Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 78
Á VÍÐ OG DREIF
FERÐ LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS TIL WASHINGTON DC
í APRÍL 1997
Stjórn Lögfræðingafélags íslands á hverjum tíma er það metnaðarmál að
bjóða félagsmönnum sínum vandaða og fjölbreytta dagskrá. Á síðustu árum
hefur verið bryddað upp á ýmsum nýjungum í starfsemi félagsins. Meðal
nýmæla í starfsemi félagsins eru vorferðir. Eitt árið var haldið til Þingvalla,
annað árið var siglt út í Viðey. I þessum tveimur ferðum nutum við leiðsagnar
Sigurðar Líndals prófessors sem leiddi okkur í allan sannleik um sögu þessara
staða. I þriðja sinn var farið um Reykjanesið og hið fjórða á söguslóðir Njálu.
Þær ferðir voru farnar undir leiðsögn Jóns Böðvarssonar ritstjóra.
Þegar vorferðina 1997 bar á góma í stjórn félagsins í nóvember 1996 kviknaði
sú hugmynd að halda að þessu sinni út fyrir landsteinana. Stjórnin fól
framkvæmdastjóra félagsins Brynhildi Flóvenz og stjórnarmönnunum Helga
Jóhannessyni, Benedikt Bogasyni og Steinunni Guðbjartsdóttur að kanna
möguleika á slíkri ferð. Eftir miklar athuganir af hálfu undirbúningshópsins og
vangaveltur af hálfu stjórnar var ákveðið að slá til og auglýsa vorferð til
Washington DC. Treysti stjórnin því að næg þátttaka fengist, en segja má að
hafi stjórnin misreiknað algjörlega áhuga á þessari vorferð. I stað þeirra 30 sem
stjórnin vænti tilkynntu sig rétt um 90 manns til fararinnar. Um tíma stóð tæpt
að hægt væri að fara með svo stóran hóp, en allt small þetta þó saman að lokum.
Það var síðan á síðasta degi vetrar, hinn 23. apríl 1997, að þessi fjölmenni
hópur lögfræðinga hélt af stað í fræðaferð Lögfræðingafélags Islands til
Washington DC. Fararstjóri ferðarinnar var Garðar Gíslason hæstaréttardómari
og fyrrverandi formaður félagsins.
Formleg dagskrá ferðarinnar hófst sumardaginn fyrsta með heimsókn í
Hæstarétt Bandaríkjanna. Þar hitti hópurinn Antonin Scalia hæstaréttardómara
í dómsal réttarins. Scalia hélt stutt erindi þar sem hann fjallaði um Hæstarétt við
túlkun á stjórnarskránni. Að því loknu urðu nokkrar umræður. Scalia er mjög
kunnur dómari, jafnvel umdeildur og af sumum talinn einna íhaldssamastur
hinna íhaldssamari dómara við réttinn. Hann var skipaður hæstaréttardómari
1986. Það var sérstakur heiður fyrir þennan hóp að hann skyldi gefa sér tíma til
að hitta okkur og eiga Einar Benediktsson sendiherra og frú Elsa kona hans
allan heiður af því. Síðan gekk hópurinn um byggingu réttarins og skoðaði
húsakynni. Flestir stöldruðu við góða stund í minjagripaverslun réttarins og
festu þar kaup á margvíslegum munum.
218