Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 62
dómarnir flokkaðir eftir efnisatriðum. ítarleg lagaskrá fylgir, sem og dómaskrá
og atriðisorðaskrá fyrir hvern kafla. Hverjum dómi er gefið númer sem vísað er
til í skrám.
Sigríður Ingvarsdóttir. Gagnaöflun íforsjármálum. Háskólaútgáfan. 1996. 139 bls.
Verð: 1.160 kr.
Bókin Gagnaöflun í forsjármálum eftir Sigríði Ingvarsdóttur héraðsdómara
skiptist í níu kafla, en þar er fjallað um þær réttarreglur sem gilda um
gagnaöflun í dómsmálum þar sem deilt er um forsjá barna. Þar er fjallað um
markmið réttarfars í forsjármálum, hlutverk dómstóla við gagnaöflun, gagna-
öflunina sjálfa, þ.e. tilgang gagnaöflunar, tilhögun gagnaöflunar, sönnunar-
færslu, hvenær Ijúka eigi gagnaöflun og gagnaöflun fyrir Hæstarétti, þá er
fjallað um vinnu sérfræðinga fyrir dómstólum, umsagnir barnaverndarnefnda,
mat sönnunargagna og loks sérstök vandamál varðandi gagnöflun.
2.11 Skaðabótaréttur
Arnljótur Björnsson. Kaflar úr skaðabótarétti. Bókaútgáfa Orators. 1990. 449 bls.
Verð: 5.360 kr.
í bókinni Kaflar úr skaðabótarétti eftir Arnljót Björnsson hæstaréttardómara
er að finna safn greina um skaðabótarétt. Um er að ræða sautján greinar sem
flestar höfðu áður birst í lagatímaritum. Heiti greinanna eru Tengsl vinnu-
veitanda og starfsmanns sem skilyrði vinnuveitendaábyrgðar, Ábyrgð vegna
sjálfstæðra verktaka í bandarískum bótarétti, Bótaábyrgð vegna vinnuslysa sem
hljótast af athöfnum sjálfstæðra framkvæmdaaðila eða af bilun eða galla í tæki,
Almenn skaðabótalög á Norðurlöndum I og II, Skaðabótaréttur á undanhaldi.
Löggjöf og tillögur um afnám skaðabótaréttar, Lækkun skaðabóta, þegar laun-
þegi veldur tjóni í starfi, Ný lög um samninga um vöruflutninga á landi,
Bótaskylda án sakar, Hjálmar, hlífðargleraugu og öryggisbelti, Hæstaréttar-
dómur 1987 587. Hvemig ber að haga frádrætti slysatryggingarfjár o.fl. í
skaðabótamáli, þar sem sök er skipt?, Skaðsemisábyrgð, Skaðabótaábyrgð
útgerðarmanns utan samninga, Húseigendaábyrgð og vátryggingar tengdar
henni, Yfirlit yfir bótakerfi á Islandi, Bætur fyrir varanlega örorku og
Dánarbætur. Heimildaskrá, lagaskrá, dómaskrá og atriðisorðaskrá fylgja.
Bœtur fyrir líkamstjón. Ársrit Lögfrœðiþjónustunnar 1991. 64 bls.
I ritinu er að finna ýmsar greinar þar sem fjallað er um líkams- og heilsutjón og
er hluti þeirra á sviði lögfræði. Lögmenn Lögfræðiþjónustunnar rita greinar um
bótarétt tjónþola við líkams- og heilsutjón, þ.e. bætur við umferðarslys, bætur við
vinnuslys, bætur vegna slysa við leiki eða íþróttir og bætur vegna mistaka við
læknisaðgerðir. Meðal annarra greina í ritinu má nefna grein eftir Ólaf B. Thors
202