Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Side 68

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Side 68
lagsmál og umhverfisvernd, náttúruvernd og vernd menningarverðmæta. í öðrum hluta er fjallað um EES og íslenskan rétt, í þriðja hluta er fjallað um alþjóðlegan umhverfisrétt og loks er í fjórða hluta að finna atriðisorðaskrá, lagaskiá og dómaskrá auk þess skrá yfir helstu heimildir. 2.15 Vinnumarkaðsréttur Lára V. Júlíusdóttir. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði. ASÍ. 1993. 279 bls. Verð: 1.750 kr. Rit Láru V. Júlíusdóttur lögmanns, um réttindi og skyldur á vinnumarkaði, skiptist í þrjá hluta: Upphaf ráðningar, réttindi og skyldur starfsmanna og lok ráðningar, og er fjallað um efnið í 18 köflum. Þar er m.a. að finna sögulegt yfirlit sem og yfirlit yfir réttarheimildir og lögskýringargögn. Fjallað er um skyldur starfsmanna og atvinnurekanda, orlof, lífeyrissjóði og elli- og örorku- lífeyri almannatrygginga, slysatryggingar atvinnurekenda, sjúkdóma og slys, fæðingarorlof og reglur tengdar þungun kvenna, atvinnuleysisbætur, uppsagnir o.fl. Heimildaskrá, atriðisorðaskrá og dómaskrá fylgja. Lára V. Júlíusdóttir. Stéttarfélög og vinnudeilur. ASÍ. 1995. 282 bls. Verð: 1.980 kr. Bókin skiptist í þrjá hluta, skipulag vinnumarkaðarins, kjarasamninga og kjaradeilur og kaflarnir eru nítján. Þar er m.a. fjallað um stofnanir vinnumark- aðarins, starfsemi stéttarfélaga, réttindi og skyldur félagsmanna í stéttarfélagi, trúnaðarmenn á vinnustað, atvinnufrelsi, kjarasamninga og aðila kjarasamn- inga, túlkun kjarasamninga, gildistíma og gildissvið, ágreining á vinnumarkaði, friðarskylduna, vinnustöðvun, verkföll á almennum vinnumarkaði, framkvæmd verkfalls, verkföll opinberra starfsmanna og bankamanna, verkbann, sáttastörf í vinnudeilum, endi vinnudeilu og Félagsdóm. Heimildaskrá, atriðisorðaskrá og dómaskrá fylgja. 2.16 Vörumerkja- og einkaleyfaréttur Jón L. Arnalds. Vörumerkjaréttur - Helstu meginreglur. Bókaútgáfa Orators. 1995. 199 bls. Verð: 3.600 kr. Ritinu Vörumerkjaréttur eftir Jón L. Arnalds, fyrrv. héraðsdómara, er ætlað að gefa almennt yfirlit yfir meginreglur gildandi vörumerkjaréttar. Þar er að finna sögulegt yfirlit, umfjöllun um alþjóðlegan vörumerkjarétt, ýmis hugtök, notkun og markaðsfestu, skráningu og skilyrði hennar, gerð er grein fyrir kröfunni um nægjanlegt sérkenni og aðgreiningarhæfi, fjallað er um það ef villast má á merkjum, lögmæta notkun, aðilaskipti, nytjaleyfi, takmörkuð réttindi og réttarvemd, og loks lok vörumerkjaréttar. í viðauka fylgja lög um 208

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.