlutafélög með tilvísunum í eldri og núgildandi
hlutafélagalög byggir að meginstefnu til á ritinu Lög um hlutafélög með
skýringum eftir sama höfund. Mikið er um vísanir í fyrrnefndu bókinni til
þeirrar síðamefndu varðandi skýringar á ýmsum ákvæðum laganna um
einkahlutafélög, þannig að síðamefnda bókin er nauðsynleg til að gagn sé hægt
að hafa af þeirri bók sem hér er gerð grein fyrir. I viðauka er að finna
númerabreytingaskrá, þar sem gerð er grein fyrir breytingum á númemm greina
og kafla í lögum um hlutafélög nr. 32/1978 með síðar breytingum, við
endurútgáfu laganna í janúar 1995.
Stefán Már Stefánsson. Hlutafélög og einkahlutafélög. Hið íslenska bókmenntafélag.
1995. 456 bls. Verð: 5.395 kr.
I bókinni er gerð ítarleg grein fyrir réttarreglum varðandi hlutafélög og
192