Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 63
sem ber heitið Er tímabært að setja almenn skaðabótalög á íslandi? og grein eftir
Jón E. Þorláksson sem heitir Útreikningar vegna líkamstjóna.
Amliótur Björnsson. Dómar í vátryggineamálum 1920-1994. Bókaútgáfa Orators.
1995. 180 bls. Verð: 3.300 kr.
í bókinni er að finna safn dóma sem lúta að vátryggingamálum. Um er að ræða
þriðju útgáfu höfundar af dómaskrám á þessu sviði, önnur útgáfa kom út 1983,
og hefur í þessari útgáfu nýjum dómum verið bætt við. Bókin skiptist í tvo þætti.
í fyrri þættinum eru reifaðir dómar þar sem reynt hefur á ákvæði laga um vátrygg-
ingasamninga og eru dómamir flokkaðir eftir einstökum ákvæðum laganna. í
síðari þætti bókarinnar era dómarnir síðan flokkaðir eftir einstökum greinum
vátrygginga. Aftast er að finna ítarlegar skrár yfir lög, dóma og atriðisorð.
Jón Erlingur Þorláksson. Slysabœtur og íslensk skaðabótalög. 1995. 72 bls. Verð:
1.050 kr.
í bókinni Slysabætur og íslensk skaðabótalög fjallar Jón Erlingur Þorláksson
tryggingastærðfræðingur um ýmis álitamál sem koma upp þegar ákveða skal
reglur um bætur fyrir líkamstjón. Reynt er að gefa innsýn í tjónin sem bæta
þarf, bæði með tölfræðilegu yfirliti og skoðun á einstökum málum. Þá er greint
frá uppgjörsreglum sem notaðar hafa verið hér á landi. Þungamiðja ritsins er þó
gagnrýni á skaðabótalögin frá 1993 og tillögur til einföldunar og úrbóta. I fimm
viðaukum er að finna ýmsar töflur, örorkumöt, útreikninga tryggingastærð-
fræðings, verklagsreglur Sambands íslenskra tryggingafélaga við mat á fjártjóni
vegna líkamstjóna og skaðabótalög nr. 50/1993.
2.12 Skattaréttur
Ásmundur G. Vilhjálmsson. Skattaréttur 1-2. Höf. gafút. 1994. Skattaréttur 3. Höf.
gafút. 1995. Verð: 3.250 kr. Skattaréttur 4. Höf. gafút. 1996. Verð: 3.250 kr. Öll ritin
1231 bls.
Bækurnar Skattaréttur 1 -4 eru gefnar út sem handrit í tilraunar- og reynslu-
skyni segir í formála höfundar, Ásmundar G. Vilhjálmssonar lögfræðings, í
fyrstu bókinni. Bækurnar skiptast í tíu þætti þar sem fjallað er um öll helstu
atriði skattaréttarins varðandi tekju- og eignarskatt o.fl.
í Skattarétti 1 er fjallað í fyrsta þætti um skatta, almennt og um hugtakið
skattur, framsal skattlagningarvalds, markmið skatta o.fl. í öðrum þætti er
fjallað um tekjuskatt, um tekjuhugtakið, íslenskan tekjuskatt og tekjuhugtak
núgildandi skattalaga. í þriðja þætti er fjallað um einstaklingstekjur, launa-
tekjur, tryggingabætur og meðlög, skaðabætur og vátryggingafé, höfundarlaun,
203