Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 54

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 54
Páll Sigurðsson. Kröfuréttur - Almennur hluti. Háskólaúteáfan. 1992. 428 bls. Verð: 5.985 kr. Bókin Kröfuréttur skiptist í fimm hluta og 23 kafla, og er þar fjallað um öll helstu atriðin sem tengjast almenna hluta kröfuréttarins. í fyrsta hluta er einkum fjallað um hugtakið kröfu og kröfuréttindi og stofnun kröfu. í öðrum hluta er gerð grein fyrir aðilum kröfusambands og aðilaskiptum að kröfusambandi. í þriðja hluta er fjallað um lok kröfu, efndir kröfu, geymslugreiðslu við skulda- skil, endurkröfu, breytingar á efndaskyldu eða lok hennar með löggerningi, skuldajöfnuð, samruna réttar og skyldu, tómlætisáhrif og önnur endalok kröfu. I fjórða hluta er fjallað um lögvemd kröfuréttinda. I fimmta hluta er fjallað um áhættu af efndabresti, helstu tegundir vanefnda og réttaráhrif þeirra og samningsbundin ákvæði um afleiðingar vanefnda auk brottfalls vanefnda- úrræða kröfuhafa. Bókinni fylgja laga- dóma- atriðisorða- og heimildaskrár. Páll Sigurðsson. Höfundaréttur - Meginreglur íslensks réttar um höfundavernd. Háskólaútgáfan. 1994. 336 bls. Verð: 4.400 kr. Bókin Höfundaréttur skiptist í fimm hluta og fimmtán kafla. f inngangi er fjallað um fræðigreinina höfundarétt, nokkur gmndvallaratriði og efnismörk og gerð er grein fyrir helstu fræði- og hliðsjónarritum. í fyrsta hluta er fjallað um réttarþróun erlendis, íslenskan rétt og réttarheimildir, fjölþjóðlegt og alþjóðlegt samstarf og stjórnsýslu og samtök á sviði höfundaréttar. í öðmm hluta er fjallað um eðli höfundaréttar, þá aðila sem vemdar njóta, grannréttindi höfundaréttar og skyld efni, efni eða inntak höfundaréttar og sæmdarrétt. í þriðja hluta er gerð grein fyrir takmörkunum á höfundarétti og skyldum efnum, verndartíma höfundaréttar og grannréttinda hans og brotum gegn höfundarétti og afleið- ingum þeirra. í fjórða hluta víkur höfundur að aðilaskiptum að höfundarétti. í fimmta hluta fjallar höfundur um hvert stefni á þessu réttarsviði og hvort úrbóta sé þörf. Heimilda- dóma- laga- og atriðisorðaskrár fylgja og auk þess skrá yfir bækur eftir höfundinn. Þorgeir Örlygsson. Efndir in natura. Fjölrit. 1994. 35 bls. Ritið Efndir in natura eftir Þorgeir Örlygsson prófessor var gefið út sem handrit til kennslu við lagadeild HÍ. Er þetta eitt af nokkrum fjölritum sem hann hefur gefið út og notuð hafa verið í kennslu í kröfurétti, en nokkur af þeim hafa síðar birst sem tímaritsgreinar. Á þetta við um Skuldaraskipti sem birtist í TL 1992, 1. hefti, Kröfuhafaskipti sem birtist í TL 1994, 2. hefti, Afslátt sem birtist í TL 1996, 3. hefti og Skuldajöfnuð sem birtist í Úlfljóti, 1. tbl. 1997. í ritinu Efndir in natura er m.a. fjallað um meginregluna um rétt til dóms um efndir in natura og inntak kröfunnar, ómöguleika, ógilda og óvirka samninga, það álitaefni ef efndir in natura leiða til verulegs fjárhagstjóns skuldara samanborið 194

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.