Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Qupperneq 69
vörumerki og lög um almenn gæðamerki, sem og Parísarsamþykkt um vernd
eignarréttinda á sviði iðnaðar frá 20. mars 1883. Þá fylgir vöruskrá frá janúar
1992, ritaskrá, lagaskrá, dómaskrá og atriðisorðaskrá.
Þorgeir Örlygsson og Jón L. Amalds. Einkaleyfalögitt - skýringarrit. Fjölrit. 1995.
Arið 1995 gáfu Þorgeir Örlygsson prófessor og Jón L. Arnalds, fyrrv.
héraðsdómari, út skýringarrit þar sem fjallað er um einkaleyfalögin. Ritið er
ætlað til notkunar í kennslu í lagadeild Háskóla íslands og er um hefðbundið
skýringarrit að ræða þar sem fjallað er sérstaklega um hverja grein umræddra
laga. Höfundar hafa síðan unnið að endurbótum á ritinu og er það væntanlegt í
bókarformi á vegum Bókaútgáfu Orators um mitt ár 1997.
2.17 Ýmislegt
Fáni íslands, skjaldarmerki, þjóðsöngur, heiðursmerki - Saga. Gildandi lög og
reglur. Leiðbeiningar um notkun fána. Forsœtisráðuneytið. 1991. 67 bls.
I bókinni er eins og heiti hennar ber með sér fjallað um fána, skjaldarmerki,
þjóðsönginn og heiðursmerki. Fjallað er um gerð fánans, leiðbeiningar um
meðferð og notkun hans, gerð er grein fyrir lagaákvæðum um fána og ýmsum
ákvæðum um fána og skjaldarmerki auk þess sem þar er að finna ágrip af sögu
íslenska fánans. Fjallað er um skjaldarmerkið og sögu þess, þjóðsönginn og
sögu hans og loks íslensk heiðursmerki. Fjölmargar skýringarmyndir og ljós-
myndir eru í ritinu.
Afmœlisrit Gizur Bergsteinsson nírœður 18. apríl 1992. Sleipnir. 1992. 284 bls.
Verð: 4.275 kr.
í ritinu er, auk greinar eftir Bjarna K. Bjamason um Gizur Bergsteinsson,
fyrrv. hæstaréttardómara, að finna 13 greinar. Deilurnar um hæstarétt á 3. og 4.
áratugnum e. Þórð Björnsson; Um Hlíðverjagoðorð e. Lúðvík Ingvarsson;
Gapastokkur e. Ármann Kristinsson; Þættir um landamerki og landamerkjamál
e. Pál Skúlason; Um eignarhald á Biskupstungnaafrétti e. Karl Axelsson;
Fossanefndin 1917-19 e. Sigurð Gizurarson; Gæsla hugverkaréttinda skv.
íslenskum lögum og lagaframkvæmd e. Árna Vilhjálmsson; Bótareglur
höfundalaga e. Ragnar Aðalsteinsson; Lagaákvæði á sviði sifjaréttar sem fela
stjórnvöldum úrskurðarvald e. Davíð Þór Björgvinsson; Meðalhófsreglan í
stjórnskipunarrétti e. Gauk Jörundsson; Mannúðarréttur e. Pál Sigurðsson;
Stjórnmálaflokkar og mannréttindi e. Þór Vilhjálmsson og Tungutak lögfræð-
innar e. Hjördísi Björk Hákonardóttur.
209